Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Page 39
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 2010 35
á atvinnu, félagslíf og einkalíf (Guyatt o.fl.,
1989).
Eldri rannsóknir hafa leitt í ljós að
heilsutengd lífsgæði hjartasjúklinga
eru verulega skert (Unsar o.fl., 2007;
Krumholz o.fl., 1996). Þar sem krans
æðasjúkdómur er aðaldánarorsök í öllum
heimshlutum nú orðið, að undanskilinni
Afríku sunnan Sahara, er mikilvægt
að gefa þessum sjúklingahópi mikinn
gaum, meðal annars með því að meta
HL. Rannsóknir á heilsutengum lífs
gæðum kransæðasjúklinga þjóna nú
orðið mikilvægum tilgangi við mat á
því hvaða meðferð henti best hverju
sinni. Athuganir á þessum atriðum geta
verið mikilvægur þáttur í að ákvarða
hvort tiltekin meðferð sé áhrifaríkari en
önnur (Swenson og Clinch, 2000; Unsar
o.fl., 2007). Rannsóknir á heilsutengdum
lífsgæðum þessa sjúklingahóps eru
sérstaklega nytsamlegar þar sem
markmið kransæðavíkkana og opinna
hjáveituaðgerða er ekki einungis að
lengja líf heldur einnig að minnka einkenni
og auka færni einstaklingsins til að sinna
daglegum þörfum og athöfnum og þar
að leiðandi bæta heilsutengd lífsgæði
(Echteld o.fl., 2001).
Algengt er í rannsóknum á heilsutengdum
lífsgæðum að þau séu mæld fyrir og
eftir inngrip, eins og eftir kransæðavíkkun
eða hjáveituaðgerð. Næstum án
undantekninga hafa báðar þessar aðgerðir
jákvæð áhrif á heilsutengd lífsgæði þessa
hóps (Krumholz o.fl., 1996; Pocock o.fl.;
2000; Rumsfeld o.fl., 2003).
Í rannsókninni, sem unnin var á hjarta
deild LSH á árunum 20052009, voru
heilsutengd lífsgæði mæld hjá sjúklingum
fyrir kransæðavíkkun, 6 mánuðum
eftir aðgerð og svo aftur 23 árum
eftir aðgerð. Fyrsta spurningalistanum
svöruðu skjólstæðingarnir á meðan þeir
lágu inni og biðu eftir kransæðaþræðingu.
Öðrum listanum svöruðu þeir sex
mánuðum síðar, er þeir komu í eftirlit
vegna annarrar rannsóknar er tengdist
greiningu á endurþrengslum í stoðneti,
og þriðji og síðasti spurningalistinn var
sendur heim til einstaklingsins. Voru þá
liðin 23 ár frá kransæðavíkkuninni. Með
þessu móti gat rannsakandi borið saman
niðurstöður spurningalistanna fyrir og eftir
kransæðavíkkun. Sjúklingarnir svöruðu
spurningalistanum áður en vitað var hvort
þeir gengjust undir kransæðavíkkun eða
einungis kransæðaþræðingu. Ástæða
þótti til að ætla að það gæti hugsanlega
haft áhrif á svör sjúklingsins ef búið væri
að víkka þrönga eða stíflaða kransæð
þegar spurningum um heilsutengd
lífsgæði væri svarað, það er að skekkja
kæmi fram í niðurstöðunum vegna
ofmats einstaklingsins á meðferðinni. Við
ákváðum í rannsókn okkar að skoða í
fyrsta lagi HL fyrir og eftir meðferð, í öðru
lagi að bera saman kynin og í þriðja lagi
að bera saman þá sjúklinga sem töldust
hafa svokallaðan Dpersónuleika eða
„distressed personality“ og þeirra sem
ekki höfðu þann persónuleika. Þeir sem
hafa Dpersónuleika eru taldir viðkvæmari
fyrir mörgum langvarandi sjúkdómum,
þar á meðal hjarta og æðasjúkdómum.
Jafnvel eftir að þeir hafa lokið meðferð
eru þeir í meiri hættu á að fá fylgikvilla í
kjölfarið og mega búast við hægari bata
en aðrir. Þeim sem hafa hinn svokallaða
Dpersónuleika er lýst þannig að þeir
hafi tilhneigingu til að sjá hlutina á fremur
neikvæðan hátt og að geyma þessa
neikvæðu tilfinningu innra með sér þar
sem þeir forðast félagslegt samneyti. Með
öðrum orðum eru þessir einstaklingar
niðurdregnir og kvíðnir. Í ljós hefur komið
að Dpersónuleiki er einn af áhættuþáttum
kransæðasjúkdóms og eykur einmitt
líkurnar á að HL verði minni en ella.
Í rannsóknum, sem gerðar hafa verið
á hjartasjúklingum með Dpersónuleika,
hafa HL þeirra mælst einungis þriðjungur
og allt niður í sjöttung þess sem aðrir
sjúklingar hafa notið (Denollet o.fl., 2000;
Pedersen o.fl.,2004). Því ákváðum við
að gefa þessum einstaklingum sérstakan
gaum í rannsókninni.
Mælitækið, er við notuðum til að meta
heilsutengd lífsgæði, var spurningalistinn
SF36v2. Talan 36 vísar til fjölda
spurninga. SF36 tilgreinir mat sjúklinga
á eigin heilsu, líkamlegri og sálfélagslegri.
Listinn telst til almenns spurningalista
um mat á heilsutengdum lífsgæðum,
það er hann er ekki sjúkdómsmiðaður.
Hann hefur verið þýddur yfir á
íslensku, margprófaður og staðfærður.
Spurningunum er skipt í tvo meginflokka:
andlega þætti og líkamlega þætti. Undir
hvorum flokki fyrir sig eru undirflokkar.
Í upptalningunni hér á eftir koma fram
dæmi um spurningar í hverjum flokki.
Líkamlegir þættir skipast í:
• líkamlega færni (physical functioning):
Geturðu gengið upp nokkrar hæðir?
• takmarkanir til að stunda atvinnu eða
félagslíf vegna líkamlegra óþæginda (role
physical): Áorkar þú minna en þú vildir?
• verki (bodily pain): Hversu mikið
trufluðu verkir þín venjubundnu störf
undan farnar fjórar vikur?
• almenna heilsu (general health):
Almennt séð, hvernig finnst þér heilsa
þín vera?