Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Síða 27
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 2013 23
(t.d. hjúkrunarfræðingar og læknar við
bráðamóttöku) eða í teymum sem eru
sérhæfð til að þjóna ákveðnum hópi
skjólstæðinga og hver fagmaður hefur
ákveðið hlutverk (t.d. átröskunarteymi).
Sérstaða Heilsutorgs
Sérstaða Heilsutorgs felst í því að
námsferli og þjónustuferli tvinnast
saman í hugmyndafræðilegu líkani þar
sem þjónustuþeginn er miðpunktur
þjónustunnar og litið er á heildrænan hátt
á vanda mál eða viðfangsefni hans. Líkanið
tekur mið af heilbrigði þjónustuþegans og
leggur áherslu á samvinnu þar sem átta
fræðigreinar innan heilbrigðisvísindasviðs
nýta þverfræðilega hugmyndafræði í
kennslu og í klínísku námi.
Þverfræðilegt líkan er notað sem
hugmynda fræðilegur rammi kennslunnar
og teymisvinnunnar á Heilsutorgi. Það
auðveldar nemendum að ná árangri
þar sem kennarar, nemendur og
þjónustuþegar vinna saman.
Þjónustuþeginn er miðpunktur starf
seminnar. Meðlimir teymis, sem veita
þjónustuna, gegna ákveðnum hlutverkum
og eru í samvinnu við þjónustuþegann og
er það nýjung í vinnutilhögun. Leitast
er við að ná gagnkvæmum skilningi í
gegnum greiningar og meðferðarferlið
en það hvetur þjónustuþega og
meðferðaraðila til að leita bestu leiða
til að ná settum markmiðum og besta
mögulega árangri. Lögð er áhersla á
samvinnu við úrlausn viðfangsefna sem
þjónustuþegi hefur áhyggjur af og hann
fær aðstoð við að sinna þörfum til að efla
heilbrigði. Til þess að svo megi verða
þurfa þjónustuþegarnir sjálfir að leggja
meira af mörkum í meðferðarferlinu
en heilbrigðiskerfið gerir almennt ráð
fyrir í dag. Slík aðferð er hvetjandi fyrir
þjónustuþegann sem finnur að á hann er
hlustað og borin virðing fyrir skoðunum
hans í stað þess að fagfólk stjórni og gefi
fyrirmæli sem einstaklingurinn á að fylgja
hvað sem vilja hans líður.
Heildræn sýn á þarfir þjónustuþega
Heilsu torgs er leiðarljós teymisins
sem leggur áherslu á öll sjónarhorn
varðandi heilsufarsvandamál eða við
fangs efni þjónustuþegans. Heilsufar
einstaklingsins er skoðað á heildrænan
hátt út frá líkamlegri, andlegri, félagslegri
og tilfinningalegri líðan. Með heildrænu
mati er auðveldara að finna hugsanlega
áhrifaþætti og orsakavalda sem leitt geta
til bágrar heilsu (það geta til dæmis verið
reykingar, vaxandi streita, kyrrseta eða
rangt mataræði).
Með heildrænni sýn fæst yfirlitsmynd af
heilbrigðisvenjum og líðan þjónustuþega
þar sem tekið er tillit til umhverfisáhrifa
á heilsufar. Heilbrigðisstarfsfólk stendur
sífellt andspænis því að finna betri lausnir
á viðfangsefnum, veikindum, slysum og
heilsuvá. Þverfræðileg vinnubrögð, þar
sem mismunandi áhættuþættir og þarfir
eru teknir með í greiningu, kemur sér ekki
aðeins vel fyrir þjónustuþegann heldur
getur hún einnig dregið úr útgjöldum
og aukið vellíðan þjónustuþega og
starfsánægju þeirra sem veita þjónustuna.
Horft er á heilbrigði þjónustu þegans
í stað þess að ein blína á sjúk dóms
ástand hans. Unnið er út frá styrkleika
þjónustuþegans við að hjálpa honum að
bæta það sem hindrar heilsuna og leitast
er við að fyrir byggja sjúk dóma á heild
rænan hátt. Þessi aðferð hefur eflandi
áhrif á þjónustuþega og hvetur hann til
að taka meiri ábyrgð á eigin heilbrigði.
Fræðslunámskeið um ýmis heilsufarsleg
málefni og eftirfylgni mun standa til
boða fyrir þjónustuþega sem vilja breyta
lifnaðarháttum og þurfa stuðning til þess
(Sólfríður Guðmundsdóttir o.fl., 2013).
Þverfræðileg og fjölfræðileg teymisvinna
verður lögð til grundvallar Heilsutorgi.
Þverfræðilegt teymi er þegar starfs
mennirnir sameinast í einni komu
þjónustu þegans. Tekin er sameiginleg
heilsu farssaga, gert heilbrigðis mat,
greiningar settar fram, hugsan leg með ferð
og skammtíma og langtímamarkmið eru
unnin af teyminu í samvinnu við þjónustu
þegann. Þjónustuþeginn er virkur í
umræðum um heilbrigðisástand sitt,
framtíðar horfur og meðferðar áætlanir.
Sameiginlegur skilningur og heildarsýn
næst þar sem skjól stæðingurinn
er hvattur til að vera þátt takandi í
ákvarðana ferlinu og í skammtíma og
langtímamarkmiðssetningu. Einstaklingar
frá ólíkum fræðigreinum ásamt þjónustu
þeganum eru hvattir til að spyrja hver
annan og skoða ýmsar leiðir til að ná sem
bestum árangri fyrir hann.
Fjölfræðilegt teymi kallast það þegar
einstaklingar frá ólíkum fræðigreinum
sinna þjónustuþeganum út frá fræðigrein
sinni og nýta færni sína og reynslu.
Oftast felur þetta fyrirkomulag í sér að
fagmenn hverrar fræðigreinar hitta einir
þjónustuþegann. Þjónustuþeginn gæti
þó samdægurs hitt fleiri fagmenn annarra
fræðigreina í einni komu. Það er algengt
að fjölfræðilegt teymi hittist reglulega,
án þess að þjónustuþeginn sé til staðar,
þar sem farið er yfir sögu hans og rætt
um meðferðaráætlanir. Fjölfræðileg teymi
sameina þekkingu og reynslu til að ná
bestu niðurstöðu og er það vænlegra til
árangurs en sérfaglegt starf.
Ýtarlegri upplýsingar um fræðilegan
bakgrunn og skipulag kennslu þessa
þverfræðilega náms og starfsemi
Heilsutorgs má finna í nýútgefinni skýrslu
Heilsutorg: Þverfræðileg samvinna sem
er á vefsvæði heilbrigðisvísindasviðs
Háskóla Íslands.
Lokaorð
Það hefur lengi tíðkast við erlenda
háskóla að bjóða upp á þverfræðilegt
nám í heilbrigðisvísindagreinum. Það er
því kominn tími til þess hér á landi
að skipuleggja þverfræðilegt nám fyrir
nemendur á heilbrigðisvísindasviði. Þetta
framtak heilbrigðisvísindasviðs byggist á
samvinnu og gefur nemendum einstök
tækifæri til að vinna markvisst saman á
þverfræðilegan hátt. Þannig opnar það
nýja möguleika og eykur samlegðaráhrif
ólíkra fræðigreina.
Niðurstöður rannsókna hafa sýnt að
þegar nemendur úr tveim eða fleiri
fræðigreinum læra saman um eitthvert
efni, hver af öðrum og hver með öðrum,
auðveldar það árangursríka samvinnu
og bætir heilsufarslega niðurstöðu.
Auk þess að bæta líðan og koma í
veg fyrir sjúkdóma mun það að öllum
líkindum skila sér í töluvert minni
kostnaði fyrir samfélagið. Undanfarna
áratugi hafa háskólar í Evrópu smám
saman aukið þverfræðilega kennslu
nemenda í grunnnámi í heilbrigðis og
félagsvísindum. Þörf fyrir breytt kennslu