Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Síða 44
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 201340
Bergdís Kristjánsdóttir gerir hér grein fyrir upphafi söfnunar
hjúkrunarminja innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
og framvindu þess máls.
HVAÐ VERÐUR UM
HJÚKRUNARMINJASAFNIÐ?
Árið 2000 var skipuð sögu og minjanefnd FÍH. Nefndinni var ætlað það hlutverk
að skoða og ákveða á hvern hátt mætti skrá og varðveita sögu hjúkrunar á
Íslandi, svo og að leita leiða til að safna saman og varðveita minjar sem tengjast
hjúkrun með það í huga að stofnsetja minjasafn hjúkrunar. Sá hluti nefndarinnar,
sem fékkst við varðveislu hjúkrunarminja, hóf störf árið 2002.
Nefndin starfaði af miklum krafti undir stjórn Ástu Möller. Hún aflaði upplýsinga
og gagna frá söfnum hérlendis og erlendis, leitað var upplýsinga og samstarfs
við forsvarsmenn heilbrigðisstofnana og félaga heilbrigðisstétta og fundir haldnir
með fulltrúum safna, meðal annars Þjóðminjasafns Íslands.
Meðal annars rituðu formaður nefndarinnar, Ásta Möller, og formaður félagsins,
Elsa B. Friðfinnsdóttir, bréf til allra hjúkrunarforstjóra heilbrigðisstofnana á landinu
þar sem liðsinnis þeirra var leitað við að varðveita og safna hjúkrunarminjum
og að félagið fengi muni til skráningar og ef til vill eignar. Farið var í ýmsar
vettvangsheimsóknir, svo sem á Borgarspítalann, Vífilsstaði, Landspítalann og
fleiri staði.
Í febrúar 2003 skilaði nefndin mjög ítarlegri skýrslu, Varðveisla og sýning
hjúkrunarminja, um störf og niðurstöður nefndarinnar. Hægt er að fá skýrsluna
hjá félaginu. Eftir þetta tók öldungadeild félagsins að sér að stýra starfi
minjanefndarinnar með Pálínu Sigurjónsdóttur í forsvari. Margir fundir voru
haldnir og leitað var leiða og skoðaðir ýmsir möguleikar um hvernig best væri að
varðveita munina. 2007 var undirrituð ráðin til starfa til að halda utan um muni
félagsins og skrá í Sarp, þ.e. skráningarkerfi Þjóðminjasafnsins. Nokkuð var til
af munum hjá félaginu.
Á síðustu starfsárum mínum á Landspítalanum hafði ég safnað ýmsum munum
sem tengdust hjúkrun, þar á meðal nokkrum hjúkrunarbúningum. Einnig hafði
Sigþrúður Ingimundardóttir tekið saman mikið af gömlum munum frá verklegu
kennslunni í Hjúkrunarskóla Íslands og voru þeir vel varðveittir í geymslum í
Eirbergi, húsnæði hjúkrunarfræðideildar og fyrrum húsnæði Hjúkrunarskóla
Íslands.
Í fyrstu var aðaláhersla lögð á að skrá hjúkrunarbúninga og síðar aðra muni sem
tilheyrðu umönnun sjúklinga. Áfram var rætt um hvernig best mætti varðveita
munina svo að þeir kæmust í varanlega geymslu og að aðgengi að þeim yrði
gott. Eftir miklar umræður var ákveðið að fara í samstarf við Lækningaminjasafnið
með von um að fleiri heilbrigðisstéttir legðu sinn skerf að því safni og að með því
móti næðist samstaða um safn sem tæki til allrar heilbrigðisþjónustu.
Bergdís Kristjánsdóttir, bergdiskr@gmail.com
Merki Félags íslenskra hjúkrunarkvenna frá 1926,
silfurskjöldur með stöfunum FÍH. Nælan var fest
á blátt ermaband og borin á vinstri handlegg á
frakka eða kjól. Hún var fyrst smíðuð 1926 og
hægt var að fá hana hjá Árna Björnssyni, gullsmið
í Reykjavík, fyrir 600 krónur.
Fleirnota vökvagjafarsett. Settin voru þrifin, sett
saman og dauðhreinsuð á deildum spítalanna og
voru í notkun fram til um 1950.