Bændablaðið - 17.12.2015, Side 24

Bændablaðið - 17.12.2015, Side 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015 Heimilisiðnaðarfélag Íslands og Handraðinn þjóðháttafélag: Þjóðbúningasaumur á Laugalandi í Eyjafirði Fjölmargir hrífast af íslenska þjóðbúningnum. Handverkið að baki búningunum heillar marga og hópur þeirra sem velur að gera sinn eigin búning fer vaxandi. Áhugasamir um þjóðbúninga- saum á Eyjafjarðarsvæðinu eiga þess nú kost að taka þátt í helgar- námskeiðum á Laugalandi. Það er Heimilisiðnaðarfélag Íslands og Handraðinn þjóð- háttafélag sem standa að þessum helgum. Samstarfið felst í því að kennarar í þjóðbúningasaumi, þær Oddný Kristjánsdóttir og Inda Dan Benjamínsdóttir, koma norður og kenna áhugasömum en Handraðinn sér um útvegun húsnæðis og fleira. Útlit faldbúninga er fjölbreytilegt Fyrsta kennsluhelgin í vetur var 21.– 22. nóvember síðastliðinn en þá helgi tóku 15 nemendur þátt. Þeir unnu að ýmsum verkefnum, sumir komu til að endurnýja skyrtu og svuntu eða gera við eldri búninga á meðan aðrir voru að byrja á þjóðbúningi, upphlut eða peysufötum, frá grunni. Talsverður hluti hópsins vinnur að svokölluð- um faldbúningi sem á öldum áður var spariklæðnaður heldri kvenna á Íslandi. Hann hefur nú verið endur- vakinn en gerð hans tekur að jafnaði nokkur ár enda samanstendur hann af mörgum hlutum svo sem upp- hlut, skyrtu, undirpilsi, millipilsi, samfellu og svuntu, treyju, kraga og krókfald eða spaðafald. Margt af þessu er skreytt útsaumi, svo sem blómstursaumi og baldýringu eða flauelsskurði og perlusaumi. Útlit faldbúninga er fjölbreytilegt sem gerir hverjum og einum kleift að velja sér handverksverkefni eftir eigin áhugasviði. Þjóðbúningurinn er augnayndi Þeir vita sem reynt hafa að þjóð- búningasaumur er með því allra skemmtilegasta sem hægt er að taka sér fyrir hendur og ekki skemmir fyrir að vera í góðum félagsskap. Þjóðbúningarnir okkar eru sann- kallað augnayndi og eykur það enn á ánægjuna að skrýðast búningi sem maður hefur sjálfur saumað. Þrjár námskeiðshelgar hafa verið dagsettar á vorönn. Hafi nýir nem- endur áhuga á að bætast í hópinn er hægt að leita frekari upplýsinga hjá Heimilisiðnaðarfélaginu og Handraðanum. Nánari upplýsingar veitir: Margrét Valdimarsdóttir, formaður Heimilisiðnaðarfélags Íslands, net- fang: margretvaldimarsd@gmail. com / hfi@heimilisidnadur.is, sími 848 0683. Jólaheimur Flóra Icelandic Design Austfirska hönnunarfyrirtækið Flóra Icelandic Design kynnir nýja jólalínu sem inniheldur rammaþrykkt viskastykki og tauservíettur auk jólakerta. Ingunn Þráinsdóttir (grafískur hönnuður B.Des.), hönnuður Flóru, teiknar öll mynstur og útfærir, auk þess að þrykkja allt sjálf undir hönnunarhugsuninni „slow des- ign“. Nýju vörurnar auk margra annarra vöruflokka frá Flóru má nálgast í versluninni Fóu, Laugavegi 2 í Reykjavík og í Húsi Handanna á Egilsstöðum. Auk þess er hægt að versla beint af hönnuði í gegnum Fb-síðuna Flora Icelandic Design, en þar má einnig sjá úrval ljósmynda af ýmsu skemmtilegu frá þessu ferska, austfirska fyrirtæki. Bændablaðið Kemur næst út 14. janúar 2016

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.