Þjóðmál - 01.03.2010, Page 72
70 Þjóðmál VOR 2010
Svo er það „norræna velferðarkerfið“, þeir misskilja það líka . Þeir koma því
á með því að hækka skatta og auka flækju-
stigið til muna . Margt má gott segja um
hið norræna velferðarkerfi . Það felst auð-
vitað í góðu aðgengi að heilbrigðis þjónustu
og vel er hugsað um þá sem minna mega
sín . En skattkerfið þeirra þykir engum
til fyrirmyndar . Í Danmörku hefur það
m .a . leitt til þess að lítill hvati er til lang-
skóla náms, þannig að fáir leggja t .d . fyrir
sig skurð lækn ingar . Það er nefnilega ekki
mikill munur á því að vera læknir og iðnað-
ar maður, launa lega séð . Þetta leiðir til
þess, að notast er við indverska skurðlækna
í auknum mæli . Þeir geta verið góðir til síns
brúks, enda er manns lík aminn eins í öllum
löndum, en þeir tala ekki tungu innfæddra .
Hver vill láta lækni annast sig sem ekki er
hægt að tala við?
Svo er það hinn vinsæli frasi vinstri
manna: „tiltekt eftir íhaldið“ . Með árunum
skelfist ég alltaf meir og meir þennan frasa
þeirra . Árið 1994 hófst tiltekt eftir íhaldið í
borginni . Eftir tólf ára tiltektarstarf höfðu
skuldir hundrað faldast og álögur snarhækk-
að og Orku veitan notuð í vafasamar fjár -
fest ingar . Núna, eftir síðustu tiltekt, hefur
þeim tekist að eyðileggja skattkerfið og rífa
niður það sem byggt hefur verið upp . Þeir
ætla sér svo að rústa fjárhag þjóðarinnar
með Icesave-bullinu .
Ég ætla rétt að vona að ákefð þeirra í „tiltekt eftir íhaldið“ fari að dvína .
Og að efnahagslíf þjóðarinnar verði ekki
kæft með „skjaldborgum“ og „norrænu
velferðarkerfi“ . Fyrst vinstri menn hafa
gaman af að vasast í pólitík er svo sem í lagi
að hafa þá á þingi – í stjórnarandstöðu . Þar
geta þeir lítið gert af sér . En í ríkisstjórn, þar
tekst þeim fyrr eða síðar að koma landinu
endanlega á hliðina, þrátt fyrir allan
dugnaðinn sem býr í Íslendingum . Til allrar
hamingju hefur vinstri stjórn ekki náð að
lafa heilt kjörtímabil á seinni árum .
_____________________
Atvinnulífið hafnar Baugsmönnum
Smáfuglarnir sáu að Jóhannesi Jónssyni og Ara Edwald var rækilega hafnað í
kosningu til stjórnar Viðskiptaráðs Íslands
[17 . febrúar 2010] . Jóhannes í Bónus
komst ekki einu sinni á blað – hvorki til
aðalstjórnar né varastjórnar . Þrátt fyrir að
atvinnulífið beri ekkert traust til Jóhannesar
þá taldi Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri
Arion banka, hins vegar Jóhannes þann
traustasta í íslensku atvinnulífi þegar hann
afhenti honum Haga á silfurfati .
Ari Edwald náði ekki kjöri til stjórnar og
varð þriðji síðasti inn í varastjórn . Það er
mikil hneisa fyrir Ara sem í eina tíð var aðal
talsmaður atvinnulífsins . Ari er nú forstjóri
365 miðla og einn helsti samverkamaður Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar . Ari tók þátt í frægri
afskriftarfléttu þar sem tæpir 5 milljarð ar
sátu eftir á sáru enni skattgreiðenda .
Er það smáfuglunum ákveðinn léttir
að sjá að enn séu einhverjir til sem telja
að menn eigi að uppskera eins og þeir sá .
Félagsmenn í Viðskiptaráði Íslands virðast
þannig hafna skuldakóngum Íslands og
þeirra meðreiðarsveinum .
Ekki kom fram í tölum Viðskiptaráðs
hvort Jóhannes hafi fengið 1 atkvæði eða
fleiri og þá hvort þetta eina atkvæði hafi
verið frá Finni Sveinbjörnssyni .
Fuglahvísl á amx .is 19. febrÚar 2010.