Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Side 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Side 29
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 2013 25 Reykjavík 18. apríl 2013 Boðun aðalfundar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 31. maí 2013 Hér með boðar stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) til aðalfundar félagsins, sem haldinn verður föstudaginn 31. maí næstkomandi kl. 09:00 - 16:00 á Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík. Samkvæmt lögum Fíh skal boða félagsmenn með fulla aðild og fagaðild til aðalfundar félagsins með minnst tveggja vikna fyrirvara. Til að öðlast atkvæðisrétt á aðalfundinum þurfa ofangreindir félagsmenn að skrá þátttöku sína á www.hjukrun.is fyrir miðnætti 24. maí næstkomandi. Aðrir fundarmenn hafa þar ekki atkvæðisrétt. Þeir félagsmenn sem ekki hafa nettengingu geta snúið sér til skrifstofu félagsins og skráð sig símleiðis. Dagskrá: • Kosning fundarstjóra og ritara, eftir tilnefningu stjórnar. • Skýrsla stjórnar. • Reikningar félagsins og sjóða á vegum þess. • Ákvörðun um félagsgjöld. • Áætlanir um starfsemi og fjárhag félagsins næsta starfsár lagðar fram. • Tillögur til lagabreytinga. • Starfsreglur fyrir sjóði og nefndir félagsins, svæðisdeildir og fagdeildir eða breytingar á þeim. • Formannskjöri lýst. • Kjöri fulltrúa svæðisdeilda lýst. • Kosning annarra stjórnarmanna. • Kosning skoðunarmanna. • Kosning í nefndir félagsins. • Önnur mál. Vakin er sérstök athygli á því að með hliðsjón af umhverfissjónarmiðum verða gögn fundarins eingöngu aðgengileg á rafrænu formi. Gögnin verða öll birt á vefsvæði félagsins www.hjukrun.is þann 24. maí 2013. Fundarmenn fá ekki afhent útprentuð fundargögn á aðal- fundinum og eru því hvattir til að kynna sér þau vel fyrir fundinn. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á aðalfundinn, taka virkan þátt í umræðum og ákvarðanatöku og hafa þannig áhrif á stefnu og störf félagsins. Virðingarfyllst, Elsa B. Friðfinnsdóttir Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.