Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Blaðsíða 22
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 201018
Sigurður Bogi Sævarsson, sigbogi@simnet.is
SÁLRÆNT AÐ SIGRA TINDINN
segir fjallgöngukonan Bára Agnes Ketilsdóttir hjá Gallerí Heilsu
Eftir að hafa starfað í mörg ár á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi ákvað Bára að
róa á ný mið. Hún nam mannauðsstjórnun
við Háskóla Íslands og reyndi síðan fyrir
sér á öðrum starfsvettvangi. En fyrr en
varði hafði hún látið gamlan draum rætast
um fjallgönguklúbb þar sem „safna“
skyldi fjöllum Íslands. Bára og eiginmaður
hennar, Örn Gunnarsson, stofnuðu í maí
2007 sitt eigið fyrirtæki, Gallerí Heilsu ehf.,
þar sem fjallgönguklúbburinn Toppfarar
Á göngu í Dyngjufjöllum þar sem var gengið umhverfis Öskjuvatn.
starfar en hann býður upp á skipulagðar
ferðir upp um fjöll og firnindi allt árið um
kring. Fyrirtækið rekur Bára jafnhliða því
sem hún starfar sem hjúkrunarfræðingur
á Kleppsspítala.
„Samanlagt er hópurinn um það
bil hundrað manns og nú er biðlisti í
klúbbinn,“ segir Bára sem er lærður einka
þjálfari ásamt manni sínum og hafa þau
lengi lagt stund á langhlaup til þess að
halda sér í góðu formi. „Útihlaupin hafa
kennt manni að það er sjaldnast slæmt
veður og alltaf hægt að fara út og hreyfa
sig á hvaða árstíma sem er. Náttúran er
tilvalinn vettvangur til líkamsræktar.“
84 fjöll í ár
Bára og Örn leggja áherslu á að fara
aldrei á fjöll með sitt fólk nema hafa sjálf
kannað allar aðstæður í þaula.
„Við þurfum ekki tæki og tól í líkamsræktarstöðvum til að halda okkur í góðu
líkamlegu formi. Útivera og ferðir upp um fjöll og firnindi eru heilnæmari,
hreina loftið og að vera úti í náttúrunni gerir okkur gott. Margir fara á
stöðvarnar meðal annars til að þjálfa læri og kálfa en ég tel hreyfingu úti við
og þar á meðal fjallgöngur í raun heilbrigðari þjálfun fyrir þessa vöðva eins
og svo margt annað. Fyrir utan hvað félagsskapurinn er góður,“ segir Bára
Agnes Ketilsdóttir hjúkrunarfræðingur.