Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Qupperneq 26

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Qupperneq 26
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 201022 Christer Magnusson, christer@hjukrun.is HJÚKRUNARHETJUR ENGILL SÍBERÍU Til eru margir hjúkrunarfræðingar sem hafa sinnt starfi sínu við erfið skilyrði og jafnvel með lífið að veði. Einn þeirra var sænska konan Elsa Brändström. Hún bjó reyndar lítið í Svíþjóð heldur varði ævi sinni að mestu í Rússlandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Elsa Brändström var fædd 1888 í Pétursborg í Rússlandi þar sem faðir hennar starfaði um tíma. Hún hlaut kennaramenntun í Svíþjóð en þegar faðir hennar varð sendiherra Svía í Rússlandi flutti fjölskyldan aftur til Pétursborgar. Þegar fyrri heimsstyrjöldin skall á gerðist hún sjálfboðaliði og hlaut stutta þjálfun sem stríðshjúkrunarfræðingur. Hún var send til Síberíu þar sem hún sá meðal annars um hermenn sem höfðu misst útlim. Þar sem stríðandi fylkingar skiptust á sárum mönnum kynntist hún bæði rússneskum og þýskum hermönnum. Hún barðist ötullega fyrir aðbúnaði og réttindum þýskra stríðsfanga og var fyrir vikið kölluð „engill Síberíu“. Ári seinna var hún komin í samstarf við sænska Rauða krossinn og annaðist hjúkrun í járnbrautarlestum sem fluttu þýska stríðsfanga aftur til Þýskalands og fóru aftur heim með særða rússneska hermenn. Starfaði hún þá meðal annars með Johan Wilhelm Sarwe, sænskum trúboða sem varði stærsta hluta ævi sinnar í Rússlandi. Elsa Brändström. YFIRLIT YFIR HEILBRIGÐISMÁL Efnahags­ og framfarastofnunin (OECD) gaf nýlega út ritið „Health at a Glance 2009: OECD indicators“. Þetta rit kemur út annað hvert ár og má í því finna upplýsingar um heilbrigðismál í 30 aðildarríkjum stofnunarinnar. Bókin skiptist í sjö kafla sem fjalla um heilbrigðisástand, áhrifaþætti heilsufars aðra en læknisfræðilega, mannafla, starfsemi heilbrigðisþjónustunnar, gæði, aðgengi, heilbrigðisútgjöld og fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar. Í bókinni er fjöldi mynda auk taflna og skýringatexta. Meðal annars kemur fram að hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök í flestum löndum OECD, örlítið algengari á Íslandi en meðaltalið. Hins vegar eru banaslys í umferðinni tiltölulega færri á Íslandi en að meðaltali í OECD-löndunum. Ungbarnadauði er næstminnstur

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.