Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Blaðsíða 12
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 20138
Ég hef oft barnavigt með mér og býð
mæðrunum að skoða hvað barnið fær
í hverri gjöf. Það hjálpar oft að sjá
hve magnið er mikið því að eitt aðal
áhyggjuefni mæðranna er að þær fram
leiði ekki næga mjólk. Ég skoða líka
mömmuna sjálfa og barnið og met þætti
sem kynnu að hafa áhrif á brjóstagjöfina.
Það segir líka mikið að skoða samspilið
milli móður og barns því það getur
bent til margra þátta eins og andlegrar
vanlíðunar móður. Ef eitthvað slíkt kemur
upp vísa ég konunni í réttan farveg innan
heil brigðiskerfisins vegna þess að ef móðir
er þung lynd er hún oft ekki fær um að sjá
um barnið sitt sem skyldi.
Mínar tekjur byggjast að mestu leyti á
námskeiðunum og einnig hefur verið mikil
eftirspurn eftir heftinu Barnið byrjar að
borða sem ég skrifaði fyrir námskeiðið.
Þegar ég sinni heimavitjunum eru það
mæðurnar sem greiða sjálfar fyrir þá
þjónustu. Því gjaldi hef ég haldið í
lágmarki til að allar mæður, sem vilja,
geti nýtt sér þennan kost. Þar sem ég
hef haft nóg að gera án þess að auglýsa
þjónustuna, hef ég beðið með að semja
við Tryggingastofnun um niðurgreiðslur
en ég er að hugsa um að athuga það
innan skamms.
Ég starfa líka í sjálfboðaliðasamtökum
sem heita Stuðningskonur við brjóstagjöf
en það eru mæður sem hafa reynslu af
brjóstagjöf, hafa farið á námskeið og
ráðleggja öðrum mæðrum á jafningja
grundvelli. Það er mikið sótt í fésbókar
síðu þessara samtaka og þar koma inn
nokkrar fyrirspurnir á dag. Mæðrum finnst
þetta oft fyrsta skrefið, að geta skrifað
og fengið leiðbeiningar á netinu en það
kemur samt aldrei í staðinn fyrir mannleg
samskipti og að hitta manneskjuna.
Ég geri mikinn greinamun á samskiptum
sem fara þannig fram, á netinu eða
gegnum tölvupóst, og hinum þegar
ég hitti fólk í eigin persónu eða fer
í heimavitjanir. Það er í lagi að veita
almennar ráðleggingar á neti, í tölvupósti
eða í síma og oft er hægt að leysa
minniháttar vandamál á þennan hátt.
Hins vegar er aldrei hægt að greina
og meðhöndla klínísk vandamál án
þess að hitta móðurina. Ofgreindasta
vandamál brjóstagjafar er sveppasýking,
ég veit um fjöldamörg dæmi þess að
mæður hafi ranglega fengið meðferð
við sveppasýkingu vegna lýsingar á
svipuðum einkennum. Röng greining og
meðferð er bæði dýr og tefur úrlausn á
raunverulega vandamálinu. Það er alls
ekki faglegt að prófa sig áfram þangað til
er slumpast á rétta meðferð við klínískum
vandamálum sem er vel hægt að greina á
einfaldan hátt ef rétt er staðið að málum.
Annað dæmi er sár á geirvörtum sem
margar mæður glíma við í langan tíma
með ómældum sársauka og sumar jafnvel
hætta brjóstagjöf vegna þessa. Það er
alltof algengt að vegna skorts á þekkingu
sé ekki greind sýking í þessum sárum
og meðhöndluð. Þetta á sér stað í okkar
heilbrigðiskerfi. Oft eru reyndar misjafnar
leiðir til að græða sárin: krem, plastfilmur
og annað. Þegar ekkert gengur verður
það því miður oft til þess að móðirin gefst
upp en þessi sár hefðu gróið á nokkrum
dögum með réttri greiningu og viðeigandi
meðferð. Þessu væri hægt að breyta
með aukinni menntun og samhæfingu á
leiðbeiningum.
Skortur á aðgengi að faglegri sérfræði
þjónustu í brjóstagjöf hefur líka verið
vandamál en öll vitum við að þessir
þættir geta skipt sköpum. Það eru ekki
margir brjóstagjafarráðgjafar starfandi
í heilsugæslunni og nú hefur formleg
móttaka brjóstagjafarráðgjafa á Land
s pítalanum verið lögð niður. Fyrsta
viðkoma móðurinnar ætti því að vera
heilsugæslan en þá verður starfsfólk
hennar að vera í stakk búið að greina og
meðhöndla þau tilfelli sem þangað koma.
Mér finnst að fagstéttir og stofnanir þurfi
að vinna betur saman og það sé hluti af
heildarsýn sem við þurfum að hafa til að
bæta þjónustu við smábarnaforeldra á
Íslandi.
Það krefst kannski smá kjarks og
mátulega mikillar bjartsýni að hefja eigin
rekstur. Það eru hins vegar svo ótalmargir
möguleikar sem liggja í því að skapa
nýja þjónustu sem er hægt að laga að
þörfum foreldranna og reyna að finna út
hvað hentar þessum skjólstæðingahóp.
Þetta gefur manni líka aukið svigrúm
að ráða sínum tíma, það hentar vel hjá
mér sem er með stórt heimili. Það er
hins vegar nauðsynlegt að hafa klíníska
reynslu og staðgóða þekkingu til að
hefja svona starfsemi og ég sé kostina
við það að starfa með öðrum sem
vinna við svipaða hluti. Það gefur manni
styrk, samráð við aðra um ákveðin tilfelli
og svo auðvitað félagsskapinn. Ég er
bjartsýn á framhaldið og vonast til að sjá
fleiri hjúkrunarfræðinga skapa sér eigin
starfsvettvang.
Lesa meira:
Vefsíða: www.barnidokkar.is
Fésbókarsíður: Brjóstagjöfmeira en
bara næring, BabyCalm Reykjavík,
Barnið okkar og Barnið byrjar að borða.
Omron M6 Comfort
Nemur óreglulegan hjartslátt
Auðveldara að koma armborðanum fyrir
Nemur rétta staðsetningu armborðans
Nemur hvort hreyfing trufli mælingu
Minni fyrir 2 notendur - 100 mælingar fyrir hvorn
Tveir þrýstinemar sem tryggja nákvæma mælingu
Birtir þrýstisvið á skjánum
Stillir réttan hraða og þrýsting við dælingu og hjöðnun
Armborði fyrir
upphandlegg
með ummál á
bilinu 22-42 cm
Nemur rétta staðsetningu armborðans
Nemur óreglulegan hjartslátt
Birtir þrýstisvið á skjánum
Stillir réttan hraða og þrýsting
við dælingu og hjöðnun
Omron M2
Armborði fyrir
upphandlegg
með ummál á
bilinu 22-32 cm
Gjöf s
em h
ittir
be
int
í hj
art
ast
að
www.hbv.is
Blóðþrýstingsmælar
Omron blóðþrýstingsmælar fá hæstu einkunn í klínískum
rannsóknum og eru viðkenndir af ESH, BHS og WHO.
Omron blóðþrýstingsmælar fást í flestum apótekum
Þegar heilsan er annars vegar þá
skipta gæði tækisins mestu máli.
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Heilsida Omron_A4.pdf 1 26/11/12 1:15 AM