Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Qupperneq 52
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 201048
Útdráttur
Góð verkjameðferð er mikilvæg fyrir skjótan og góðan bata
sjúklinga. Framfarir hafa orðið á síðustu árum í verkjameðferð
skurðsjúklinga en íslenskar og erlendar rannsóknir á reynslu
þeirra sýna þó að sjúklingar hafa talsverða verki eftir
skurðaðgerð.
Markmið þessarar lýsandi þversniðskönnunar var að
kanna hve algengir og miklir verkir eru hjá sjúklingum fyrir
og eftir aðgerð; samband verkja við daglegar athafnir, líðan
sjúklinga og samskipti við aðra; mat þeirra á fræðslu um verki
og verkjameðferð; viðhorf sjúklinga til verkja og verkjalyfja;
ánægju sjúklinga með verkjameðferð og væntingar sjúklinga
til verkjameðferðar eftir aðgerð.
Úrtak rannsóknarinnar voru 216 sjúklingar sem gengust
undir skurðaðgerð á Landspítala í febrúar 2006. Gagna var
aflað með spurningalista byggðum á spurningalista bandarísku
verkjasamtakanna og með viðbótarspurningum frá höfundum.
Spurt var um bæði styrk verkja og áhrif verkjanna með notkun
tölukvarða. Spurningalistinn var afhentur sjúklingum að kvöldi
aðgerðardags eða daginn eftir aðgerð.
Meirihluti sjúklinganna (61,6%) gerði ráð fyrir því að
hafa verki eftir aðgerð að meðalstyrk 5,4. Mikill meirihluti
sjúklinga (80,8%) hafði haft verki síðastliðinn sólarhring
þegar spurningalista var svarað. Meðaltalsstyrkur verkja
var að jafnaði 4,0 og meðaltalsstyrkur versta verkjar 5,9.
Konur og yngri sjúklingar greindu frá verri verkjum en karlar
og eldri sjúklingar. 90,7% þátttakenda voru ánægðir eða
mjög ánægðir með verkjameðferð. Upplýsingar um verki
eftir skurðaðgerð fengu 76,3% sjúklinga og um mikilvægi
verkjameðferðar 50,5%. Sjúklingar, sem voru með verki fyrir
aðgerð, gerðu ráð fyrir meiri verkjum eftir aðgerð, greindu
frá verri verkjum eftir aðgerð og höfðu neikvæðari viðhorf til
verkja og verkjalyfja.
Niðurstöðurnar benda eindregið til þess að ástæða sé til
að bæta verkjameðferð skurðsjúklinga og fræðslu um verki
og verkjameðferð.
Lykilorð: Verkir, verkjameðferð, skurðsjúklingar, sjúklingafræðsla.
INNGANGUR
Verkir sjúklinga eru viðfangsefni sem heilbrigðisstarfsfólk
þarf oft að takast á við. Verkir eftir skurðaðgerð eru hluti af
reynslu skurðsjúklinga og er góð verkjameðferð mikilvægur
þáttur í bataferlinu (Haljamäe og Warrén Stomberg, 2003).
Þó að framfarir hafi orðið á síðustu árum í verkjameðferð
hjá skurðsjúklingum sýna íslenskar og erlendar rannsóknir
að þeir eru með talsverða verki og að hjúkrun þeirra getur
verið erfið og flókin (Apfelbaum o.fl., 2003; Chung og Lui,
2003; Herdís Sveinsdóttir og Anna Gyða Gunnlaugsdóttir,
Lára Borg Ásmundsdóttir, Landspítala
Anna Gyða Gunnlaugsdóttir, Landspítala
Herdís Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
MAT SKURÐSJÚKLINGA Á VERKJUM OG
VERKJAMEÐFERÐ
ENGLISH SUMMARY
Asmundsdottir, L.B., Gunnlaugsdottir, A.G., and Sveinsdottir, H.
The Icelandic Journal of Nursing (2010), 86 (2), 48-56
Surgical patients´ assessment of their pain and pain
management
Good pain management is important for patients’ successful
recovery. In recent years progress has been made in postoperative
pain management. However, studies of patients’ experiences
indicate that they have considerable pain after surgery.
The objective of this descriptive crosssectional study is
to explore the incidence and intensity of pain experienced by
patients before and after surgery, the relationship of patients’ pain
to their daily activities, their wellbeing and interactions with other
people after surgery, patients’ assessment of education received
on pain and pain management, patients’ attitudes towards pain
and pain management, patients’ satisfaction with their pain
management and their expectations towards postoperative pain
experience.
The sample included 216 patients who had surgery at
Landspitali University Hospital, Iceland, in February 2006. Data
were gathered using a questionnaire from the American Pain
Society and with additional questions from authors. Patients
were asked about the effects of pain and to define the intensity of
their pain on a scale from 0 to 10 under various conditions. The
questionnaire was delivered to the patients on the evening of the
day of surgery, or the following day.
The majority of patients (61.6%) expected pain after surgery
with the average score of expected pain being 5.4. The majority
of the patients (80.8%) had experienced pain during the past 24
hours when the questionnaire was administered. The average
score of pain over the previous 24 hours was 4.0 and average
score of worst pain was 5.9. Women and younger patients
reported greater intensity of pain than men and older patients.
Most patients (90.7%) were satisfied or very satisfied with the
pain management they received. The majority of them had
received information on pain after surgery (76.3%) and about
the importance of pain management (50.5%). Patients who
experienced pain before surgery, expected greater intensity and
experienced higher intensity of pain after surgery, and showed
negative attitudes to pain and pain medication.
The findings of the study indicate that there is a need to
improve pain management among surgical patients and their
education on pain and pain management.
Key words: Pain, pain management, surgical patients, patient
education.
Correspondance: laraborg@centrum.is.