Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Side 14
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 201310
Nú fer að líða að sumri og þá er
gott að rifja upp hvað kjarasamningar
hjúkrunar fræðinga segja um um orlof.
Eftir farandi á við um alla félags menn
sem taka laun samkvæmt okkar kjara
samningum öðrum en rammasamningi
Félags íslenskra hjúkrunar fræðinga við
Samtök atvinnulífsins.
SUMARIÐ NÁLGAST
Ávinnsla orlofs á sér stað frá 1. maí til 30. apríl ár hvert og
sumarorlofstímabilið er frá 1. maí til 15. september ár hvert.
Yfirmaður skal í samráði við starfsmenn ákveða hvenær orlof
skuli veitt. Honum er skylt að verða við óskum starfsmanna
um hvenær orlof skuli veitt og skal það veitt á sumarorlofstíma,
sé þess óskað af hálfu starfsmanns og því verður við komið
vegna starfa stofnunarinnar. Yfirmaður skal að lokinni könnun
á vilja starfsmanna tilkynna svo fljótt sem unnt er og í síðasta
lagi mánuði fyrir byrjun orlofs hvenær orlof skuli hefjast nema
sérstakar aðstæður hamli.
Þegar starfsmaður í vaktavinnu fer í orlof skal hann fá óyggjandi
upplýsingar um hvenær hann skuli mæta á vakt að orlofi loknu.
Starfsmaður á rétt á að fá 160 vinnuskyldu stunda orlof sitt á
sumarorlofstímabilinu og allt að fullu orlofi á sama tíma, verði
því við komið vegna starfa stofnunarinnar.
Veikist starfsmaður í orlofi telst sá tími, sem veikindum nemur,
ekki til orlofs enda sanni starfsmaður með læknisvottorði að
hann geti ekki notið orlofs. Tilkynna skal yfirmanni án tafar með
sannanlegum hætti ef um veikindi eða slys í orlofi er að ræða.
Lenging orlofs
Orlof, sem tekið er að loknu sumarorlofstímabili, lengist um 1/4
og sama gildir ef orlof er tekið fyrir sumarorlofstímabil að ósk
vinnuveitanda. Lenging á sér stað hvort heldur sem frestun á
töku orlofs er að frumkvæði starfsmanns eða vinnuveitanda,
þetta á þó ekki við um starfsmenn hjá sveitarfélögum.
Lenging orlofs hjá starfsmönnum á kjarasamningi við Samband
íslenskra sveitarfélaga: Þeir starfsmenn, sem samkvæmt ósk
vinnuveitenda fá ekki fullt orlof á sumarorlofstímabili, skulu fá
33% lengingu á þeim hluta orlofstímans sem veittur er utan
framangreinds tíma.
Cecilie B.H. Björgvinsdóttir, cissy@hjukrun.is
Orlofsuppbótin 2013 er sem hér segir:
Hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga: 38.000 kr.
Hjá öðrum launagreiðendum 28.700 kr.
Í töflu hér að neðan má sjá áunnið orlof eftir aldri miðað við
fullt starf. Orlofsstundafjöldi ávinnst hlutfallslega miðað við
starfshlutfall og starfstíma.
Starfsmaður skal fá orlofsfé á yfirvinnu og álagsgreiðslur,
orlofsfé þetta er greitt í banka og kemur til útborgunar í maí ár
hvert. Greitt er hlutfall af launum háð aldri. Næsta tafla sýnir
greiðslur orlofsfjár miðað við aldur.
Aldur Stundir
á ári
Stundir
á mánuði
Vinnudagar
á ári
Yngri en 30 ára 192 stundir 16 stundir 24 dagar
30-37 ára aldur 216 stundir 18 stundir 27 dagar
38 ára og eldri 240 stundir 20 stundir 30 dagar