Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Blaðsíða 17
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 2013 13
að markmiði að efla heilbrigði. Það mun
hafa áhrif seinna meir, ekki eingöngu á
nemendur heldur kemur það til með að
endurspeglast í lýðheilsu almennings í
framtíðinni. Eitt af verkefnum þjóðarinnar
er að huga að heilbrigði og heilsuvernd og
einn af þeim mikilvægu þáttum, sem þarf
að huga sérstaklega að, er ofþyngd og
offita. Það er eins hér á landi og annars
staðar í heiminum að offita einstaklinga
er að aukast og þar af leiðandi aukast
lífsstíls sjúkdómar gríðarlega. Þó eru ein
hverjar ví bendingar um að sennilega sé
toppnum náð.
Þegar ég fór að sinna skólaheilsugæslu
var eitt af því fyrst,a sem ég áttaði mig á,
sá mikli vandi og sér í lagi það gífurlega
úrræðaleysi sem blasti við þegar kom
að ofþyngd og offitu grunnskólabarna.
Heilbrigður lífsstíll er eitt af mínum
áhugamálum og hvað er betra en að
geta sameinað áhugamál og vinnu sem
leiða til framfara.
Þegar kemur að ofþyngd þarf að huga
að því að aðstoða fjölskylduna í einni
heild. Meginþættirnir, sem snúa að þeirri
samvinnu, eru:
Að mynda traust við alla í fjölskyldunni
að það sé gagnkvæmt.
Að efla áhuga með því að greina hvar
viðkomandi er staddur og hefja aðstoðina
þar. Þetta er ef til vill sá þáttur sem ekki
hefur verið hugsað nægjanlega vel um.
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir að
þessir tveir þættir geta tekið langan
tíma og fjölskyldur eru misjafnar. Eitt
það fyrsta, sem ég byrja á að aðstoða
nemendur með, er að efla áhuga á
hreyfingu og finna hvar áhugasvið hvers
og eins liggur. Næsta skref er síðan
að setja mig í samband við fagaðila
á því sviði, til dæmis í sundi eða á
líkamsræktarstöð. Það hefur verið þannig
hjá mér að ég fæ að koma þangað
með nemendurna og fylgi þeim eftir í
viðeigandi hreyfingu. Mikilvægt er að
sýna nemendum áhuga því þá eru þeir
líklegri til að sýna áhuga á verkefninu.
Veita þarf foreldrum fræðslu um
heilbrigðan lífsstíl, hentugt mataræði og
mikilvægi hreyfingar. Ég skoða venjur og
siði fjölskyldunnar og gef foreldrum ráð
út frá þeirri vinnu og bendi þeim á að
það séu foreldrarnir sem beri ábyrgðina.
Foreldrar verða að átta sig á því að
þeir bera ábyrgð á því hvað er keypt
inn og eldað, þeir búa til hefðir og
venjur í mataræði barna sinna og þetta
hefst allt með viðhorfsbreytingu hjá þeim.
Viðhorfsbreyting og vilji til þátttöku er það
sem foreldrar þurfa að tileinka sér og
mikilvægt er að gefa foreldrum tækifæri
til að hafa samband til að fá ráð og
það getur skipt sköpum. Rannsóknir
benda til þess að mikið af næringarvanda
barna stafi af því að þetta ábyrgðarsvið
foreldra, sem felst í að móta siði og
venjur í mataræði, sé ekki virt og þess
vegna er þörf á að leiðbeina foreldrum
og styrkja þá í því að hafa skýrar reglur.
Þetta er ekki alltaf auðvelt en ég veiti
þeim ráð og eftirfylgd varðandi þessa
þætti. Regluleg viðtöl við nemendur eru
mikilvæg til að veita hvatningu. Þegar
kemur að forvarnarfræðslu um hentugt
mataræði þarf að skoða vel getu þeirra
og þroska til að taka við þeirri fræðslu.
Gott er að byrja á einfaldri fræðslu,
eins og að hvetja til aukinnar neyslu
á ávöxtum, grænmeti, grófu brauði,
fiski og auka vatnsdrykkju og minnka
gosdrykkju og sælgætisát. Það þarf að
setja fræðsluna fram á þann hátt að
nemendur átti sig á að allt sem þeir
borða hefur áhrif á líkama þeirra, svo
sem bein, vöðva, hjarta og getu þeirra til
að hreyfa sig. Síðan þarf smátt og smátt
að auka við fræðsluna þegar nemendur
hafa þroska til. Mikilvægt er að grípa það
stóra tækifæri að veita fræðslu þegar
þeir bera sig eftir henni því ég tel að þá
séu þeir móttækilegastir og það hefur
sýnt sig í mínu starfi að þannig er það.
Mikilvægt er einnig að foreldrar séu
tilbúnir til að horfast í auga við að
þeir bera ábyrgð og eru fyrirmyndir.
Þess vegna legg ég mikla áherslu á
það við foreldra þeirra barna sem ég
er að aðstoða að þeir verði að vera
þátttakendur í heilbrigðum lífsstíl ef þeir
vilja að barnið nái árangri. Margt bendir
til þess að foreldrar, sem tileinka sér
heilbrigðan lífsstíl, hafi mikil áhrif og séu
góðar fyrirmyndir fyrir börnin. Það eru
hinar eiginlegu forvarnir. Síðan þarf að
huga vel að sumrinu og þeim tíma sem
börnin eru ekki í skólanum. Setja þarf
fyrir ákveðið verkefni, setja markmið yfir
sumarið og fylgja því eftir á þann hátt
að nemendur viti að þegar þeir komi í
skólann aftur að hausti verði farið yfir
árangur sumarsins. Ég hef prófað að
vera með eftirfylgd yfir sumartímann með
nemendum sem hafa haft áhuga á og
það skilaði góðum árangri. Því væri
ákjósanlegt að það yrði gert í öllum
skólum landsins. Ég hef unnið að því
að búa til verkferil sem miðar að því
að efla samvinnu heilsugæslunnar og
sérfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Skólahjúkrunarfræðingar eru í hvað bestri
aðstöðu til að meta og grípa í taumana
þegar barn er komið í ofþyngd eða
offitu, og mikilvægt er að hafa möguleika
á skilvirku ferli sem gagnast og auðvelt er
að vinna eftir.
Þórdís Rósa Sigurðardóttir er skóla hjúkrunar
fræðingur við Lundaskóla á Akureyri og
einkaþjálfari hjá Heilsuþjálfun.