Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Side 10
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 20106
Ása Fríða Kjartansdóttir, asaogvilli@internet.is
HEILSUEFLING OG FORVARNIR Á LITLUM OG
MEÐALSTÓRUM VINNUSTÖÐUM
Heilsueflingu er hægt að stunda nær alls staðar og er vinnustaðurinn kjörinn
vettvangur til að fræða fólk um heilsusamlega lifnaðarhætti. Starfsmenn verja
stórum hluta vökutíma síns á vinnustaðnum og því er hentugt að hafa þar
áhrif á heilsutengda hegðun hjá stórum hópi fólks. Rannsóknir hafa sýnt
að markviss heilsuefling á vinnustað bætir heilsu starfsmanna og dregur úr
veikindafjarvistum og hættu á hinum margvíslegustu sjúkdómum. Heilsuefling
stuðlar enn fremur að markvissari slysavörnum á vinnustað ásamt því að auka
starfsánægju starfsmanna og atvinnurekenda.
Evrópska samstarfsverkefnið Hraust
saman (Healthy together), sem styrkt
var af Leonardo da Vinci starfsmennta
áætluninni, snerist um heilsueflingu á
vinnustöðum. Þrjú lönd, Ísland, Írland og
Ítalía, tóku þátt í verkefninu sem beindist
að því að útbúa fræðsluefni um hvernig
efla mætti heilsu starfsfólks í litlum og
meðalstórum fyrirtækjum, sérstaklega á
landsbyggðinni. Í framhaldinu voru haldin
námskeið í öllum þátttökulöndunum.
Námskeiðin voru á háskólastigi og ætluð
bæði þeim sem starfa eða áhuga höfðu á
að starfa við heilsueflingu á vinnustöðum
og vinnuvernd sem og stjórnendum
fyrirtækja.
Hér á eftir verður farið yfir hvað vitað er
um heilsueflingu og forvarnir á vinnu
stöðum. Ég mun einnig fjalla um rann
sókn sem ég gerði árið 2007 en hún
var fyrsti hluti verkefnisins Hraust saman
og lokaverkefnið mitt í meistaranáminu í
lýðheilsufræðum. Þetta var þarfagreining
þar sem markmiðið var að meta hvort
þörf væri á nýju kennsluefni og nám
skeiði um forvarnir og bætta heilsu
starfsmanna í litlum og meðalstórum
fyrirtækjum. Markhópurinn voru allir
hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarforstjórar
hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
og á landsbyggðinni, allir sjúkraþjálfarar
í Félagi íslenskra sjúkraþjálfara, allir
iðjuþjálfar í Iðjuþjálfafélagi Íslands,
allir heimilis læknar í Félagi íslenskra
heimilis lækna og allir félagar í Vinnu
vist fræðifélagi Íslands. Alls svöruðu 254
einstaklingar spurningalistanum. Könnuð
voru viðhorf, áhugi, hæfni, þekking og
fræðsluþarfir er varða heilsueflingu á
vinnustöðum. Í lokin mun ég einnig ræða
möguleika hjúkrunarfræðinga á að starfa
við heilsueflingu á vinnustöðum sem og
námskeið er snúa að heilsuvernd og
heilsueflingu á vinnustöðum.
Hvað er vitað?
Slæmar vinnuaðstæður, kyrrseta og
vinnu tengd streita valda andlegri og
líkamlegri vanheilsu (QuillianWolever
og Wolever, 2003) og óheilbrigðir
lifnaðarhættir verða sífellt algengari.
Rannsóknir hafa sýnt að óheilsusamlegt
mataræði og hreyfingarleysi tengist
krabbameini og langvinnum sjúkdómum
(Sorensen o.fl., 2005). Langvinnir sjúk
dómar eru algengasta dánarorsökin í
heiminum nú um stundir og að sögn
Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar,
WHO, (2007) eru þeir orsök u.þ.b. 60%
allra dauðsfalla í heiminum.
Bæta má lifnaðarhætti okkar með
árangurs ríkri heilsueflingu og forvörnum.
Ýmis rök eru fyrir því að auka heilsu eflingu
og forvarnir, þar á meðal efnahagsleg
þar sem bág heilsa er kostnaðarsöm og
Ása Fríða Kjartansdóttir er
hjúkrunarfræðingur, B.Sc.,
með meistarapróf í lýðheilsu
fræðum, MPH, og vinnur við
rannsóknir hjá Cutis ehf.
Nýr Nicorette plástur
– nú sterkari og
nánast ósýnilegur
Nicorette® nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð til að auðvelda reykingafólki að venja sig af tóbaki með því að draga úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve
mikið er reykt. Nota má forðaplásturinn einan og sér eða samtímis 2mg Nicorette lyfjatyggigúmmíi eða Nicorette innsogslyfi. Hámarksdagskammtur er 1 stk forðaplástur og annað hvort 24 stk lyfjatyggigúmm eða 12
hylki af innsogslyfi.Til að ná sem bestum árangri skal fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Leitið til læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum um lyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum
innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarlegar hjartsláttartruflanir, ómeðhöndlaðan háþrýsting eða nýlegt heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette. Börn yngri en 15 ára mega ekki
nota Nicorette. Þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu eingöngu nota Nicorette í samráði við heilbrigðisstarfsfólk. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: McNeil
Denmark ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatún 2, 210 Garðabæ.
Hjá þeim sem finna fyrir aukinni reykingaþörf eða hafa notað forðaplásturinn einan og sér,
án árangurs, getur skjótvirkt Nicorette nikótínlyf, t.d. 2 mg lyfjatyggigúmmí eða innsogslyf,
samtímis forðaplástrinum, skilað árangri fyrr.
Nicorette Invisi 25 mg
er sterkasti nikótínplásturinn á markaðnum í dag
Nýtt!
Nic_plastur_A4.indd 1 7.4.2010 10:41