Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Síða 36
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 201032
þeim er starfa í heilbrigðisþjónustunni
eða tengjast henni með einum eða öðrum
hætti beri að efla gæði þjónustunnar.
Sameiginleg ábyrgð allra
Gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustunni
er þar af leiðandi sameiginleg ábyrgð
stjórnvalda, heilbrigðisstarfsfólks
og notenda og því mikilvægt að allir
þessir aðilar taki höndum saman
og axli þá ábyrgð sameiginlega.
Hjúkrunarfræðingar eru fjölmennasta
heilbrigðisstéttin hér á landi og starfa
þeir víða innan heilbrigðiskerfisins. Því
hvílir enn ríkari skylda á þeim en ella
að fylgjast með gæðum og öryggi í
heilbrigðisþjónustunni og láta vita telji
þeir einhverju ábótavant á því sviði.
Í kjölfar niðurskurðar og samdráttar í
heilbrigðiskerfinu gætir nú í fyrsta sinn
atvinnuleysis hjá hjúkrunarfræðingum og
þeir sem hafa vinnu búa margir við skert
atvinnuöryggi. Nú bregður svo við að
margir hjúkrunarfræðingar telja sér ekki
óhætt að koma fram með athugasemdir
og ábendingar varðandi skert öryggi
sjúklinga á sínum vinnustað af ótta við
afleiðingarnar. Þeir hafa haft samband
við Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
og lýst áhyggjum sínum af stöðu mála en
jafnframt krafist nafnleyndar og trúnaðar.
Upplýsingar nýttar til umbóta
Einn af eftirlitsþáttum Landlæknis
embættisins er að taka á móti kvört unum
og kærum frá notendum heilbrigðis
þjónustunnar og að vinna úr þeim.
Einnig berast embættinu ábendingar
frá heilbrigðisstarfsmönnum um atriði
sem betur mættu fara. Þessi atriði eru
mikilvægur þáttur í að fylgjast með
gæðum og öryggi heilbrigðisþjónustu.
Því er mikilvægt að hjúkrunarfræðingar
komi fram með ábendingar sínar svo
hægt sé að vinna að umbótum og auknu
öryggi innan heilbrigðisþjónustunnar.
Í bréfi Landlæknisembættisins til fag
félaga heilbrigðisstétta dagsettu 22.
febrúar 2010 er þessi eftirlitsþáttur
ítrekaður og fagfélögum bent á að
þau geti beint félagsmönnum sínum
til Landlæknisembættisins ef þeir vilja
koma á framfæri áhyggjum sínum eða
ábendingum í tengslum við niðurskurð
eða aðrar þær breytingar sem geta haft
áhrif á gæði eða öryggi þjónustunnar.
Landlæknisembættið mun meðhöndla
slík mál sem trúnaðarmál sé þess
óskað en mun nýta slíkar upplýsingar
til umbóta við að efla gæði og öryggi
heilbrigðisþjónustunnar eins og embætt
inu er skylt að gera samkvæmt lögum.
Hjúkrunarfræðingum ber
að vekja athygli á því ef
ráðstafanir stjórnvalda
eða annarra stjórnenda
í heil brigðisþjónustunni
ganga gegn hagsmunum
skjól stæðinga eða draga
úr öryggi þeirra.
Að lokum
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga tekur
undir með Önnu Björgu Aradóttur að
leitað verði jákvæðra lausna að öruggari
heilbrigðisþjónustu og til að svo megi
verða er mikilvægt að hjúkrunar fræðingar
efli samstarf og samráð við Land
læknisembættið og komi ábendingum
sínum um atriði, sem á einhvern hátt
gætu ógnað öryggi sjúklinga, á fram
færi. FÍH fagnar því ábendingu
Landlæknisembættisins og hvetur hjúkr
unar fræðinga til að hafa samband beint við
embættið telji þeir nauðsyn á slíku.
Opnuð hefur verið vefsíðan frjáls.is og er hún ætluð fag
fólki, einkum á heilbrigðissviði. Á síðunni er bent á leiðir
til að hvetja og styðja fólk til lífsstílsbreytinga. Landlæknir,
Geir Gunnlaugsson, opnaði síðuna formlega 24. mars sl. í
heilsugæslustöðinni í Mjódd að viðstöddu fjölmenni.
Vefsíðan er búin til af Lýðheilsustöð í samráði við Land
læknis embættið, Landspítala og Heilsugæslu höfuð
borgarsvæðisins. Eins og er má þar finna efni um tóbak
og áfengi en gera má ráð fyrir að meira efni, eins og um
matarræði, daglega hreyfingu og svefn, muni bætast við.
Vefsíðan er hugsuð sem eins konar fræðslubanki þar sem
hægt er að sækja sér efni til lesturs og fræðslu, til að
viðhalda þekkingu sinni og færni í starfi. Prófa má þekkingu
sína, finna þar æfingar og einnig ýmislegt ýtarefni og efni til
að afhenda skjólstæðingum.
Ný vefsíða fyrir fagfólk um lífsstílsbreytingar
Fréttapunktur