Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Blaðsíða 49
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 2010 45
ÞANKASTRIK
Ég hef því litið fram hjá því hve lítið vægi
hjúkrunarfræðingarnir virðast fá í þessum
sjúkrahúsaþáttum þó það hafi verið erfitt
stundum að horfa á House og fylgjast
með læknunum taka hrákasýni, vinna
úr því sjálfir og bjarga svo heiminum!
Gleðin var því mikil þegar byrjað var að
auglýsa tvo þætti sem áttu að einblína á
hjúkrunarfræðingana fremur en læknana
en þessir þættir heita Nurse Jackie og
Mercy. Og jú, ég skemmti mér líka vel yfir
þeim þáttum en eftir því sem á syrpurnar
leið fór að renna upp fyrir mér óhugnanleg
staðreynd sem ég hef samviskusamlega
lokað á öll þessi ár. Staðreyndin er sú
að ímynd hjúkrunarfræðinga í þessum
þáttum öllum er vægast sagt skelfileg!
Er í alvöru ekki hægt að selja þætti
sem sýna hjúkrunarfræðinga í aðeins
jákvæðara ljósi? Í Nurse Jackie er
aðalhjúkrunarfræðingurinn nokkurs konar
ofurmenni sem kann allt, veit allt og getur
allt. Hún er líka verkjalyfjafíkill og heldur
fram hjá manninum sínum til þess eins
að fá lyf til að svala fíkninni. Í Mercy er
aðalhjúkrunarfræðingurinn líka nokkurs
konar ofurmenni sem fór til Íraks og í
kjölfarið kann hún allt, veit allt og getur
allt. En hún er líka alkóhólisti og hún
heldur líka fram hjá manninum sínum.
Fjölskyldulíf þeirra beggja stendur á
brauðfótum og þær eru þreyttar, tættar
og nánast útbrunnar í vinnunni því þær eru
jú þær einu sem geta eitthvað og þurfa
því að gera allt! Ekki má gleyma Sam í
Bráðavaktinni, einstæðu móðurinni sem
berst í bökkum heima fyrir og í vinnunni.
Eigum við að ræða hennar vandræði
í einkalífinu? Við skulum ekki gleyma
því þegar hún Abbý hjúkrunarfræðingur
og vinkona okkar í Bráðavaktinni (að
sjálfsögðu alkóhólisti með langan lista
af erfiðleikum í einkalífinu) var orðin svo
góður hjúkrunarfræðingur að hún var að
sóa hæfileikum sínum í hjúkrunarfræðina
og fór að læra lækninn! Er þá ekki bara
betra að hafa enga hjúkrunarfræðinga
eins og í House því þar eru nokkurs
konar ofurmenni sem bókstaflega gera
allt, vita allt og kunna allt. Það kemur sér
betur fyrir ímynd hjúkrunarfræðinga að
hafa frekar enga starfandi á deildinni en
hana grey Oliviu sem tókst að smita hálft
sjúkrahús af sárasótt! Má setja svoleiðis í
ferilskrána?
Í framhaldi af þessum pælingum spurði ég
þriggja ára strákinn minn hvort hann vissi
hvað mamma gerir í vinnunni. Hann er
nefnilega með það alveg á hreinu að pabbi
hans, læknirinn, læknar fólk og kíkir í eyrun
á litlum börnum. En hvað mamma hans
gerir vissi hann ekki þó svo að hann viti að
mamma vinnur stundum á nóttunni og fyrir
honum er það alveg jafneðlilegt að mamma
sofi á daginn eins og að það séu fiskar í
sjónum. Hið margumtalaða og mikið notaða
hugtak „að lækna“ er auðvelt að útskýra fyrir
þriggja ára barni, að lækna er að hjálpa fólki
sem er veikt að verða hraust á ný. Hvernig
á þá að útskýra hugtakið „að hjúkra“? Þetta
er ekki hugtak sem fólki er eðlislægt að nota
og það kemur mun sjaldnar fyrir í almennum
samræðum. Megininntak beggja hugtaka
er þó það sama og því á litli strákurinn
minn erfitt með að skilja að læknar lækni
en hjúkrunarfræðingar hjúkri þó báðir hópar
geri það sama! Kannski er litli strákurinn
minn ekki einn um að eiga erfitt með að skilja
muninn á þessum tveimur starfsstéttum.
Getur það verið að þáttagerðarmenn í
útlandinu eigi alveg jafnerfitt með að skilja
muninn? Er það kannski þess vegna sem
í sumum þáttum eru hjúkrunarfræðingarnir
bara alls ekki til staðar? Því það virkar jú
bara ruglandi fyrir blessaðan áhorfandann
að reyna að átta sig á muninum.
Ég skora á Fríðu Björk Skúladóttur að
skrifa næsta þankastrik.
ÍMYND HJÚKRUNARFRÆÐINGA Í SJÓNVARPI
Frá því ég sá fyrsta þáttinn af Bráðavaktinni hef ég verið einlægur aðdáandi
þeirrar þáttaraðar og nánast allra annarra þátta sem fjalla um lífið innan
veggja sjúkrahúsanna. Þessa þætti hef ég horft á samviskusamlega og
leyft sjálfri mér að loka á gagnrýnisaugað því, jú, þetta eru skemmtiþættir.
Eydís Birta Jónsdóttir er hjúkrunarfræðingur
á 12G á Landspítala.
Eydís Birta Jónsdóttir, eydisbirta@hotmail.com
Þankastrik er fastur dálkur í blaðinu og höfundur hvers pistils stingur upp á þeim næsta. Í Þankastriki gefst hjúkrunarfræðingum færi á
að tjá sig um ýmislegt sem varðar hjúkrun og er þeim hjartfólgið. Pistlarnir geta fjallað um ákveðin málefni, sögur af kynnum við sjúklinga
eða starfsfólk, eitthvað sem hefur orðið höfundum til hugljómunar eða hvaðeina annað sem tengist starfinu og hugmyndafræði þess.