Bændablaðið - 17.12.2015, Síða 76

Bændablaðið - 17.12.2015, Síða 76
76 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015 Íslensku jólasveinarnir: Einn er þekktur gluggagægir Síðasti jólasveinninn kemur til byggða á aðfangadag og á jóladag leggur sá fyrsti af stað aftur til síns heima. Einu sinni á ári gera þess- ir skrýtnu kallar sér ferð í bæinn með tilheyrandi hlátrasköllum, hurðaskellum og fíflalátum. Jólasveinarnir eru synir Grýlu og Leppalúði er að öllum líkindum faðir þeirra, en Grýla var ekki við eina fjölina felld því áður en hún kynntist Lúða átti hún vingott við Bola og Gust og átti með þeim fjölda tröllabarna. Í dag eru flestir sammála um að jólasveinarnir séu þrettán og heiti Stekkjarstaur, Giljagaur, Stúfur, Þvörusleikir, Pottasleikir, Askasleikir, Hurðaskellir, Skyrgámur, Bjúgnakrækir, Gluggagægir, Gáttaþefur, Ketkrókur og Kertasníkir. Síðustu áratugi hafa jólasveinarn- ir fært börnunum eitthvað í skóinn og gefið þeim sælgæti á jólaskemmtun- um. Ímynd jólasveinsins hefur breyst mikið með árunum en áður voru þeir tröll og mannætur. Illir að eðlisfari Sigfús Sigfússon, sem einkum safn- aði þjóðsögum á Austurlandi, sagði að jólasveinarnir væru í manns- mynd, klofnir upp í háls, með klær fyrir fingrum, kringlótta fætur og engar tær. „Þeir eru illir að eðlis- fari og líkastir púkum og lifa mest á blótsyrðum manna og óvönduðum munnsöfnuði og eru rógsamir og rángjarnir, einkum á börn.“ Í dag líkjast þeir fremur fíflaleg- um miðaldra offitusjúklingum, hall- ærislegum trúðum eða búðarfíflum en ógnvekjandi tröllum. Litlipungur og Örvadrumbur Nöfn jólasveinanna hafa ekki alltaf verið þau sömu og í dag og áður gengu þeir undir ýmsum nöfnum sem oft og tíðum voru staðbundin. Dæmi um það er að í Fljótunum koam fyrir nöfn eins og Pönnuskuggi, Guttormur, Bandaleysir, Lampa skuggi og Klettaskora. Í Mývatnssveit þekkt- ust nöfnin Flórsleikir og Móamangi. Á Ströndum voru jólasveinarnir þrettán eða fjórtán og báru önnur nöfn sem koma fram í eftirfarandi nafnaþulum: Tífall, Tútur Baggi, Lútur Rauður, Redda Steingrímur, Sledda Lækjaræsir, Bláminn sjálfur Blámans barnið Litlipungur, Örvadrumbur. Tífall og Tútur, Baggi og Hrútur, Rauður og Redda, Steingrímur og Sledda, sjálfur Bjálfinn og Bjálfans barnið, Bitahængir, Froðusleikir, Gluggagægir og Styrjusleikir. Fara um með ránum og hrekkjum Skömmu eftir að kristni var lög- tekin hér á landi bjó maður sem hét Steinn fyrir austan. Kona hans hét Guðrún og þau áttu tvö börn, Illuga og Sigríði. Guðrún var guðhrædd og kirkjusækin en Steinn fremur gef- inn fyrir forneskju. Einu sinni þegar Guðrún var á leið til messu á jólunum biður hún Stein að fylgja sér. Hann tók því illa, segist þó munu gera það en ekki vera við tíðir. Steinn fylgir konu sinni á áfangastað en heldur svo heim. Þegar kona hans kemur heim daginn eftir lá Steinn í rúminu og var fámáll en segir: „eigi veit ég hvort ég hefði svo fljótt aftur horfið í gærkveldi ef ég hefði þá vitað það sem ég veit nú“. Leið nú fram að næstu jólum og biður Guðrún bónda sinn aftur að fylgja sér til kirkju og gerir hann það ásamt Illuga syni þeirra. Þegar þau koma að kirkjunni biður Steinn Illuga að fylgja sér aftur heim og segir að hann þurfi að sýna honum nokkuð. Feðgarnir halda heim og þegar þangað er komið ganga þeir í skemmuna og bíða þar um stund. Skömmu seinna sýnist Illuga að stafninn á skemmunni hverfi og inn gangi tveir hvítklæddir menn með líkkistu og fjöldi anda í humátt á eftir þeim. Andarnir spyrja hvítklæddu mennina frétta af mönnum, bæði góðum og vondum, en aðallega voru þeir forvitnir um börn. Illuga fannst standa kaldur gustur af öndunum og heyrði á tali þeirra að þeim geðj- aðist einkum að illum mönnum og guðlausum. Seinna þegar Illugi sagði frá atburðinum könnuðust menn við andana og kölluðu þá jólasveina og sögðu þá illa og ganga um byggðir um jólin með ránum og hrekkjum, einkum við börn. Koma á selskinnsbátum Að sögn Sigfúsar Sigfússonar koma jólasveinarnir til landsins í byrjun jólaföstunnar á „selskinnsbátum vestan frá Grænlandsóbyggðum eða, að sumra sögn, austan frá Finnmörk og kalla sumir byggðar- lag þeirra Fimnam. Þeir leggja að landi í leynivogum undir ófærum og geyma báta sína í hellum og halda huldu yfir þeim uns þeir fara aftur nærri þrettánda.“ Sigfús segir jólasveinana skipta sér á bæi þegar þeir koma að landi og „hér þekkjast þeir oft varla frá púkum og árum af verknaði sínum og eru illkaldir sem hafís og heljur. [. . .] Jólasveinar eiga kistur sem þeir bera menn á brott í.“ Kattarvali kaffærður í fjóshaugnum Í þjóðsagnasafni Sigfúsar er meðal annars að finna eftirfarandi sögu um viðureign jólasveinsins og manns á bænum þar sem jólasveinninn hélt til um jólin. „Einu sinni var maður á ferð og kom að læk eða á. Sá hann að þar sátu margir menn í röð við ána og héldu allir á sömu þurrkunni og þurrkuðu sér allir í einu á henni þegar þeir höfðu þvegið sér. Sá maðurinn, þegar hann gætti betur að, að þetta voru allt jólasveinar og bjuggu sig undir vist- arverur sínar. Einn þeirra lenti auð- vitað á heimili hans. Maðurinn var fjósamaður. Hann var orðgætinn og stilltur maður og því ekki neinn vinur jólasveinsins. Einu sinni mættust þeir í fjósdyrum og ræður jólasveinninn á fjósakarl. Eigast þeir lengi við allt þangað til fjósakarl hefur hann undir og kaffærir hann í fjóshaugnum. Þá æpir jólasveinninn hátt og kvað við: Kattarvali, kom þú hér, kæri bróðir, hjálpa mér. Heyrðist fjósakarli tekið undir. Kom þá jólasveinninn sem var á hinu búinu og varð fjósamaður að flýja. En aldrei áttust þeir oftar við svo getið sé.“ Að draga jólasveina og jólameyjar Jónas Jónsson frá Hrafnagili segir frá einkennilegri jólaskemmtun í bók sinni, Íslenzkir þjóðhættir, en leik- urinn virðist til þess gerður að para ungt fólk um jólin, svipað því og gert var í leikbrúðkaupum sem tengdust vikivakaleikum. „[. . .] víða tíðkast, að rita upp á miða alla þá, sem koma á jólaföst- unni og fram á aðfangadag. Þetta heita jólasveinar og jólameyjar. Svo er dregið um miðana á jólanóttina, konur draga drengi, en piltar stúlk- ur. Ef margir hafa komið, falla mörg nöfn í hlut, og dregur þá hver einn miða úr sínum hóp, og verður það, sem hann eða hún hlýtur, hans eða hennar jólamey eða jólasveinn um jólin. Stundum gefur þá einn heima- manna, sem til þess er kjörinn, allar persónurnar saman með því að lesa upp vísu úr einhverri ljóðabók, sem hann flettir upp í blindni.“ Þekktur gluggagægir Upp úr miðri síðustu öld fara jóla- sveinarnir að taka á sig alþjóðlega mynd rauðhvíta jólasveinsins. Þeir verða vinir barnanna og færa þeim gjafir í skóinn síðustu dagana fyrir jól og eru ómissandi á jólaskemmtunum. Íslensku jólasveinarnir hafa haldið þeim sið að vera hávaðasamir og hrekkjóttir og ekki er laust við að börn séu enn hrædd við þá. Hræðsla barnanna er fullkomlega eðlileg. Fullorðið fólk hikar ekki við að segja börnunum að þessir ókunnugu ríflega miðaldra offitusjúklingar, sem ganga um í skrýtnum rauðum fötum, komi í herbergið til þeirra á nóttinni og taki óþekk börn og þau sem ekki vilja fara snemma í rúmið. Einn þeirra er meira að segja þekktur gluggagægir. Gleðileg jól! /VH Íslensku jólasveinarnir hafa haldið þeim sið að vera hávaðasamir og hrekkjóttir og ekki er laust við að börn séu enn hrædd við þá. Hræðsla barnanna er fullkomlega eðlileg þar sem einn þeirra er þekktur gluggagægir. Upp úr miðri síðustu öld fara jólasveinarnir að taka á sig alþjóðlega mynd rauðhvíta jólasveinsins. Hér er jólamyndagáta fyrir alla kláru krakkana á Íslandi.Fullorðnir eru vinsamlegast beðnir um að trufla unga fólkið sem minnst við lausn gátunnar, enda vart á færi annarra en ungra snillinga að ráða slík verkefni. Til að gefa fólki smá innsýn í um hvað þessi myndagáta snýst þá er lausnin þekkt orðatiltæki sem börnum var allavega tamt að nota í stríðnistón. Þegar lausnin er komin er æskileg- ast að hún sé send í gegnum tölvu á netfangið; getraun@bondi.is fyrir hádegi 9. janúar 2016 og sé merkt á eftirfarandi hátt: Í „Subject“ gluggann skal skrifa Barnamyndagáta. Síðan þarf að koma fram í póstinum sjálfum, nafn sendanda og heimilisfang ásamt auðvitað lausnarorðum gátunnar. Veitt verða fern vegleg bóka verðlaun frá bókaforlaginu Sölku fyrir réttar lausnir. Dregið verður af handahófi úr innsendum lausnum síðdegis þann 9. janúar og verða nöfn hinna heppnu birt í Bændablaðinu 14. janúar 2016. Ef fólk hefur alls ekki tök á að senda lausnina í gegnum tölvu, þá má senda hana í bréfapósti merkt: Bændablaðið - Jólamyndagáta Bændahöllinni við Hagatorg 107 Reykjavík. Barnamyndagáta
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.