Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Síða 33

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Síða 33
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 2010 29 • Ríflega helmingur svarenda starfar í vaktavinnu en 49,6% svarenda eru eingöngu í dagvinnu. • Tveir þriðju hlutar svarenda starfa á höfuðborgarsvæðinu og 27,9% á landsbyggðinni. • 40,5% svarenda hafa lokið formlegu viðbótarnámi í hjúkrun. • Meðalstarfshlutfall hjúkrunarfræðinga er skv. könnuninni 83,4% og hefur það aukist úr 74% áður. Þeir sem starfa einvörðungu í dagvinnu eru í hærra starfshlutfalli, eða 87,2%, en þeir sem eru í vaktavinnu sem eru að meðaltali í 80,0% starfshlutfalli. Starfshlutfallið eykst með aukinni ábyrgð og er að meðaltali 95% hjá stjórnendum í hjúkrun. • 8,6% svarenda segja grunnlaun sín hafa lækkað en þau hafa staðið í stað hjá 74,8% svarenda. • 12,6% svarenda hafa aukið við sig starfshlutfallið á sl. 12 mánuðum, flestir svarenda, eða 77,9%, breyttu starfshlutfalli sínu að eigin ósk en 22,1% að ósk vinnuveitanda. • Meðalgrunnlaun hjúkrunarfræðinga eru skv. könnuninni 303.303 kr. Meðalgrunnlaun hjúkrunarfræðinga á aldrinum 25-34 ára eru 253.314 kr., á aldrinum 35-44 ára 298.344 kr., á aldrinum 45-54 ára 315.318 kr. og á aldrinum 55-68 ára 330.641 kr. • Greiðslur vegna vaktaálags nema að meðaltali 53.797 kr. á mánuði. • Heildarupphæð allra launagreiðslna á launaseðli voru að meðaltali 399.327 kr. en 348.526 kr. hjá almennum hjúkrunarfræðingum. • Þegar spurt var hvort breyting hefði orðið á viðbótarkjörum þá hefur viðbótarkjörum verið sagt upp hjá 39,9% svarenda. Þegar spurt var enn frekar út í hvaða viðbótarkjörum hefði verið sagt upp nefndi stærsti hópurinn fasta yfirvinnu eða 64,5%, 15,4% nefndu skerðingu bílahlunninda, eins nefndu svarendur skerðingu á unninni yfirvinnu og annan niðurskurð (óflokkaðan). • Þegar spurt var hvort viðkomandi hefði fengið uppsögn í starfi svöruðu 95% svarenda því neitandi, 3% að þeim hefði verið sagt upp starfinu að öllu leyti og 2% að þeir hefðu misst starfið að hluta.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.