Þjóðmál - 01.06.2011, Page 6
4 Þjóðmál SUmAR 2011
flugfelag.is
Skráðu þig í
Netklúbbinn
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Félagar í Netklúbbnum fá fyrstir upplýsingar
um tilboð og nýjungar í tölvupósti.
Alltaf ódýrast á netinu
www.flugfelag.is
víkur, græðgi bankanna o .s .frv . En þegar
sumarið gengur í garð og sólin skín á
Ís landi gleymist jafnvel allt þetta . Fag
urri og skemmti legri veru leiki kall ar á
athyglina .
Vegna plássleysis er ritstjóraspjallið með stysta móti að þessu sinni . Ekki má þó
láta hjá líða að minnast á 200 ára af mæli
Jóns Sigurðssonar . Hann er óneit an lega
fremstur Íslendinga að mann kostum og
gáfum bæði fyrr og síðar . Hver sem kynnir
sér sögu hans kemst að því að í rauninni
er ekkert ofmælt á hátíðar spjöldunum
gömlu um sóma Íslands, sverð þess og skjöld
eða óskmög Fjallkonunnar . Jón Sig urðsson
var einfaldlega allra manna vænstur og allra
manna snjallastur!
Ólíklegt er að þetta kom ist til skila í
hátíðahöldum vegna 200 ára af mæl isins .
Við lifum á undarlegum tímum . Ef einhver
eða eitthvað sker sig úr fyrir afburða sakir í
sögu okkar hleypur „há skóla samfélagið“ til
og rífur það niður, af byggir eins og það er
kallað . Í Háskóla Ís lands, sem stofnaður var
á 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar honum
til heiðurs, er það sem sannast er vitað um
Jón og störf hans orðið að „mýtunni um
Jón“ og lýst sem ein hvers konar verkfæri
þjóðernis ofstækis manna .
Eins og fyrri daginn láta Þjóðmál vit leys
una sem veður uppi í há skólum landsins
sem vind um eyru þjóta — og heiðra
minn ingu Jóns Sigurðssonar með sígild
um ummælum Steingríms skálds Thor
steins sonar:
„Ég hef aldrei þekkt mann sem með máli
sínu og persónu allri hafði jafn mikil áhrif á
þá, sem hann talaði við eða um gekkst, og
fylgir það einatt þeim, sem mikil menni eru
og fædd ir foringjar .“
Að svo mæltu óska ég lesendum gleðilegs sumars .