Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Qupperneq 9
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 2010 5
Ef tekið er með í umræðuna það sem er kallað annars og þriðja stigs forvarnir er
ljóst að þær eru mjög stórt atriði í heilbrigðisþjónustunni.
En betur má ef duga skal. Yfir okkur vofa mjög stór lífsstílsvandamál sem geta
orðið heilbrigðiskerfinu ofviða á næstu áratugum. Leiðin til þess að ráða bug á
þeim er ekki að meðhöndla afleiðingar þeirra heldur að koma í veg fyrir að lífsstíll
verði að sjúkdómi. Um þetta er hægt að lesa bæði beint og milli lína í blaðinu.
Í einni grein er spurt hvort forvarnarstarf og sér í lagi áróður fyrir lífsstílsbreytingum
skili viðhlítandi árangri og hvort ekki megi draga lærdóma af markaðsfræði og
fleiri fræðigreinum til þess að efla það starf. Heilsuefling er auðvitað ekkert annað
en forvarnir og er ýtarleg grein í blaðinu um heilsueflingu í litlum og meðalstórum
fyrirtækjum.
Þá langar mig að benda á grein um útiveru og vellíðan á hjúkrunarheimili og einnig
á umfjöllun um útiveru geðsjúklinga í viðtali við Báru Ketilsdóttur. Hreyfing er allra
meina bót, segja menn, og kemur greinilega fram hér að hún virðist að minnsta
kosti hjálpa til við að lina depurð og fleiri andlega kvillur.
Margt bendir til að umræður um forvarnir séu að styrkjast í samfélaginu. Í viðtali við
Gísla Níls Einarsson kemur til dæmis fram að að minnsta kosti eitt tryggingarfélag
hefur sett þetta mál á oddinn. Þá vil ég einnig benda á fréttapunkt þar sem sagt
er frá nýrri vefsíðu um lífsstílsbreytingar.
Nú stendur til að sameina landlæknisembættið og Lýðheilsustöð. Úr því gætu
orðið til skýr sýn og kröftug hreyfing í forvarnarmálum. Margir í samfélaginu eru
til í að leggja þessari hreyfingu lið og ef vel tekst til gætu Íslendingar náð langt á
næstu árum.
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 6405
Bréfsími 540 6401
Netfang christer@hjukrun.is
Vefsíða www.hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Sími skrifstofu 540 6400
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Christer Magnusson
Ritstjórnarfulltrúi
Sunna K. Símonardóttir
Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu
christer@hjukrun.is.
Leiðbeiningar um ritun fræðslu og fræðigreina er
að finna á vefsíðu tímaritsins.
Ritnefnd:
Ragnheiður Alfreðsdóttir, formaður
Auðna Ágústsdóttir
Brynja Ingadóttir
Dóróthea Bergs
Herdís Sveinsdóttir
Hildur Magnúsdóttir
Sigríður Skúladóttir
Ráðgjafi vegna handrits í ritrýni:
Árún K. Sigurðardóttir
Fréttaefni:
Aðalbjörg Finnbogadóttir, Christer Magnusson,
Jón Aðalbjörn Jónsson
Ljósmyndir:
Christer Magnusson, Jean Gagnon,
Sigurður Bogi Sævarsson o.fl.
Próförk: Ragnar Hauksson
Auglýsingar:
Þórdís Gunnarsdóttir, sími 866 3855
Hönnun: Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður, FÍT
Prentvinnsla: Litróf
Upplag 4000 eintök
Pökkun og dreifing: Pósthúsið
FORVARNIR ERU MÁLIÐ
Í þessu tölublaði er talsvert fjallað
um forvarnir. Líklega eru for
varnir stórlega vanmetnar meðal
almennings. Oftast hugsa menn
bara um það sem fagmenn kalla
fyrsta stigs forvarnir.
Christer Magnusson.
Ritstjóraspjall