Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Qupperneq 44

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Qupperneq 44
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 201040 Aðrir efnisþættir greinarinnar Meðal annarra þátta, sem fjallað var um í greininni, voru áhrif efnahags kreppunnar á manneklu í hjúkrun, áherslur í kjara­ samningum Félags íslenskra hjúkrunar­ fræðinga, áhrif efna hags kreppunnar á menntunarmál hjúkrunar fræðinga, og áherslur og aðgerðir Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Í lokaorðum greinar­ innar kemur fram að erfiðir tímar bíði hjúkrunarfræðinga á Íslandi eins og annarra landsmanna. Heilbrigðiskerfið er ein af grunnstoðum samfélagsins og mikilvægt að viðhalda þeim góða árangri sem náðst hefur í heilbrigðisþjónustunni. Þekking og færni hjúkrunarfræðinga og annarra heilbrigðisstarfsmanna er grunnurinn sem heilbrigðiskerfið byggist á. Því er mikilvægara en nokkru sinni að tryggja áfram góða menntun hjúkrunarfræðinga og að nægur fjöldi hjúkrunarfræðinga brautskráist, að ný þekking verði nýtt í kerfinu og þess gætt að niðurskurðurinn leiði ekki til flótta hjúkrunarfræðinga úr landi. Í kreppunni felast þó einnig tækifæri. Skortur á hjúkrunarfræðingum á Íslandi er nú líklega tímabundið minni en nokkru sinni og veitir það mörg sóknar færi fyrir hjúkrunarfræðinga. Það gefur okkur gríðarlega möguleika á að efla gæði hjúkrunar og að sýna fram á árangur hjúkrunarmeðferðar, sýna fram á hvað hjúkrunarfræðingar gera. Hjúkrunar­ fræðingar geta líka tekið að sér aukin verkefni, til dæmis innan heilsugæslunnar í almennri móttöku, heilsuvernd og fleiru. Hjúkrunarfræðingar geta stóraukið almenna og sérhæfða heimahjúkrun. Efla þarf sjálf stæð störf hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni. Hjúkrunarfræðingar þurfa að taka virkari þátt í eftirliti og meðferð skjólstæðinga með langvinna sjúkdóma, til dæmis við móttöku á hjúkrunarstofum, og sækja þarf fast að hjúkrunarfræðingar fái takmarkað leyfi til lyfjaávísana. Í kreppunni felast þó einnig sannarlega hættur. Sú hætta er fyrir hendi að yfirvöld grípi til einhverra þeirra aðgerða sem hafa varanleg áhrif á heilbrigðiskerfið og sem leiða til þess að fækka þurfi hjúkrunarfræðingum. Staða hjúkrunar og hjúkrunarfræðinga á Íslandi er því hvergi nærri trygg þó skortur á hjúkrunar­ fræðingum til starfa sé nú tímabundið minni en áður. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga mun hér eftir sem hingað til leggja áherslu á upplýsingagjöf og þjónustu við félags­ menn sína. Í komandi kjarasamningum mun félagið leggja megináherslu á að vernda störf hjúkrunarfræðinga. Félagið mun einnig auka enn þátttöku sína í opinberri umræðu um heilbrigðismál með það að leiðarljósi að þekking og færni íslenskra hjúkrunarfræðinga nýtist sem best til að tryggja góða og örugga hjúkrunarþjónustu. Hvert stefnir? Síðan þessi grein var rituð fyrir ICHRN hafa enn orðið umtalsverðar breytingar. Nýr heilbrigðisráðherra hefur tekið við embætti, nýr forstjóri Landspítala, breytingar verið gerðar á stjórnskipulagi stofnana, stofnanir verið sameinaðar og fleira. Þá hefur einnig skýrst að einhverju leyti hvers er að vænta í niðurskurði í heilbrigðisþjónustu á árinu 2011. Fjármálaráðherra hefur upplýst að skera þurfi ríkisútgjöld niður um 50 milljarða árið 2011. Heilbrigðisráðherra tilkynnti á fundi 18. mars 2010 að niðurskurður í heilbrigðisþjónustu yrði mun meiri og sársaukafyllri árið 2011 en á yfirstandandi ári. Ráðherra tilkynnti um 30% niðurskurð á greiðslum til sjálfstætt starfandi sérfræðilækna, um að ákveðinni þjónustu bæði á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu yrði hætt, að minnsta kosti tímabundið, og að forgangsraða þyrfti þeim sjúklingum sem fengju ákveðna heilbrigðisþjónustu. Þá hefur forstjóri Landspítala lýst því yfir að miðað við fyrstu áætlanir um rekstur 2011 stefni í fjöldauppsagnir á þeirri stofnun. Af þessu má ljóst vera að verkefnin fram undan eru erfið, hvort heldur litið er til hjúkrunarþjónustu eða heilbrigðis­ þjónustunnar í heild. Sameigin legt verk efni heilbrigðis starfsmanna og landsmanna allra verður að ná því besta mögulega úr heilbrigðiskerfinu með verulega minna fjármagni en áður. Verkefnið er að verja heilbrigðiskerfið og lágmarka þann skaða sem óhjákvæmilegt er að heilbrigðiskerfið verði fyrir. Frekari lestur: Lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Fjárlög fyrir árið 2009. Alþingi 2008. Ögmundi stillt upp við vegg, frétt á mbl.is 25. júní 2009. Fréttir frá heilbrigðisráðuneytinu: Skipulagsbreytingar heilbrigðis þjón ­ ustu nnar í landinu, 7. janúar 2009. Reglugerð um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, 29. desember 2008. Innritunargjöld á sjúkrahús og heil­ brigðis stofnanir felld niður, 3. febrúar 2009. St. Jósefspítali samhæfður starfsemi Lands pítala, 19. febrúar 2009. Sparnaður og skert kjör í stað stór­ felldra uppsagna starfsmanna, 25. mars 2009. Átta heilbrigðisstofnanir sameinast um áramótin, 12. maí 2009. Stofnanir í Fjallabyggða sameinaðar, 12. júní 2009. Ný lyfjaverðskrá tekur gildi, 3. mars 2009. Hugsaðu dæmið til enda Fáðu ráðgjöf í síma 595 3400 Hvar er þínum séreignarsparnaði best borgið? Allianz Ísland hf. | Digranesvegi 1 | 200 Kópavogi | 595 3300 | allianz@allianz.is | allianz.is Ó · 1 31 75

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.