Þjóðmál - 01.06.2011, Page 14

Þjóðmál - 01.06.2011, Page 14
12 Þjóðmál SUmAR 2011 meirihluta þingflokks sjálfstæðismanna sem studdi Icesave­lögin . Þjóðin hafnaði lögunum á afdráttarlausan hátt og talið er að 70% til 75% sjálfstæðismanna hafi greitt atkvæði gegn þeim . Í 82 ára sögu Sjálfstæðisflokksins hefur það vissulega gerst áður að gjá myndist á milli þeirra sem fara með mál á alþingi í umboði flokksins og flokksmanna . Gjáin hefur þó sjaldan ef nokkru sinni orðið breiðari en núna . Undanfarnar vikur hafa formaður og varaformaður flokksins lagt land undir fót og efnt til funda til að hlusta á flokksmenn og skýra sjónarmið sín . Meðal sjálfstæðismanna er rík hefð fyrir því að sýna forystumönnum sínum hollustu . Út á við verður þess ekki heldur vart að órói sé innan flokksins eftir Icesave­atkvæðagreiðsluna . Ekki er um neinn framboðsfrest að ræða vegna formanns eða varaformanns . Á síðasta landsfundi bauð Pétur H . Blöndal alþingismaður sig til dæmis fram gegn Bjarna Benediktssyni formanni á lands­ fundinum sjálfum . Kraumi óánægja undir niðri innan Sjálfstæðisflokksins vegna Icesave­málsins eða annarra mála er líklegt að hún komi upp á yfirborðið í september og október þegar hugað verður að vali manna á landsfund . Á 39 . landsfundi, sumarið 2010, var sam­ þykkt ályktun sem séra Halldór Gunn ars ­ son í Holti flutti fyrir hönd full trúa ráðs sjálfstæðisfélaganna í Rangár valla sýslu . Þar var skorað á forystu Sjálf stæðis flokksins, þar með talda þingmenn flokks ins og for­ ystusveit í sveitarstjórnum, að íhuga vel stöðu sína með tilliti til fylgis flokks ins í fram tíðinni . Það væri al kunna í þjóð félaginu að þeir sem hefðu þegið há fjár framlög frá félögum, jafnvel í al mannaeigu og/eða feng­ ið óeðlilega lána fyrir greiðslu á undan förn um árum, um fram það sem almenningur hefði átt kost á, ættu að sýna ábyrgð sína með því að víkja úr þeim störfum og embættum sem við komandi hefðu verið kosin til . Þetta ætti einnig við um þá sem hefðu brotið af sér á einhvern hátt eða sýnt afskipta leysi, hvort sem það væri af þekkingarskorti eða öðrum orsökum . Þarna er, að nokkru undir rós, talað um uppgjör innan Sjálfstæðisflokksins sem er óhjákvæmilegt áður en gengið er til þess að velja frambjóðendur á lista flokksins fyrir næstu þingkosningar . Skerist í odda innan flokksins vegna atriða af þeim toga sem vikið er að í samþykkt landsfundarins er það vegna þess að menn spyrja ekki hvað þeir geti gert fyrir flokkinn heldur hvað flokkurinn geti gert fyrir þá . V . Í fyrrnefndri ræðu á flokksstjórnarfundi Samf ylkingarinnar sagði Jóhanna Sig­ urð ardóttir að þjóðin hefði gengið fimm sinnum til kosninga frá því að stjórn hennar var mynduð . Hér vísar hún til þing kosninga í apríl 2009, fyrri Icesave­ at kvæðagreiðslunnar í mars 2010, sveitar­ stjórnakosninga í maí 2010, kosninga til stjórnlagaþings í nóvember 2010 og seinni Icesave­atkvæðagreiðslunnar í apríl 2011 . Einar þessara kosninga, til stjórnlaga þings, ógilti hæstiréttur . Óbilgirni forsætisráð­ herra í garð hæstaréttar birtist þá í því að hún knúði fram samþykkt á alþingi um stjórnlagaráð í stað stjórnlagaþings . Tóku nær allir sem náðu kjöri í hinni ógildu kosningu sæti í stjórnlagaráðinu . Eftir þessa hrakför við framkvæmd stjórn­ laga þingskosninga hefði Ögmundur Jónas­ son átt að segja af sér ráðherraembætti en hann bar ábyrgð á að löglega yrði staðið að kosningunum . Hann sat hins vegar sem fastast . Hið sama er að segja um ríkis stjórn­ ina í heild eftir að hún hafði tapað Icesave­ atkvæðagreiðslu öðru sinni . Henni datt ekki í hug að axla pólitíska ábyrgð og segja af sér .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.