Bændablaðið - 17.12.2015, Qupperneq 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
Starfsmenn Lífeyrissjóðs bænda á gömlu skrifstofu framkvæmdastjórans í Bændahöllinni. Ólafur K. Ólafs, Borghildur Jónsdóttir, Áslaug Jóhannsdóttir, Kristín Margrét Kristjánsdóttir og Sigrún
Guðjónsdóttir. Myndir / HKr.
Lífeyrissjóður bænda fluttur úr Bændahöllinni eftir nærri 20 ára veru:
Bæði tilhlökkun og söknuður segja starfsmenn sjóðsins
− flutt til að rýmka fyrir fjölgun herbergja á hótelinu sem taka á í gagnið í vor
Lífeyrissjóður bænda hefur flutt
starfsemi sína úr Bændahöllinni
þar sem hann hefur verið með
aðsetur í hartnær 20 ár. Ástæðan er
að breyta á þeirri hæð Hótel Sögu
í hótelherbergi, þar sem sjóðurinn
var með starfsemi sína.
Nýtt aðsetur sjóðsins frá 30. nóv-
ember síðastliðnum er við Grafarvog
að Stórhöfða 23 í Reykjavík, í sama
húsi og MAST. Þá hefur sjóðurinn
fengið nýtt símanúmer, 563-1300.
Ólafur K. Ólafs, framkvæmda-
stjóri LSB, segir að komið hafi
til álita að flytja starfsemina
á milli hæða í Bændahöllinni.
Bændasamtökin hafi m.a. verið
reiðubúin að fara í talsverðar fram-
kvæmdir á annarri hæð hússins til að
svo mætti vera. Rúmbetra húsnæði,
sem var sniðið fyrir skrifstofu-
rekstur af þessum toga, hafi hins
vegar boðist við Stórhöfða.
„Að athuguðu máli var niður-
staðan sú að heppilegra væri til
lengri tíma litið að flytja í það hús-
næði,“ sagði Ólafur. „Við erum líka
mjög ánægð með að hótelið sé að
nýta sér þá stöðu í vaxandi ferða-
mannaþjónustu að fjölga hótelher-
bergjum og auka við starfsemi sína.
Við höfum því væntingar til þess
að þetta muni reynast hótelinu vel
til framtíðar og styrkja starfsem-
ina og efla hag Bændasamtakanna
um leið. Um leið og það er ánægja
og tilhlökkun fólgin í flutningun-
um, þá söknum við verunnar í
Bændahöllinni.“
Borghildur Jónsdóttir bókari
hefur starfað lengst allra starfsmanna
hjá sjóðnum. Hún segir að sjóðurinn
hafi verið til húsa á nokkrum stöð-
um í gegnum tíðina. Hann hafi áður
verið í Bændahöllinni en flutti síðan
á Kirkjusand, þar sem Íslandsbanki
er nú, og síðan í Hús verslunarinnar.
„Það var svo í febrúar 1996
að sjóðurinn flutti úr Húsi versl-
unarinnar í Bændahöllina,“ segir
Borghildur en það var stuttu eftir
að hún hóf störf hjá sjóðnum. Nú er
aftur búið að flytja og segir hún að
rúmt sé um þau á nýja staðnum, en
samt sé ákveðin eftirsjá að fara úr
Bændahöllinni. Ekki síst að yfirgefa
kunningja og vini til margra ára.
Fyrir mörgum árum, á meðan
Lífeyrissjóður bænda var á 3.
hæðinni í Bændahöllinni, var farið
í framkvæmdir á hæðinni í norð-
urálmu byggingarinnar, en þá var
verið að leggja lagnir í gólf til að
gera klárt fyrir gistiherbergi síðar.
Borghildur segir að á þeim tíma
hafi starfsfólkið hjá sjóðnum orðið
að vera með eyrnatappa til að þola
hávaðann af múrbroti sem þar fór
fram.
„Það var ekki einu sinni hægt að
tala í síma,“ sagði Borghildur.
Það er svo ekki fyrr en nú, mörg-
um árum seinna, að hafist er handa
við að ljúka verkinu og setja upp 27
herbergi sem eiga að vera tilbúin til
útleigu í vor.
Á þessari hæð, norðurálmu
Bændahallarinnar, hafa skrifstofur
hótelsins líka verið. Sú starfsemi var
flutt í síðustu viku á sama gang og
skrifstofur Bændasamtaka Íslands.
Ólafur segir að öll þessi ár sem
sjóðurinn hafi verið með starfsemi
í Bændahöllinni hafi samstarfið við
starfsfólk Bændasamtakanna og hót-
elsins verið til mikillar fyrirmyndar
og munu starfsmenn sjóðsins vera
áfram félagar í Almenningi, starfs-
mannafélagi samtakanna. /HKr.
Allt að verða tómt á gamla staðnum ...
... þá er bara að trilla restinni á nýja staðinn.
Síðustu handtökin geta verið drjúg.