Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Síða 50
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 201346
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er
áþekkt meðalstóru fyrirtæki með talsverð
fjárhagsleg umsvif og spyrja sumir sig
hvaðan þetta fé kemur og hvert það fer.
Félagssjóður einn og sér veltir tæpum
170 milljónum króna árlega en rekstur
félagsins snýst hins vegar ekki bara um
það sem er kallað félagssjóður. Að auki
rekur félagið vinnudeilusjóð, orlofssjóð,
starfsmenntunarsjóð, vísindasjóð og
styrktar og sjúkrasjóð, fyrir utan að sjá
um þá þrjá minningarsjóði sem vistaðir
Sólveig Stefánsdóttir, solveig@hjukrun.is
Í HVAÐ FARA FÉLAGSGJÖLDIN?
Að mörgu þarf að hyggja þegar félag skal byggja. Á aðalfundi 31. maí nk.
verður að venju lagður fram ársreikningur síðasta árs fyrir Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Tímarit hjúkrunarfræðinga fékk fjármálastjóra félagsins til að
segja frá því í hvað félagsgjöldin fara.
eru hjá félaginu. Samtals er velta þessara
sjóða ríflega 500 milljónir króna. Margir
segjast ekki skilja af hverju þarf svona
upphæðir til þess að reka félagið en ef
rýnt er í helstu kostnaðarliði má finna
ýmsar skýringar.
Tekjur félagssjóðs FÍH myndast að
stærstum hluta af félagsgjöldum en þau
nema um 85% af heildartekjum. Í lögum
félagsins kveður á um að aðalfundur
skuli ákvarða hver félagsgjöld séu og
samkvæmt því greiða félagsmenn með
fulla aðild um 1,5% af dagvinnulaunum
sínum til félagsins. Í mörgum tilfellum, til
að mynda hjá öllum þeim félagsmönnum
sem starfa á LSH, eru iðgjöld í vinnu
deilusjóð, sem eru 0,15% af dagvinnu
launum, lögð ofan á félagsgjöld á
launaseðli félagsmanna.
Launagreiðendum er skylt samkvæmt
kjara samningum að greiða framlag í aðra
sjóði, þ.e. orlofssjóð, starfs menntunar