Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Qupperneq 32

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Qupperneq 32
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 201028 Cecilie Björgvinsdóttir, cissy@hjukrun.is KJARAKÖNNUN HAUSTIÐ 2009 Í kjarakönnun, sem var gerð sl. haust, komu í ljós áhugaverðar upplýsingar um laun, starfshlutfall og menntun hjúkrunarfræðinga. Til stendur að gera kjarakönnun reglulega. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stóð fyrir kjarakönnun á meðal félagsmanna sinna í nóvember 2009. Stærð úrtaksins var 2.856 hjúkrunarfræðingar, heildarfjöldi svarenda var 684. Markmið könnunarinnar var að kanna launakjör hjúkrunarfræðinga og skapa félaginu grunn til þess að byggja seinni kjarakannanir á. Könnunin var lokuð vefkönnun þar sem þátttakendur fengu sendan póst með aðgangsorði að svarsíðu á netinu. Þegar spurt var um ábyrgðarsvið í starfi reyndust 59% svarenda vera almennir hjúkrunarfræðingar, 8% voru aðstoðar­ deildarstjórar, 13% deildar stjórar og 8% verkefnastjórar. Þá voru 6% yfir­ hjúkrunar fræðingar eða hjúkrunar­ forstjórar en 5% í öðru óskilgreindu starfi. Nokkrar markverðar niðurstöður má sjá hér til hliðar. Það voru ákveðin vonbrigði að þátttaka í könnuninni var ekki eins og vænst hafði verið og er það von okkar að þátttakan í næstu könnun verði betri. Engu að síður tel ég könnunina gefa glöggva mynd af kjörum stéttarinnar. Einhverjir formgallar komu í ljós og verða þeir lagaðir fyrir næstu könnun. Könnunin staðfesti þá tilfinningu félagsins að hjúkrunarfræðingar hefðu aukið við sig starfshlutfall og er það einkar ánægjulegt í ljósi þess að það ætti að þýða að mönnun er betri. Þar tel ég fyrst og fremst tvennt ráða mestu, annars vegar breytt áhersla í kjarasamningnum frá 2008, þar sem dagvinnulaunin hækkuðu á kostnað yfirvinnutaxtans, og hins vegar áhrif kreppunnar á kjör og atvinnuöryggi. Eins ber að geta þess að það er einkar ánægjulegt að sjá hversu vel menntuð stéttin er eins og sjá má af fjölda þeirra sem hafa lokið formlegu viðbótarnámi. Atvinnuleysi á meðal hjúkrunarfræðinga er ákveðið áhyggjuefni, en hlutfall þeirra sem hafa fengið uppsögn í starfi í könnuninni og fjöldi þeirra sem er á atvinnuleysisskrá miðað við félagatalið er sambærilegur. Sumar stofnanir hafa gripið til þess að minnka starfshlutfall hjúkrunarfræðinga. Það er alveg ljóst að árið 2010 er erfitt og reikna má með enn meiri erfiðleikum á árinu 2011 miðað við þann niðurskurð sem þá þarf að eiga sér stað í opinberum rekstri. Kannanir af þessu tagi eru því félaginu afar mikilvægar svo standa megi vörð um kjör og réttindi okkar félagsmanna. Cecilie B. H. Björgvinsdóttir er svið stjóri kjara­ og réttindasviðs hjá Félagi íslenskra hjúkrunar­ fræðinga.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.