Þjóðmál - 01.03.2010, Síða 57
Þjóðmál VOR 2010 55
Ólafur Thors var forsætisráðherra árið 1946 þegar nefnd færustu hagfræð-
inga landsins lagði til allsherjar áætlunarbú-
skap í landinu . Þegar ráðuneytisstjóri hans
færði það í tal við hann hvað ætti að borga
hag fræðingunum fyrir störf þeirra sagði
Ólafur að þeir ættu ekki grænan eyri skilið .
Þegar hér var komið sögu hafði Ólafur barist
við haftastefnuna á pólitískum forsendum í
rúman einn og hálfan áratug . Og þá komu
háskólamennirnir og mæltu með höftunum
í nafni sérfræðiþekkingar sinn ar . Ólafi
fannst tillögur hagfræðinganna „þröng-
sýnar, óraunsæjar og barnalegar“ . Hann
vissi að þeir höfðu rangt fyrir sér eins og
fljótt kom á daginn . En upp voru runnir
þeir tímar þar sem brjóstvitið mátti sín lítils
and spænis sérfræðingaviskunni .
Segja má að barátta fyrir athafnafrelsi hafi verið rauður þráður á stjórnmálaferli
Ólafs og markað bæði upphaf hans og endi .
Hann tók við formennsku í Sjálfstæðis-
flokkn um 1934 þegar haftakerfið var fest í
sessi og lét af stjórnmálaafskiptum þrjátíu
árum síðar þegar ríkisstjórn hans, Viðreisnar-
stjórnin, hafði loks sigur á höftunum . Ólafur
stóð fyrir þremur veigamiklum tilraunum
til að losna við höftin – gengisfellingunum
miklu 1939, 1950 og 1960, en innflutnings-
og gjaldeyrishöftin spruttu sem kunnugt er
af gjaldeyrisþurrð sem skapaðist af of hátt
skráðu gengi krónunnar . Tilraunin 1939
tókst að nokkru, tilraunin 1950 að hálfu en
með viðreisnaraðgerðunum 1960 var höft-
unum loks hrundið .
Ástjórnmálaferli Ólafs átti sú skoðun víða hljómgrunn að frjáls verslun væri
ekki til og ekki heldur frjáls samkeppni, slíkt
væri „aðeins draumur óraunsærra manna,
eða vísvitandi blekkingarvefur“ . Margir
flokks menn Ólafs efuðust jafnvel um að það
væri raunhæft að afnema höftin því að til
Jakob F . Ásgeirsson
Ólafur Thors
– maður allra tíma
Síðastliðið haust afhentu erfingjar Ólafs Thors forsætisráðherra
skjala- og myndasafn hans Borgarskjalasafni til eignar og varðveislu .
Af því tilefni var móttaka í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem Ólafs
var minnst stuttlega, meðal annars með eftirfarandi frásögn .