Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Qupperneq 23

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Qupperneq 23
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 2013 19 Aðilar eru sammála um eftirfarandi tíma bundnar ráðstafanir þar til lyktir fást í ágreining Félags íslenskra hjúkrunar­ fræðinga og BHM vegna skipta á FOS [fjölskyldu­ og styrktarsjóð]. Framlag til bráðabirgða FOS Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga samkvæmt gr. 14.4.1 verði 0,75% af heildarlaunum frá 1. júní 2011. Bráðabirgða FOS Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fái 20 milljónir króna á ársgrundvelli frá 1. júní 2011. Þessar ráðstafanir falla niður í síðasta lagi í lok samningstímans. Fáist lyktir í ágreiningi Félags íslenskra hjúkrunar­ fræðinga og BHM skulu samnings­ aðilar taka ráðstafanir þessar til endur­ skoðunar. Með þessu var leitast við að tryggja að tekjur sjóðsins stæðu undir styrkveitingum. Um sambærilegt ákvæði var samið í kjarasamningum 2011 við Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga. Þrátt fyrir þessar auknu tekjur námu styrkveitingar áfram hærri fjárhæðum. Ekki var hægt að bregðast við með breytingu á úthlutunarreglum á meðan á málaferlum við BHM stóð. Eins og fram kom í ýtarlegu bréfi stjórnar styrktar­ og sjúkrasjóðs FÍH til félagsmanna FÍH, dags. 22. janúar 2013, voru heildarskuldir sjóðanna við vinnudeilusjóð og félagssjóð FÍH þá um 89 milljónir króna. Stjórn sjóðanna brást við þessari stöðu með viðamiklum breytingum á úthlutunarreglum sjóðanna. Framtíð styrktar- og sjúkrasjóða FÍH Á aðalfundi FÍH 31. maí næstkomandi mun stjórn FÍH leggja fram tillögu um stofnun styrktar­ og sjúkrasjóða FÍH. Ljóst er að í kjarasamningum í byrjun árs 2014 þarf að tryggja hámarksgreiðslur vinnuveitenda hjúkrunarfræðinga í sjóðina. Úthlutunarreglur verða síðan að taka mið af tekjum sjóðanna hverju sinni þannig að unnt verði að greiða skuldir bráðabirgðasjóðanna en jafnframt tryggja hjúkrunarfræðingum viðunandi réttindi. Elsa B. Friðfinnsdóttir er formaður FÍH. Nýlega birtist grein í Nature Genetics þar sem sagt er frá rannsóknum á erfðaefni gerla. Þessar rannsóknir hafa staðið í 17 ár en síðustu ár hefur ný tækni gert mönnum kleift að greina erfðaefni í tannsteini. Skoðaðar voru beinagrindir úr forsögulegu fólki og fram í tímann og kom í ljós að með tíð og tíma hafa munngerlar orðið fábreyttari hjá mannfólkinu. Er það talið tengjast breytingum á mataræði eftir að menn fóru að nýta fæðu sem var ekki lengur fengin beint úr náttúrunni heldur ræktuð og seinna framleidd í verksmiðjum. Tannsteinn hefur orðið algengari eftir því sem notkun á hveiti og sykri hefur aukist. Samkeppni milli gerla í munnholi mannsins hefur minnkað og gerlar, sem valda tannskemmdum, orðið allsráðandi. Rannsakendur geta nú einnig fylgst með hvernig erfðaefni í ákveðnum gerlategundum hefur breyst á löngu tímabili. Vonir standa til að tæknin geti nýst við aðrar svipaðar rannsóknir og gefið upplýsingar um hvernig mismunandi sjúkdómar hafa þróast síðan á steinöld. Fr ét ta pu nk tu r Heilsubreytingar vegna mataræðis Tannskemmdir hjá konu frá járnöld.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.