Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Blaðsíða 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Blaðsíða 35
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 2010 31 Í öruggum höndum. ógnað við slíkar aðstæður. Í greinargerð um eftirlit Landlæknisembættisins með heilbrigðisþjónustu, sem gefin var út í desember 2009, segir að embættið hafi gripið til sértækra eftirlitsaðgerða og breytt áherslum til að freista þess að efla eftirlit á tímum niðurskurðar í heilbrigðisþjónustunni. Landlæknisembættið fylgist sérstaklega með áhrifum efnahagsráðstafana á heilsu og velferð landsmanna og aðgerðum þeirra sem veita heilbrigðisþjónustu. Meðal þess sem embættið hefur lagt sérstaka áherslu á er að óska eftir upplýsingum frá stofnunum vegna niðurskurðar. Í september á síðasta ári óskaði embættið eftir upplýsingum um mönnun á hjúkrunarheimilum. Þær upplýsingar hafa nú borist og á grundvelli þeirra mun embættið leitast við að setja fram viðmið um lágmarksmönnun á hjúkrunarheimilum til að tryggja öryggi þjónustunnar. Sú vinna er þegar hafin og fagnar Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga því sérstaklega. Aðrar áherslur vegna efnahagsþrenginga eru tilnefning sérhæfðra vinnuhópa sem fylgjast með heilsufari landsmanna, lyfjanotkun, aðsókn að og starfsemi heilbrigðisstofnana. Einnig tekur embættið þátt í samstarfi við aðrar stofnanir og ráðuneyti sem vakta velferðarþjónustuna með ýmsum hætti. Stefna heilbrigðisyfirvalda í gæðamálum Árið 2007 settu heilbrigðis­ og trygginga­ málaráðuneytið og Landlæknisembættið sameiginlega fram stefnumörkun heil­ brigðis yfirvalda í gæðamálum til ársins 2010. Þessa stefnu heilbrigðisyfirvalda er mikilvægt að hafa í huga þegar gæði og öryggi sjúklinga í heilbrigðiskerfinu eru vegin og metin, en þar segir meðal annars að eitt helsta verkefni heilbrigðisyfirvalda sé að tryggja öryggi, gæði og aðgengi að heilbrigðisþjónustunni og samtímis stuðla að sem hagkvæmastri nýtingu þeirra fjármuna sem til ráðstöfunar eru. Íslensk heilbrigðisyfirvöld telji mikilvægt að öryggi sjúklinga fái ríkan forgang á öllum stigum heilbrigðisþjónustu og gæði heil­ brigðisþjónustu byggist að stórum hluta á því hvernig öryggi sjúklinga sé tryggt í starf semi heilbrigðisstofnana. Mark visst gæða starf sé mikilvæg forsenda þess að almenningur fái faglega, örugga og hagkvæma heilbrigðisþjónustu og öllum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.