Bændablaðið - 17.12.2015, Page 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
Ivel-dráttarvélin er
fyrsti smátraktor-
inn sem settur var á
markað. Fyrsta vélin
sá dagsins ljós 1902,
heilum áratug á undan
Fordson og þremur
áratugum á undan
fyrsta Fergussoninum.
Bretinn Daniel
Albone, hönnuður Ivel
dráttarvélanna,var með
tækjadellu frá unga aldri
og smíðaði hann sitt fyrsta reiðhjól
þrettán ára gamall sem hann tók
þátt í reiðhjólakeppnum á og vann
margar þeirra. Tvítugur hóf hann
framleiðslu á reiðhjólum, bæði
tví- og þríhjólum undir heitinu
Ivel Cycle Works í Bedford-skíri
á Englandi. Nafnið Ivel er dregið
af á sem rann skammt frá þeim
stað sem Alborne bjó.
Fyrirtækið var líklega það
fyrsta til að setja á markað sérstök
reiðhjól fyrir konur sem einu sinni
voru kölluð stelpuhjól.
Lítill og meðfærilegur
Fyrsti mótorinn sem
Albone smíðaði var þrjú
hestöfl og nánast eftirlík-
ing á eins strokka mótor
frá hinum þýska Benz.
Mótorinn var prófaður
í bifreiðum sem Albone
framleiddi og minni
útgáfa, 1,5 hestöfl, not-
aður sem hjálparmótor á
reiðhjól.
Frumtýpa Iver drátt-
arvéla var smíðuð 1902
en vélin fór á markað árið 1903.
Dráttarvélin þótti á þeim tíma
einstaklega lítil og meðfærileg og
hentug til flestra verka á býlum
í byrjun tuttugustu aldarinnar.
Traktorinn var á þremur gegnheil-
um gúmmíhjólum með tveggja
strokka dísilvél, 20 hestöfl og vó
1650 kíló sem þótti létt. Vélin var
tveggja gíra, einn áfram og einn
afturábak.
Silfur og gull
Hönnun fyrstu Ivel dráttarvélanna
þótti það góð að strax á fyrsta ári
sem hún var á markaði vann hún
til silfurverðlauna á Konunglegu
landbúnaðarsýningunni og aftur
1904. Árið 1905 fékk hún svo
gullið á Chester plægingar- og
jarðvinnslumótinu.
Albone var frumlegur sölu-
maður og á hálfs
mánaðar fresti hélt
hann sýningar á landi
sínu þar sem dráttarvél-
arnar voru látnar leysa
þrautir. Bílstjórarnir og
aðstoðarmenn þeirra
voru klæddir upp í
jakkaföt og með kúlu-
hatt og nutu sýningarn-
ar talsverðra vinsælda
sem mannamót.
Dan Albone lést 46
ára að aldri 1906 og
þrátt fyrir að rekstur
fyrirtækisins hafi verið haldið
áfram bar það aldrei sitt barr eftir
það og koðnaði niður.
Um 500 Ivel traktorar voru
framleiddir og fluttir út til átján
landa. Verð fyrir dráttarvélina var
300 ensk pund sem þótti umtals-
verð upphæð á sínum tíma
en fyrirtækinu tókst ekki að
halda í við keppinauta sína
á markaði. Smám saman
dróst það aftur úr og var
yfirtekið af United Motor
Industries Ltd. árið 1921 og
sama ár var framleiðslu Ivel
dráttarvéla hætt.
Áhrif langt fram í tímann
Þrátt fyrir að hafa ekki verið í
framleiðslu nema í 15 ár lifði
hönnun Ivel dráttarvélanna langt
fram yfir líftíma framleiðslunn-
ar og var hún fyrirmynd margra
minni véla, eins og Fordson og
Ferguson, sem áttu eftir að sjá
dagsins ljós á næstu áratugum.
/VH
Ivel – fyrsti smátraktorinn
Utan úr heimi
Árið 2015 var tileinkað jarðvegi
og nú þegar það er senn á enda
er vert að kynna lítillega nýja og
áhugaverða kenningu um upp-
runalega myndun hans.
Stjörnufræðingar og jarðvísinda-
menn áætla að jörðin sé um 4,54
milljarða ára gömul en jarðvegur
kom ekki fram á sjónarsviðið fyrr
en fyrir um 450 milljón árum.
Fram til þessa hefur tilkoma jarð-
vegs verið skýrð með því að vatn
hafi á milljónum ára veðrað berg
og smám saman breytt því í jarðveg.
Ný tilgáta varpar aftur á móti fram
þeirri hugmynd að myndun jarðvega
hefjist þegar plöntur flytjast úr haf-
inu og skjóta rótum á landi.
Með tilkomu plantna á landi hófu
þær að binda gríðarlegt magn koltví-
sýrings úr andrúmslofti í jarðveg.
Bindingin olli kólnun andrúmslofts-
ins og myndun jökla sem muldu
berg mun hraðar en vatnið áður.
Lífrænar leifar lífvera blönduðust
síðan berginu og úr varð lífrænn
jarðvegur.
Rætur plantna áttu síðan stóran
þátt í að mynda árfarvegi og mótun
landslags með því að beina vatni
í ákveðinn farveg í gegnum rótar-
ganga og með jarðvegsbindingu.
Útkoman var sú að lífið á jörðinni
dafnaði sem aldrei fyrr, dýrum fjölg-
aði og fjölbreytni lífvera margfald-
aðist. Síðustu áratugi hefur þessi
þróun verið að snúast við og í dag
er svo komið að tæplega 40% af
fyrsta flokks gróður- og ræktarlandi
hefur glatast vegna uppblásturs eða
jarðvegsmengunar.
Er ekki kominn tími til að
veita jarðveginum á jörðinni meiri
athygli, vernda og endurheimta hann
og tryggja þannig að lífið verði fjöl-
breytilegra og fallegra? /VH
Ár jarðvegsins 2015:
Ný tilgáta um myndun jarðvegs
Rætur plantna áttu síðan stóran þátt í að mynda árfarvegi og mótun lands-
lags með því að beina vatni í ákveðinn farveg í gegnum rótarganga og með
jarðvegsbindingu.
Parísarráðstefnan og losun gróðurhúsalofttegunda:
30% af losun gróðurhúsaloft-
tegunda frá landbúnaði
Útreikningar sýna að landbún-
aður og matvælaframleiðsla
losar um 30% af þeim gróður-
húsalofttegundum sem losna
út í andrúmsloftið á hverju ári.
Matvælafyrirtækin Cargill, Tyson
og Yara losa meira en ríki eins og
Holland, Víetnam og Kólumbía.
Brennsla á jarðefnaeldsneyti og
kolum er meginástæða losunar gróð-
urhúsalofttegunda út í andrúmsloft-
ið og umræðan fram til þessa hefur
aðallega verið hvernig draga megi úr
brennslu þeirra en það er fleira sem
hangir á spýtunni.
Nýlegir útreikningar benda til að
landbúnaður og matvælaframleiðsla
í heiminum losi um 30% gróður-
húsalofttegundanna. Bent hefur
verið á að þrjú risafyrirtæki á sviði
matvælaframleiðslu, Tyson, Carrill
og Yara, losi meira hvert fyrir sig
með framleiðslu sinni en lönd eins
og Holland, Víetnam og Kólumbía.
Tyson er stærsti kjötframleiðandi í
Bandaríkjunum með um 24% mark-
aðshlutdeild. Cargill framleiðir meðal
annars fóðurbæti og Yara áburð.
Losum margfalt meiri
en upp er gefið
Samkvæmt lögum í Bandaríkjunum
þurfa fyrirtækin einungis að gefa upp
losun gróðurhúsalofttegunda sem
tengist lokastigi framleiðslu þeirra.
Uppgefin losun Cargill er gefin um
15 milljón tonn, Tyson 5 milljón
tonn og Yara 12,5 milljón tonn. Sé
allt framleiðsluferli fyrirtækjanna
reiknað er nær að losun Cargill sé
145 milljón tonn, Tyson 34 milljón
tonn og Yara 75 milljón tonn.
Í tilfelli Cargill eru þau 130 millj-
ón tonn sem vantar upp á uppgefna
tölu í magni á losun gróðurhúsa-
lofttegunda sambærileg við saman-
lagða losun Danmerkur, Búlgaríu og
Svíþjóðar.
Toppurinn á ísjakanum
Þeir sem harðast gagnrýna matvæla-
fyrirtækin segja löngu orðið tímabært
að þau axli ábyrgð á losuninni og
þrátt fyrir að Cargill, Tyson og
Yara séu tekin sem dæmi þá séu
þau einungis toppurinn á ísjakanum
þegar kemur að losun gróðurhúsa-
lofttegunda fyrirtækja í matvæla-
iðnaði.
Könnun sem var gerð í tengsl-
um við öflun gagna vegna útreikn-
inganna sýnir að einungis fjórð-
ungurfyrirtækja í heiminum, sem
framleiða matvæli, drykkjarvöru
og tóbak, gefa upp magn losaðra
gróðurhúsalofttegunda við fram-
leiðslu sína. /VH
Könnun sýnir að einungis fjórðungur fyrirtækja í heiminum sem framleiða
matvæli, drykkjarvöru og tóbak gefa upp magn losaðra gróðurhúsaloftteg-
unda við framleiðslu sína.