Þjóðmál - 01.06.2011, Page 10
8 Þjóðmál SUmAR 2011
þingflokknum og gekk til liðs við Lilju og
Atla eftir vantraustsumræðurnar 13 . apríl .
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
brást við á sinn dæmigerða hátt þegar sjálf
stæðismenn boðuðu vantrauststillögu sína .
Hún fagnaði henni og lét eins og hún gæfi
henni tækifæri til að „smala köttunum“ eða
„þétta raðirnar“ . Hvorugt gerðist . Ríkis
stjórn in stóð veikari eftir en áður . Meirihluti
hennar hangir á bláþræði .
Með vantrauststillögunni vildu þing menn
Sjálfstæðisflokksins skerpa skilin milli sín og
stjórnarþingmanna eftir að meiri hluti þing
manna flokksins lagði ríkis stjórn inni lið í
Icesave III, illu heilli . Miðað við atlöguna
sem gerð hefur verið að sjálf stæðis mönnum
á þingi frá myndun ríkis stjórn ar innar 1 .
febrúar 2009 voru það söguleg pólitísk tíð
indi að þingmenn annarra flokka stóðu með
þingmönnum Sjálf stæðisflokksins þegar á
reyndi í átökum milli hans og ríkis stjórn ar
innar vegna van trausts ins . Sjálfstæðis menn
stóðu ekki einir og ein angr að ir í atkvæða
greiðslunni á þingi . Þeir brut ust út úr herkví
þar . Það skipti miklu fyrir Bjarna Benedikts
son, formann Sjálf stæðis flokks ins, í málinu .
Alþingi nýtur lítillar virðingar um þess ar
mundir . Þess vegna er ef til vill ekki undar
legt að þingmenn óttist að leggja störf sín
í dóm kjósenda . Margir þeirra óttast að
ná ekki endurkjöri . Þessi hræðsla birtist í
atkvæðagreiðslu um þann hluta van trausts
tillögunnar sem laut að þingrofi og nýjum
kosningum . 22 þingmenn studdu þing rofið
en 36 voru á móti .
Forsætisráðherra á hverju sinni síðasta
orð ið um þingrof . Þrjóska og þrákelkni Jó
hönnu Sigurðardóttur ræður ferð hennar í
þessu efni eins og öðrum . Tilboð hennar á
fundi flokksstjórnar Samfylkingarinnar 29 .
maí 2011 um að breyta nafni og númeri
flokksins til að ná til ESBaðildarsinna í
öðrum flokkum ber með sér að hún treystir
ekki lengur á Steingrím J . í einu og öllu .
II .
Eftir atkvæðagreiðsluna um vantraustið lét Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Fram
sóknarflokksins, orð falla á þann veg að hún
væri ekki afhuga samstarfi við Jóhönnu og
Steingrím J . Hún setti sjónarmið sín að
sjálfsögðu í þann búning að fyrir henni
vekti að gæta þjóðarhags . Að þingmaður
Framsóknarflokksins telji það best gert með
því að halda Jóhönnu og Steingrími J . við
völd lýsir hvorki miklu pólitísku raunsæi né
trú á málstað eigin flokks .
Að mati samfylkingarfólks tilheyrir Siv
þeim hópi þingmanna sem stendur Sam
fylkingunni næst þegar til ágreinings
kemur á þingi . Þessi afstaða Sivjar birtist
á alþingi strax eftir að Jóhanna myndaði
minnihlutastjórn sína 1 . febrúar 2009 . Í
fyrrnefndri ræðu á flokksstjórnarfundinum
höfðaði Jóhanna meðal annars til Sivjar
þegar hún sagði við ESBaðildarsinna í
öðrum flokkum:
Samfylkingin á að standa öllum þessum
hópum opin [ . . .]
Breytt skipulag, nýtt nafn, ný forysta
eða annað á ekki að standa í vegi fyrir
því að þessi mikilvægu málefni fái
kröftugan framgang og jafnaðarmenn í
öllum flokkum geti sameinast á öflugum
flokksvettvangi . Í þessum efnum má ekki
standa á okkur í Samfylkingunni .
Þarna sagði Jóhanna að hún vildi stofna
nýjan flokk í stað Samfylkingarinnar eða
jafnvel víkja sæti gæti það orðið til þess
að innbyrða Siv og aðra sem hafa veikar
taugar til stefnumála flokksins í ESB og
auðlindamálum .
Með orðum sínum vildi Jóhanna ná til
hóps innan VG, manna eins og Árna Þórs
Sigurðssonar, þingmanns Vinstri grænna .
Innan VG eiga ESBvinir sífellt meira undir