Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Side 26
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 201322
hagsbóta fyrir þjónustuþega, þverfræði
lega nema, kennara og samfélagið. Allir
þættir líkansins skipta máli til að það
starfi sem skyldi og árangri sé náð.
Stærri umgjörð þess er mennta og
velferðarkerfi og samfélagið í heild.
Heilsutorg er eftirsóknarvert fyrir
nemendur, þjónustuþega og samfélagið
Sú heilbrigðis þjónusta, sem veitt verður á
Heilsutorgi, er meðal annars grundvölluð
á hugmyndafræði þverfræðilegra
kenninga sem reynast árangursríkar
erlendis. Rík áhersla er lögð á markvissa
samvinnu fólks með mismunandi fræði
legan bakgrunn sem leggur saman
þekkingu sína og reynslu í teymisvinnu.
Samsetning teymis miðast við þarfir
þjónustu þega hverju sinni. Markmiðið
er að veita samfellda og heilsueflandi
þjónustu (Sólfríður Guðmundsdóttir
o.fl., 2013). Á Heilsutorgi mun fara
fram þjónustunám þar sem nemandinn
veitir ákveðna þjónustu og leggur af
mörkum til samfélagsins. Þjónustunám er
skipulögð námsreynsla þar sem nemandi
veitir þjónustu og skilur sambandið á
milli þjónustunnar og háskólanámsins
sem fram fer samhliða. Þjónustunám
sinnir bæði þörfum samfélagsins
og nemandans í gegnum skipulögð
námstækifæri sem þjálfa fagnám og
þverfræðileg námsmarkmið.
Þjónustuþegar Heilsutorgs verða til að
byrja með háskólastúdentar og börn
þeirra. Fram fór könnun meðal stúdenta
Háskóla Íslands árið 2011 varðandi þörf
fyrir heilbrigðisþjónustu. Alls tóku 1487
nemendur (1427 íslenskir og 60 erlendir)
þátt í könnuninni en það eru 10% af þeim
sem skráðir voru í nám við háskólann á
þeim tíma. Niðurstöður sýndu að 85%
af íslensku nemendunum og 73% þeirra
erlendu sögðust hafa þurft á heilbrigðis
þjónustu að halda á sl. ári og rúmlega
helmingur nemendanna beið með að
leita sér heilbrigðisþjónustu. Flestir
höfðu áhuga á að nýta sér þjónustu
Heilsutorgs (55%95%) og vildu geta
fengið almenna heilbrigðisþjónustu, tann
lækna, kynheilbrigðis, geðheil brigðis
eða barneignarþjónustu auk ráð gjafar
um hreyfingu, næringu og lyf.
Samfélagslegur þrýstingur á háskóla
erlendis, frá heilbrigðisstofnunum og
stjórnvöldum, hefur aukist í sambandi
við að bjóða þverfræðilega menntun
fyrir heilbrigðisstarfsfólk til að það geti
betur sinnt þverfræðilegum störfum.
Sú krafa byggist á því að þegar
þverfagleg teymi sameina þekkingu
og færni til að ná bestu niðurstöðu
er það mun vænlegra til árangurs en
sérfaglegt starf. Gæði þjónustunnar
batna með markvissri þverfræðilegri
samvinnu þar sem hlutverkaskipan og
ábyrgð hvers sérfræðings í teyminu
er ákveðin og boðleiðir verða beinni
og fyrirframákveðnar (WHO, 2010).
Niðurstöður rannsókna sýna að
samlegðaráhrif sérfræðiþekkingar með
teymisvinnu skilar sér í auknu öryggi
þjónustunnar, styttri legutíma á sjúkrahúsi
(WHO, 2010) og er leið til að koma í veg
fyrir innlagnir langveikra í heimahúsum
(Holland o.fl., 2005). Auk þess eru íbúar
ánægðari með þverfræðilegt fyrirkomulag
þjónustunnar og það er fjárhagslega
hagkvæmt (Simmonds o.fl., 2001).
Nú eru liðin rúm fjörutíu ár frá því að
fyrstu þverfræðilegu námskeiðin voru
haldin fyrir nemendur á heilbrigðissviði í
NorðurAmeríku. Það er því orðið löngu
tímabært að bjóða íslenskum nemendum
heilbrigðisvísindagreina slíkt nám sem
undirbýr þá fyrir markvissa samvinnu
mismunandi sérgreina í framtíðarstarfi
þeirra.
Samfélagið og virkni þess hefur
áhrif á nám og heilbrigði nemenda
og íbúa. Til dæmis má nefna áhrif
heilbrigðisstefnu þjóðarinnar, aðgengi að
heilbrigðisþjónustu og úrræði heilbrigðis
og forvarnaþjónustu sem standa til boða.
Viðmið samfélagsins hafa mikið að segja
um lífsvenjur fólks, sömuleiðis aðstaða
stúdenta til náms og hvort þeir stefna að
því að lifa heilbrigðu lífi.
Þverfræðilegt nám
Haustið 2013 hefst þverfræðilegt
námskeið við Háskóla Íslands þar sem
nemendum á heilbrigðisvísindasviði er
kennt að vinna saman. Til að auka mark
vissa þverfræðilega samvinnu og sam
ræmingu þjónustunnar munu nemendur
og kennarar Heilsutorgs læra fyrst að
vinna saman á fræðilegu námskeiði. Þetta
fyrirkomulag stuðlar að bættu samstarfi
þar sem hver nemandi kynnir sína fræði
grein og lærir um fræðigreinar annarra
auk þess að temja sér gagnkvæma
virðingu og skilning gagnvart öðrum
fræðigreinum. Nemendur vita þá hvers
má vænta, læra að treysta hver öðrum
og skilja hvernig marg breytileikinn
bætir árangur hópsins til hagsbóta fyrir
þjónustuþega.
Sýnt hefur verið fram á að slík kennsla
stuðlar að auknu öryggi, gæðum og
hagkvæmni í þjónustu heilbrigðis
starfsfólks. Sífellt fleiri rannsóknir sýna
góðan árangur þverfræðilegrar kennslu
fyrir teymisvinnu í heilbrigðisþjónustu
erlendis (WHO, 2010). Ein megin
niðurstaða Petri (2010), sem byggðist
á niðurstöðum 98 þver fræði legra rann
sókna, er að forsenda árangurs ríkrar
þver fræðilegrar samvinnu í heil brigðis
þjónustu er þverfræðileg menntun heil
brigðis starfsmanna. Dæmi um hvernig
árangur hefur skilað sér erlendis er
bætt sam vinna milli fagsfólks sem felur
í sér mark visst upplýsinga flæði bæði í
samskiptum og með skráningu (WHO,
2010). Samkvæmt skýrslu Alþjóða heil
brigðis mála stofnunar innar (WHO, 2010)
er ein algengasta orsök mistaka á
sjúkrastofnunum skortur á samskiptum
eða léleg boðskipti milli meðferðar aðila.
Í þver fræðilegri kennslu er farið í sam
skiptaleiðir, áhrifaþætti á upplýsingaflæði
og hvernig bæði umhverfi og hinn mannlegi
þáttur geta haft áhrif á upplýsingaflæði.
Þetta skipulag er ekki síst nauðsynlegt
þar sem þjónustan verður sífellt flóknari
og er framkvæmd í margvíslegu umhverfi
við ólíkar aðstæður svo samstillt þjónusta
er enn meira áríðandi.
Þverfræðileg klínísk þjálfun nemenda
í heilbrigðisvísindum mun fara fram
á Heilsutorgi en þjálfunin byggist á
sameiginlegri kennslu til að auka færni
með nýrri hugmyndafræði. Nemendur
þurfa klínísk námstækifæri á stað sem
veitir þverfræðilega meðferð sem er
grundvölluð á hugmyndafræði slíkrar
samvinnu og það er mikilvægt að skapa
þannig aðstöðu með Heilsutorgi. Menntun
heilbrigðisstarfsfólks hérlendis hefur verið
miðuð við fræðigreinar og sérfræðigreinar.
Heilbrigðisstarfsfólk þjónar fólki út frá
sinni sérgrein, ýmist sem einyrkjar (t.d.
heimilislæknir, sjúkraþjálfari), hlið við hlið