Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Blaðsíða 49
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 2013 45
útlit þeirra en ekki um hvað hentugast sé
fyrir þann sem á að starfa við þær.
Standandi starf
Fyrir bak og axlar gildir það sama og við
sitjandi starf. Miklar stöður reyna mikið á
fætur og fótleggi þar sem allur líkamsþungi
hvílir á þeim (notið því hentuga vinnuskó).
Bezt er að líkamsþunginn hvíli á báðum
fótum og sé jafndeilt á hæla og táberg.
Varast ber að yfirrétta hnén því það getur
leitt til ofteygingar á liðböndum.
Hæfilegt bil milli fótanna myndar stærri
undirstöðuflöt og veitir því betra jafnvægi.
Ef vinna krefst langrar stöðu er mjög gott
að gera léttar fótaæfingar. Það eykur
blóðrásina, fætur bólgna síður og það
fyrirbyggir þreytu.
Lyftingar
Nauðsynlegt er að jafna vinnunni
á stærstu og sterkustu vöðva og liði
líkamans. Að beygja mjaðmirnar með
rétt hné og lyfta þannig þungum hlut er
alrangt. Tekin er sú áhætta að ofreyna og
jafnvel skaða hryggvöðva og hryggjarliði.
Þegar þungum hlut er lyft frá gólfi er
rétt að hafa smábíl milli fótanna (ca.
30 cm), beygja hnén, halla sér áfram
(frá mjöðmum), halda bakinu beinu
og auka mjóbakssveigjuna smávegis.
Síðan er tekið jafnt um hlutinn með
báðum höndum, honum haldið þétt að
líkamanum og síðan er lyft með því að
rétta úr hnjánum.
Eitt vil ég leggja ríka áherzlu á, að aldrei
má snúa upp á hrygginn þegar þungum
hlut er lyft. Þurfi að snúa sér með hann
verður það fyrst að gerast eftir að honum
hefur verið lyft. Forðist að lyfta of þungum
hlut, verðið tvær eða þrjár við það. Hafið
í huga að kona á ekki að lyfta hlut
sem er þyngri en þriðjungur líkamsþunga
hennar. Fyrir karlmenn líggja mörkin mun
hærra. Að endingu vil ég eindregið hvetja
hjúkrunarfólk til að nota lyftitæki ef það
er fyrir hendi.
Vonandi hafa augu þeirra, sem lesa
grein þessa, opnast fyrir mikilvægi réttra
starfsstellinga og þá er tilgangi hennar
náð.
Svanhildur Elentínusdóttir starfaði sem
sjúkra þjálfari 19652009. Hún var fyrst á
Land spítala og hjá Styrktar félagi lamaðra og
fatlaðra en lengst af á Hrafn istu í Reykja vík
þar sem hún kom á fót sjúkra þjálfun fyrir
aldraðra.