Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Blaðsíða 19

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Blaðsíða 19
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 2010 15 heimilið, samveru úti á svölum auk bíltúra innan og utan bæjar, til dæmis út í Gróttu og upp í Heiðmörk. Ástæða þessa var sú að nýleg rannsókn gaf til kynna að útivera íbúa á hjúkrunarheimilum mætti vera meiri (Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir, 2005) auk þess sem nokkrir íbúar deildarinnar gátu lítinn þátt tekið í skipulagðri starfsemi sem fram fór á heimilinu vegna verkstols og annarra sjúkdómseinkenna sem fylgja heilabilunarsjúkdómum. Þeir gátu hins vegar tekið þátt í útiveru. Ákveðið var því að setja útiveru á dagskrá alla virka daga, fyrir alla, eftir aðstæðum. Aðstandendur íbúa og stoðdeildir heimilisins tóku einnig þátt í þessu verkefni með starfsmönnum deildarinnar. Aðferð Allar fyrri RAI­matsskýrslur fyrir íbúa á tilraunadeildinni á Sóltúni árin 2006 til 2008 voru skoðaðar sérstaklega með tilliti til þunglyndiseinkenna. Alls voru matsskýrslur 271 (Heilbrigðisráðuneytið, 2009). Mat fór fram á sama einstaklingi oftar en einu sinni ef hann var á deildinni öll tímabilin. Kannað var hversu algengt þunglyndi var og borið saman á milli ára og á milli sambýla á deildinni en sambýlin eru fjögur, átta manna hvert. Þunglyndis- og kvíðateymi Fjölmörg þverfagleg gæðateymi eru starfandi undir stjórn hjúkrunarstjóra gæðamála á Sóltúni, Guðrúnar Bjargar Guðmundsdóttur. Hlutverk gæðateyma er að meta gæði starfseminnar með skipulögðum, reglubundnum hætti. Gæðateymin skrá úttektir og gera áætlanir um úrbætur. Þau sjá um eftirfylgd með gæðaumbótastarfinu og miðla til annarra. Gæðateymin fara með ábyrgð á innra gæðaeftirliti hjúkrunar. Gæðateymisfundir með starfsfólki eru haldnir þrisvar á ári í framhaldi af niðurstöðum RAI­mats en matið fer fram í febrúar, júní og október. Í þunglyndis­ og kvíðateymi er farið yfir hverja deild og rýnt í einstaklingana sem eru með þunglyndiseinkenni. Hver hjúkrunarfræðingur skoðar sína deild og nöfn þeirra sem eru með einkenni samkvæmt RAI­matstækinu. Gerð er hjúkrunargreining og meðferð sett af stað fyrir hvern og einn þeirra í samvinnu við stoðdeildir og lækna. Þeir sem eru með tvo eða hærri tölu á þunglyndiskvarða RAI­ matstækisins litast rauðir þannig að auðvelt er að greina þá. Athyglisvert er að árið 2009 mátti sjá að þunglyndiskvarðinn sýndi minna þunglyndi í júní en í október og febrúar sem kom verst út. Minna þunglyndi á sumrin getur skýrst af meiri útiveru og dagsbirtu á þeim árstíma en á haustin og veturna. Í þunglyndis­ og kvíðateymi eru auk Guðrúnar Bjargar Guðmundsdóttur hjúkrunarstjóra þau Pálína Skjaldardóttir hjúkrunarfræðingur, Harpa Karlsdóttir hjúkrunarfræðingur, Júlíana Sigurveig Guðjóns dóttir hjúkrunarstjóri, Jóna Siggeirs ­ dóttir hjúkrunarfræðingur, Jón Jóhanns son djákni, Hulda Salómonsdóttir sjúkraliði og Aðalbjörg Íris Ólafsdóttir sjúkraþjálfari. Mynd 1 sýnir breytinguna á árunum 2006­2008. Til viðmiðunar er sýnd niðurstaða frá árinu 2005 áður en inngrip hófust. Niðurstöður sýna að verulega fækkaði í hópi þeirra sem eru með þunglyndiseinkenni milli áranna 2006 og 2007 en síðan fjölgar þeim lítillega árið 2008. Markmið Sóltúns er að íbúar mælist með sem minnst þunglyndiseinkenni. Óraunhæft er talið að ekkert þunglyndi finnist í þessum hópi aldraðra sem farnir eru að heilsu. Gæðateymi Sóltúns hefur því sett fram gæðaviðmið um þunglyndiseinkenni. Lágmarksviðmið er 15% og hámarksviðmið 35%. Stefnt er að því að Sóltún mælist sem næst lágmarksviðmiði (Anna Birna Jensdóttir, 2009). Markmiðið er einnig að starfsmenn vinni að öflugu forvarnastarfi og noti sem flesta kosti sem Sóltún hefur upp á að bjóða: • Aðbúnaður innan sem utan dyra sé nýttur sem best. • Samverustundir. • Útivera og návist við gróður. • Líkamsrækt og þjálfun. • Sálgæsla. • Stuðningsviðtöl og hópastarf. • Símenntun fyrir alla, íbúa, aðstandendur og starfsfólk. • Fjölskyldufundir. • Geðlæknismeðferð. • Atferlismeðferð. • Lyfjameðferð. Stundum koma hestar og önnur dýr í heimsókn. Tíkin Stemma er heimilishundur í Sóltúni og oft með í göngu. 47% 26% 31% 50 45 40 35 20 25 20 15 10 5 0 47% Lágmarksvi›mi› Hámarksvi›mi› 2. hæ› 2005 2. hæ› 2006 2. hæ› 2007 2. hæ› 2008 Gæ›avísir Mynd 1. Algengi þunglyndiseinkenna árin 2005­2008.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.