Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Blaðsíða 34
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 201030
Aðalbjörg Finnbogadóttir, adalbjorg@hjukrun.is
Í KJÖLFAR MÁLÞINGS UM ÖRYGGI SJÚKLINGA
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stóð fyrir opnu
málþingi um öryggi sjúklinga á Grand hóteli í
Reykjavík 28. janúar sl. Tilgangurinn var meðal
annars að skapa vettvang til að skoða og ræða
hugsanleg áhrif samdráttar í heilbrigðisþjónustu
á skjólstæðinga hjúkrunarfræðinga.
Í siðareglum hjúkrunarfræðinga segir
meðal annars: „Hjúkrunarfræðingur
er málsvari skjólstæðings og stendur
vörð um rétt hans. Hann ber hag
skjólstæðings fyrir brjósti hvar sem
starfsvettvangur hans er.“ Enn fremur
segir: „Hjúkrunarfræðingur vekur
athygli á því ef ráðstafanir stjórnvalda
og annarra stjórnenda ganga gegn
hagsmunum skjólstæðings. Ef heilbrigði
eða öryggi skjólstæðings er stefnt í hættu
vegna ófaglegra eða ólöglegra starfa
samstarfsfólks ber hjúkrunarfræðingi að
tilkynna það viðeigandi aðilum.“ Það var
meðal annars á þessum forsendum sem
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga boðaði
til málþingsins.
Anna Björg Aradóttir, yfirhjúkrunarfræðingur og sviðstjóri gæða og lýðheilsusviðs hjá
Landlæknisembættinu, fór yfir eftirlitshlutverk embættisins á málþinginu um öryggi sjúklinga.
Öryggi sjúklinga
Málþinginu var ætlað að vera vettvangur
upplýsingaöflunar og umræðna um
öryggi sjúklinga svo og að minna á
skyldu hjúkrunarfræðinga og annarra
heilbrigðisstarfsmanna að láta frá sér
heyra ef þeir telja að öryggi sjúklinga sé
á einhvern hátt ógnað.
Til að ræða öryggi sjúklinga voru fengnir
fimm hjúkrunarfræðingar sem fjölluðu um
efnið hver frá sínum starfsvettvangi. Þeir
voru Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunar og
framkvæmdastjóri Sóltúns – hjúkrunarheimilis,
Bylgja Kærnested, formaður hjúkrunarráðs
Landspítala, Steinunn Sigurðardóttir, fram
kvæmda stjóri hjúkrunar á Heilbrigðis stofnun
Vestur lands, Halla Eiríksdóttir, hjúkrunar
stjóri Heilbrigðisstofnunar Austur lands, og
Anna Björg Aradóttir, yfirhjúkrunar fræðingur
og svið stjóri gæða og lýðheilsusviðs hjá
Land læknisembættinu. Að loknum fram
söguerindum sátu þær fyrir svörum og tóku
þátt í almennum umræðum, ásamt Elsu
B. Friðfinnsdóttur formanni Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
Eftirlitshlutverk
Landlæknisembættisins
Anna Björg Aradóttir yfirhjúkrunar
fræðingur ræddi um öryggi sjúklinga út frá
eftirlitshlutverki Landlæknisembættisins. Í
erindi sínu, sem hún nefndi „Göngum
saman til góðs, götuna fram eftir veg –
Leiðin að öruggari heilbrigðisþjónustu“
lagði hún áherslu á að leita skuli jákvæðra
lausna. Í máli hennar kom fram að markmið
Landlæknisembættisins sé að tryggja
gæði heilbrigðisþjónustunnar og stuðla
að heil brigði landsmanna. Meginhlutverk
embættisins sé þríþætt, þ.e. ráðgjöf, eftirlit
og upplýsingasöfnun. Samkvæmt lögum
um heilbrigðisþjónustu (nr. 41/2007)
hefur Landlæknisembættið faglegt eftir
lit með starfsemi heilbrigðisstofnana
og heil brigðisstarfsmanna. Eftirlit Land
læknis embættisins byggist á þeirri hug
myndafræði að árangursríkasta leiðin
til að bæta gæði þjónustunnar sé að
efla samstarf og samráð við stjórnendur
og starfsfólk heilbrigðisstofnana, veita
ráðgjöf varðandi úrbætur og á þann
hátt hvetja til góðra verka. Markmið
embættisins er að sjá til þess að sú
heilbrigðisþjónusta, sem veitt er hér á
landi, uppfylli faglegar kröfur og ákvæði
heilbrigðislöggjafar hverju sinni og að
sjúklingurinn sé ætíð settur í öndvegi.
Sérstakar áherslur vegna
efnahagsþrenginga
Vegna núverandi efnahagsástands er
mikilvægara en nokkru sinni að hafa virkt
eftirlit með heilbrigðisþjónustunni þar sem
öryggi og gæðum þjónustunnar getur verið