Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Blaðsíða 14
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 201010
Áhugi og viðhorf til forvarna og
heilsueflingar á vinnustöðum
Rannsókn mín var, eins og áður kom
fram, þarfagreining í formi netkönnunar.
Almennt séð höfðu þátttakendur í
rannsókninni mjög jákvætt viðhorf til
forvarna og heilsueflingar á vinnustöðum
og voru sammála um að mikilvægt sé
að mismunandi aðilar vinni saman að
þessum málum. Allir voru sammála
því að huga þyrfti meira að forvörnum
og heilsueflingu á vinnustöðum í
þeirra bæjarfélagi. Mismunandi var
hvaða aðilar þátttakendur töldu að
ættu að sinna því að bæta forvarnir
og heilsueflingu í bæjarfélaginu (sjá
töflu 1). Nær allir þátttakendur töldu
þó mikilvægt að heilbrigðisstarfsmenn
tækju þátt í forvörnum og heilsueflingu
á vinnustöðum. Einnig kom fram að
næstum níu af hverjum tíu þátttakendum
höfðu mikinn áhuga á að veita þjónustu
á sviði forvarna og heilsueflingar á
vinnustöðum. Enn fremur gáfu rúmlega
átta af hverjum tíu til kynna að áhugi
þeirra myndi aukast ef boðið yrði upp á
fræðsluefni og námskeið um heilsueflingu
á vinnustöðum.
Hæfni til að vinna
heilsueflingarverkefni
Tæplega tveir af hverjum þremur þátt
takendum sögðust veita upplýsingar
og ráð um heilbrigði á vinnustöðum í
sínu núverandi starfi en um þriðjungur
sagðist ekki gera það. Meiri hluti
þátttakenda, eða átta af hverjum tíu,
taldi sig hæfan til að skipuleggja og
setja af stað heilsueflingarverkefni á
vinnustöðum og sami fjöldi, eða átta
af hverjum tíu, taldi sig búa yfir mikilli
þekkingu til að veita upplýsingar og
ráð um forvarnir og heilsueflingu
á vinnustöðum. Á hinn bóginn taldi
einungis um helmingur þátttakenda sig
vita hvað áhættumat á vinnustöðum fæli
í sér og tæplega helmingur taldi sig hafa
mikla þekkingu til að gera áhættumat á
vinnustöðum. Þessar niðurstöður gefa í
skyn að sú þekking, sem þátttakendur
töldu sig búa yfir, er ef til vill ekki eins
mikil og þeir vildu vera láta. Ef einhver
ætlar að veita upplýsingar og ráðgjöf
varðandi heilsueflingu á vinnustöðum
er mjög mikilvægt að vita hvað
áhættumat á vinnustöðum felur í sér
þar sem áhættumatið er stór hluti af
vinnuverndarstarfi og því einnig hluti af
heilsueflingu á vinnustöðum.
Fræðsluþarfir forvarnaraðila
Nær allir þátttakendur voru sammála því
að fræðsluefni vantaði um forvarnir og
heilsueflingu á vinnustöðum ásamt því að
þeir vildu fá undirbúningsnámskeið til að
geta sinnt forvarnar og heilsueflingarstarfi
á vinnustöðum. Yfir helmingur þeirra sem
svöruðu nefndu að þeir vildu fá ráðgjöf,
gátlista, fræðslubæklinga eða skriflegar
leiðbeiningar til að styðjast við. Helst var
óskað eftir fræðsluefni tengdu streitu og
andlegri líðan ásamt fræðsluefni tengdu
félagslegum þáttum (sjá töflu 2). Þessi
þörf fyrir slíkt fræðsluefni gæti tengst
streitu og andlegu álagi á vinnustöðum
sem og í samfélaginu í heild, þar sem
mikil vinna samræmist oft og tíðum ekki
einkalífi fjölskyldunnar.
Með þessari könnun var leitast við að
kanna fræðsluþarfir á sviði vinnuverndar
og heilsueflingar á vinnustöðum og um
leið að hvetja til aukins umbótastarfs á
því sviði. Niðurstöðurnar gáfu til kynna
að þörf væri á nýjum úrræðum, eins
Tafla 2. Fræðsluefni sem óskað var eftir. Það sem helst var leitað eftir er efst í töflunni og það sem minnst var leitað eftir neðst.
Streita og andleg líðan á vinnustað
Áhrif félagslegra þátta á líðan í vinnunni
Áhrif umhverfisþátta (lýsingar, hita, hávaða o.fl.) á líðan í vinnunni
Líkamlegir áhættuþættir í vinnunni
Ábyrgð og skyldur atvinnurekenda og starfsmanna í sambandi við öryggi á vinnustað
Skipulag og stjórnun verkefna er lúta að öryggi og heilbrigði á vinnustöðum
Hreyfing
Áhættumat
Næring og mataræði
Lög og reglur um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum
Skaðsemi reykinga
Skaðsemi áfengis
Tafla 1. Aðilar sem sinnt gætu heilsueflingu á vinnustöðum.
Atvinnurekendur
Aðilar með sérþekkingu á líkamlegum, andlegum og félagslegum áhættuþáttum eða umhverfisþáttum
Heilbrigðisstarfsmenn
Starfsmenn á vinnustöðum
Verkalýðsfélög
Símenntunarstöðvar