Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Blaðsíða 22
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 201318
væri að sækja um áfrýjunarleyfi vegna
málsins en þess er almennt þörf ef beinir
fjárhagslegir hagsmunir af málinu nema
ekki áfrýjunarfjárhæð sem nú er rúmar
700.000 krónur. Lögmenn FÍH töldu að
skilyrði fyrir áfrýjunarheimild væru uppfyllt
enda væri um prófmál að ræða sem hefði
þýðingu fyrir alla félagsmenn í FÍH sem
voru í styrktarsjóði BHM við úrsögn FÍH
úr bandalaginu.
Með bréfi Hæstaréttar dags. 28. janúar
2013 var Láru Bryndísi tilkynnt að umsókn
hennar um áfrýjun dóms Héraðsdóms
Reykjavíkur hefði verið hafnað. Tilgreint er
að lagaskilyrði til að verða við beiðninni hafi
ekki verið fyrir hendi. Málaferlum vegna
úrsagnar FÍH úr BHM var þar með lokið.
Stofnun bráðabirgðastyrktar- og
sjúkrasjóðs FÍH
Í byrjun árs 2010 sótti fjöldi félagsmanna
FÍH um styrki úr styrktarsjóði og
sjúkrasjóði BHM. Öllum umsóknunum
var hafnað á þeirri forsendu að FÍH væri
ekki meðal aðildarfélaga BHM.
Á stjórnarfundi FÍH 9. mars 2010 var
samþykkt að setja á fót styrktar og
sjúkrasjóð FÍH. Þetta taldi stjórn FÍH
nauðsynlegt sem lið í því að tryggja réttindi
sinna félagsmanna enda höfðu BHM og
stjórn styrktarsjóðs og sjúkrasjóðs BHM
hafnað kröfu FÍH um áframhaldandi aðild
félagsmanna FÍH að sjóðunum. Þó í
umfjöllun hér á eftir verði eingöngu vísað
til styrktarsjóðs FÍH á sambærilegt við um
sjúkrasjóð FÍH.
Styrktarsjóði FÍH var ætlað, að minnsta
kosti á meðan ekki hafði verið leyst úr
ágreiningi þeim sem laut að styrktarsjóði
BHM, að gegna sams konar hlutverki
og síðarnefndi sjóðurinn og tryggja
félagsmönnum FÍH réttindi sambærileg
þeim sem þeir nutu áður hjá styrktarsjóði
BHM. Í bráðabirgðaákvæði í starfsreglum
styrktarsjóðs FÍH, sem voru samþykktar á
stjórnarfundi 9. mars 2010, er stofnun og
tilvist sjóðsins með hliðsjón af ágreiningi
FÍH og BHM útskýrð ýtarlega:
1. Til [styrktarsjóðs Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga] er stofnað í kjölfar
úrsagnar FÍH úr BHM. Í kjölfar úrsagnar
innar kom upp ágreiningur milli FÍH og
BHM sem varðar [styrktarsjóð BHM].
FÍH telur að annað tveggja sé fyrir hendi,
réttur til hlutdeildar í eignamyndun
[sjóðsins] eða til áframhaldandi aðildar
að [sjóðnum] en því hefur verið hafnað.
Því hefur stjórn FÍH fengið fyrirgreiðslu
hjá vinnudeilusjóði til þess að koma
á fót og fjármagna [styrktarsjóð
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga].
Hlutverk sjóðsins er að tryggja
hjúkrunarfræðingum sambærileg
réttindi og styrktarsjóður BHM veitir
á meðan leyst er úr áðurnefndum
ágreiningi. Starfsemi sjóðsins til fram
tíðar ræðst af niðurstöðu ágreinings
FÍH og BHM.
2. Verði lyktir ágreiningsins þær að
áfram haldandi réttur er til aðildar að
[styrktar sjóði BHM] skal stjórn FÍH
leggja [styrktarsjóð Félags íslenskra
hjúkrunar fræðinga] niður í samræmi
við grein þessa. Ef sjóðurinn í heild
er lagður niður skal ráðstafa eignum
hans, þ.m.t. því fé sem sjóðurinn
á rétt á frá framangreindum [sjóði]
BHM vegna framsals frá styrkþegum,
til endur greiðslu lána sem tekin hafa
verið vegna starf seminnar og að öðru
leyti í samræmi við almenna hagsmuni
FÍH. Hrökkvi eignir sjóðsins ekki til
endurgreiðslu lána ber FÍH ábyrgð á
slíkri endurgreiðslu.
Borgartún 6 þar sem eru skrifstofur BHM.
Eins og fram kemur í samþykkt stjórnar
fundarins átti „að tryggja hjúkrunar
fræðingum sambærileg réttindi og
styrktar sjóður BHM veitir á meðan
leyst er úr áðurnefndum ágreiningi“.
Úthlutunar reglur bráðabirgðasjóða FÍH
voru því þær sömu og hjá sjóðum BHM.
Tekjur styrktarsjóðs FÍH, greiðslur launa
greiðenda sem námu 0,55% af launum
hjúkrunarfræðinga, áttu að standa undir
styrkveitingum. Fjöldi styrkumsókna
í bráðabirgðasjóðinn óx jafnt og þétt
allt frá stofnun sjóðsins. Því varð fljótt
ljóst að tekjur sjóðsins nægðu ekki fyrir
gjöldum miðað við úthlutunarreglurnar
sem nauðsynlegt var að héldu gildi sínu
á meðan á málaferlunum stóð.
Það varð fljótt ljóst að
tekjur sjóðsins nægðu
ekki fyrir gjöldum miðað
við úthlutunarreglurnar
sem nauðsynlegt var að
héldu gildi sínu á meðan
á málaferlunum stóð.
Í bókun 4 með kjarasamningi FÍH við
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, sem
undirritaður var 4. júní 2011, segir: