Þjóðmál - 01.06.2011, Qupperneq 17
Þjóðmál SUmAR 2011 15
Það ríkti alltaf hátíðleg stemning í leik
húsunum . Fólk var prúðbúið og eftirvænting
lá í loftinu . Eftir að Konunglega leikhúsið
tók til starfa þótti mikil fremd að fara
þangað . Konunglega leikhúsið var í augum
íslensks leikhúsfrömuðar „gyllta hliðin á
Kaup mannahöfn“ .2
Ingibjörg og Jón tengdust um skeið einu
leikhúsi borgarinnar, Casino, vegna þess að
þar vann þjónn þeirra, Jósef að nafni, við
dyravörslu á kvöldin . Ingibjörg Jensdóttir,
bróðurdóttir Jóns, sem dvaldi á heimilinu
veturinn 1877–1878, ung stúlka, minnist
þess að hún hafi stundum fengið frá honum
1855–1875, Einar Laxness bjó til prentunar, samdi
inngang og skýringar (Reykjavík 2007), Jón Guðmunds
son til Jóns Sigurðssonar, 20 . febrúar 1874, bls . 349 . Sjá
einnig: Guðjón Friðriksson, Jón Sigurðsson. Ævisaga I–II
(Reykjavík 2002–2003), hér II . b ., bls . 357–358 .
2 Indriði Einarsson, Séð og lifað. Endurminningar (Reykja
vík 1972), bls . 124–125 .
miða í Casino: „Í fyrsta skipti, sem hann
gaf mér miða, stakk ég honum í barminn
og fór með hann inn til „bróður“ og sýndi
honum . „Þú geymir hann meira að segja
hjartamegin í barminum,“ sagði hann .“3
Allt bendir til að Ingibjörg og Jón hafi tekið þátt í borgarlífinu af lífi og sál .
Þrátt fyrir annasama daga gerðu þau sér
dagamun og nutu nútímalegra skemmtana
og menningarviðburða, leikhúsferða og
myndlistarsýninga svo nokkuð sé nefnt .
Það var alger nýbreytni á 19 . öld að fólk
eins og Jón og Ingibjörg hefði tækifæri til
að sækja sambærilega skemmtun og þeir er
efst stóðu í mannvirðingastiganum . Fram
á 18 . öld höfðu það aðeins verið þeir sem
3 Valtýr Stefánsson, „Gamlar myndir og minningar .
Frú Ingibjörg Jensdóttir segir frá“, Myndir úr þjóðlífinu.
Fimmtíu viðtöl (Reykjavík 1958), bls . 145 .
Prúðbúnir gestir á kvöldgöngu í nágrenni heimilis Jóns og Ingibjargar í Kaupmannahöfn .
Østervoldgade í baksýn . Myndina málaði Andreas Herman Hunæus árið 1862 .