Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Síða 55

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Síða 55
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 2013 51 Ritrýnd fræðigrein SCIENTIFIC PAPER Mælitæki Spurningalistinn var að mestu leyti saminn af höfundum, sérstaklega fyrir þessa rannsókn. Spurt var um bakgrunn þátttakenda, aldur, menntun, fjölskylduaðstæður, fjárhag, tíma í skilunarmeðferð, tíma frá ígræðslu og fjölda nýrnaígræðsla. Spurningalistinn innihélt einnig spurningar um stuðning, til dæmis „Fékkst þú stuðning og leiðbeiningar frá heilbrigðisstarfsfólki þegar þú varst komin með nýrnabilun á lokastigi?“ „Fékkst þú stuðning við að finna lifandi nýragjafa þegar ljóst var að þú þurftir á ígræðslu að halda?“ Spurt var um fræðsluefni: „Fannst þér vanta fræðslu eða upplýsingar frá lækni/hjúkrunarfræðingi fyrir ígræðslu?“ „Fékkst þú afhent fræðsluefni um nýrnaígræðslu?“ „Vantaði þig fræðsluefni fyrir ígræðslu?“ Spurt var um upplifun nýraþega af því að biðja um og þiggja nýra frá lifandi gjafa: „Fannst þér erfitt að biðja um gjafanýra?“ Einnig var spurt um tilfinningar þegans í garð gjafans: „Hefur þú sömu tilfinningar til gjafans fyrir og eftir aðgerð?“ Að lokum var spurt um lyfjameðferðarheldni og heilsufar eftir nýraígræðsluna: „Hefur þú alltaf tekið lyfin þín reglulega og samkvæmt fyrirmælum læknis?“ „Hefur þú greinst með einhverja af eftirtöldum sjúkdómum eftir nýraígræðslu?“ (svo sem krabbamein, sykursýki, hjarta­/ æðasjúkdóma, beinþynningu). Spurningalistinn innihélt einnig lífsgæðaspurningalistann SF­36v2 (SF­36v2 Health Survey) til þess að kanna núverandi lífsgæði nýraþeganna (Ware og Sherbourne, 1992) en sá listi hefur verið þýddur og staðlaður á íslensku undir heitinu: „Heilsa þín og vellíðan. SF­36. Spurningar um heilsu og lífsgæði.“ (Þýðing: Magnús Ólason. Verkjasvið Reykjalundar, 2003.) Listinn metur heilsutengd lífsgæði svarenda og inniheldur 36 spurningar þar sem þátttakendur meta líkamlega og andlega heilsu sína, virkni og vellíðan. Spurningarnar 36 skiptast í tvo aðalþætti, þ.e. líkamlegan þátt, sem hefur fjóra undirflokka (líkamleg færni, takmarkanir til að stunda atvinnu eða félagslíf vegna líkamlegra óþæginda, verkir og almenn heilsa), og andlegan þátt sem einnig hefur fjóra undirflokka (lífsþróttur, félagsleg virkni, takmarkanir til að stunda atvinnu eða félagslíf vegna andlegra vandamála og andleg heilsa). Svarmöguleikar hverrar spurningar eru 3­6 á Likert­kvarða. Siðfræði Fengið var leyfi hjá siðanefnd Landspítala (17/2010), framkvæmdastjóra lækninga og yfirlækni nýrnalækninga á Landspítala. Tilkynning var send til Persónuverndar (S4677/2010). Leyfi var einnig fengið frá Quality Metric Incorporated til þess að nota SF­36v² spurningalistann og tölvuforrit til að reikna út stig úr listanum og var greitt fyrir hvorutveggja. Ekki var reiknað með að siðferðileg álitamál kæmu upp og var þátttakendum boðin aðstoð ef erfiðar tilfinningar kæmu upp við þátttöku. Þátttakendum var frjálst að hafna þátttöku í rannsókninni á hvaða tímapunkti sem var. Spurningalistarnir voru ekki rekjanlegir til einstaklinga og fullum trúnaði var heitið. Framkvæmd Gögnum var safnað í apríl og maí 2010. Sendir voru út 96 spurningalistar ásamt kynningarbréfi þar sem fram kom boð um að taka þátt í rannsókninni. Þátttaka í rannsókninni jafngilti skriflegu upplýstu samþykki. Þremur vikum eftir að listarnir voru sendir út fengu allir þátttakendur sent þakkarbréf og þeir sem ekki höfðu svarað voru hvattir til þátttöku. Úrvinnsla Gögn voru slegin inn í Excel og síðan færð í tölvuforritið PASW Statistics 18 (SPSS 18) þar sem unnið var úr gögnum rannsóknarinnar. Notuð var lýsandi tölfræði þar sem fylgni milli breyta var skoðuð. Krosstöflur, kí­kvaðrat og t­próf voru notuð til að kanna tengsl milli breyta og marktækni. Niðurstöður spurningalistans SF­36v² voru færðar í tölvuforrit (QualityMetric Health Outcomes™ Scoring Software 4.0) og þær síðan færðar yfir í SPSS. Tölvuforritið gaf niðurstöður með tvennum hætti. Annars vegar var hrágögnum umbreytt í stig á kvarðanum 0­100 og hins vegar reiknaði tölvuforritið meðaltal eða normalstig þátttakenda miðað við bandarískt þýði frá árinu 1998. Rannsóknir hafa sýnt að bandaríska þýðið er sambærilegt við niðurstöður frá öðrum vestrænum löndum (Jenkinson, 1999; Keller o.fl., 1998; Ware, o.fl., Tafla 1. Þýði rannsóknar. Tímabilið 1970­2009. Fjöldi einstaklinga sem hafa fengið ígrætt nýra 173 Einstaklingar sem hafa fengið ígrætt nýra tvisvar 22 Einstaklingar sem hafa fengið ígrætt nýra oftar en tvisvar 2 Nýraígræðsluaðgerðir alls 197 Fjöldi nýrna frá lifandi gjafa 117 Fjöldi nýrna frá látnum gjafa 80 Nýraþegar undanþegnir rannsókn 77 Látnir nýraþegar 57 Börn (yngri en 18 ára í árslok 2009) 4 Íslenskir nýraþegar búsettir erlendis 6 Fatlaðir einstaklingar og þeir sem ekki tala íslensku 9 Einn einstaklingur finnst ekki í þjóðskrá 1 Alls þátttakendur í rannsókn 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.