Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Side 24

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Side 24
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 201320 HEILSUTORG: NÝTT VIÐHORF Í HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU Í haust hefst nýtt þverfræðilegt námskeið við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og er það aðallega ætlað nemendum í framhaldsnámi. Það er í fyrsta skipti sem nemendur frá sex deildum og tveimur námsbrautum heilbrigðisvísindasviðs setjast á skólabekk saman til að vinna að þverfræðilegum verkefnum (Sólfríður Guðmundsdóttir o.fl., 2013). Samhliða uppbyggingu námskeiðsins hefur verið unnið að undirbúningi heilbrigðis þjónustu sem nefnd hefur verið Heilsutorg. Undirbúningur þessa tvíhliða þróunarverkefnis hófst árið 2010 með tilnefningu eins fulltrúa frá átta fræðigreinum heilbrigðisvísindasviðs í Sólfríður Guðmundsdóttir, solfridur@heil.is stýrihóp sem hefur unnið að því að koma verkefninu í framkvæmd (tafla 1). Dr. Sóley S. Bender, prófessor, hefur verið formaður stýrihópsins frá upphafi og er ötull frumkvöðull þessa verkefnis. Heilsutorg Tilgangur Heilsutorgs er að stuðla að bættu heilbrigði háskólastúdenta og þar með námsárangri þeirra, skapa þverfræðilegan vettvang þar sem klínísk kennsla og rannsóknir fara fram og skapa ný námstækifæri fyrir nemendur í heilbrigðisvísindagreinum. Háskólanám er krefjandi og margt hefur áhrif á það. Slæm heilsa og vanlíðan geta til dæmis dregið úr námsárangri. Um fimmtungur nemenda við skólann á lögheimili utan höfuðborgarsvæðisins og hefur takmarkaðan aðgang að heil­ brigðis þjónustu. Komið hefur í ljós að margir nemendur fresta því að leita eftir heilbrigðisþjónustu þó þeir glími við margvísleg heilbrigðisvandamál. Í nýlegri rannsókn meðal kvenkyns­ háskóla stúdenta við Háskóla Íslands kom til dæmis fram að um fimmtungur þeirra glímdi við þunglyndi og kvíða (Bernhardsdóttir og Vilhjálmsson, 2012). Sólfríður Guðmundsdóttir veitir hér innsýn í skipulag og mikilvægi þver fræði­ legrar menntunar og þær nýjungar sem skapast hafa við klíníska forvarna­ þjónustu Heilsutorgs. Sóley S. Bender, t.h., hefur haft veg og vanda af því að gera Heilsutorg að veruleika. Flestir hjúkrunarfræðingar þekkja hana en hún er prófessor í hjúkrunarfræðideild. Með henni á myndinni eru Sólfríður og Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.