Þjóðmál - 01.03.2010, Síða 15
Þjóðmál VOR 2010 13
færu á almennan markað gætu verið að
greiða niður þau 80% orkunnar sem fara til
stóriðju, eins og stundum er haldið fram .
Af yfirlýsingu sumra ráðherra og stuðn-
ingsmanna ríkisstjórnarinnar mætti ætla, að
þeir líti á það sem norrænt velferðarmarkmið
að hækka orkuverð hér til samræmis við
verð annars staðar á Norðurlöndum .
IV .
Í stefnuyfirlýsingu velferðarstjórnarinnar segir, að djúp niðursveifla í kjölfar
bankahrunsins hafi skapað misgengi á
milli greiðslubyrði og greiðslugetu margra
heimila í landinu . Þetta misgengi verði að
leiðrétta með lækkun á greiðslubyrði þeirra
sem verst standa, þar til verðmætasköpun
atvinnulífsins taki aftur að aukast .
Eins og hér hefur verið lýst er borin von,
að verðmætasköpun atvinnulífsins aukist
undir stjórn þeirra Jóhönnu og Steingríms
J . Því miður hafa allar ráðstafanir þeirra
til þessa stuðlað að því að draga úr þrótti
atvinnulífsins . Það, sem þau kalla „misgengi“
fyrir heimilin í landinu, varir því lengur en
ella fyrir bragðið .
Hinn 1 . febrúar 2010 birti Alþýðusam-
band Íslands niðurstöðu könnunar, sem
Capacent Gallup hafði unnið fyrir sam-
bandið . Þar taldi 91% aðspurðra, að ríkis-
stjórnin þyrfti að gera meira til að mæta
greiðsluvanda heimilanna . Könnunin sýndi
samdrátt í neyslu heimilanna á flestum
sviðum . Í tilkynningu frá ASÍ í tilefni af
könnuninni segir:
„Óánægjan með takmarkaðar aðgerðir
eða aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar vegna
greiðsluvanda heimilanna er mikil ef marka
má niðurstöðurnar . Níu af hverjum tíu
segir ekki nóg gert . Þetta er nánast sama
niðurstaða og í júní 2009 þrátt fyrir að [Árni
Páll Árnason] félagsmálaráðherra hafi sett
greiðslujöfnun á öll húsnæðislán í skilum
í desember sl . og fjármálastofnanir hafi
boðið upp á ýmis úrræði fyrir einstaklinga
í fjárhagsvanda í haust . Óánægjan er meiri
meðal kvenna en karla og áberandi mikil
meðal þeirra sem misst hafa vinnuna .
Þegar spurt var hvað stjórnvöld eigi að
gera meira en þau hafa nú þegar gert til
að mæta greiðsluvanda heimilanna nefndu
langflestir niðurfellingu skulda eða lækkun
höfuðstóls . 13% nefndu aðgerðir til að
koma til móts við fólk með síhækkandi
hús næðislán og 12% afnám verðtryggingar .
Lang flest svörin snéru þannig að lækkun
eða leiðréttingu fasteignalána .“
Í þessum orðum er því lýst, hvernig
ríkisstjórninni hefur tekist að slá skjaldborg
um heimilin . Með öðrum orðum: Henni
hefur gjörsamlega mistekist það .
V .
Niðurstaða samantektar á störfum ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur
er einföld: Hún hefur grafið undan
velferð á Íslandi . Ríkisstjórnin hefur
stórlega veikt innviði atvinnulífsins og
vegið að framtíðarhag þjóðarinnar . Aðför
ríkisstjórnarinnar leiðir til samdráttar í
þjónustu á sviði mennta- og heilbrigðismála .
Félagsleg þjónusta skerðist og hagur alls
almennings versnar .
Út á við hefur ríkisstjórnin rýrt traust
þjóð ar innar . Hún megnar ekki að tryggja
heima fyrir fylgi við samninga sína við
rík is stjórnir annarra landa . Ríkisstjórnin
hefur stigið örlagaríkt skref gagnvart
Evrópusambandinu, án þess að vera
samstiga um, hvað gert skuli næst . Hún
hefur veikt stöðu Íslands innan evrópska
efna hagssvæðisins . Ríkisstjórnin sýnir fálæti
í samskiptum við Atlantshafsbandalagið .
Sitji ríkisstjórnin áfram, sígur enn á
ógæfu hliðina . Þjóðin býr við óhæfa vinstri
stjórn án velferðar .