Þjóðmál - 01.06.2011, Síða 20

Þjóðmál - 01.06.2011, Síða 20
18 Þjóðmál SUmAR 2011 en í Tívolí hægt að gleyma sér — horfa á brúðuleikhús og önnur söng­ og leikatriði, róla og fara í hringekjur og skoða framandi dýr . Þar mætti líka finna ýmsar verslanir, m .a . eina geysivinsæla þar sem allar vörur væru á sama verði, átta skildinga . Allt iðaði af lífi .6 Af þessum skrifum má draga þá ályktun að hjónin og Sigurður fóstursonur þeirra hafi bæði notið frístunda í Tívolí og á Dyrehavsbakken . Ingibjörg og Jón höfðu ánægju af því að spóka sig um í borginni að þeirrar tíðar hætti . Þá skoðuðu þau t .d . söfn . Vinsælt var að skoða sig um í safni Bertels Thorvaldsen og í Rósenborgarhöllinni . Í höllinni voru gripir og listmunir konungsfjölskyldunnar til sýnis . Þá var haldin árleg vorsýning á málverkum á Charlottenborg og einnig var myndasafn í Kristjánsborgarhöll . Gísli Brynjúlfsson getur þess í dagbók sinni að 27 . maí 1848 hafi hann farið með móður sinni, Jóni og Ingibjörgu að skoða „myndasafnið“ og rúmum mánuði síðar, 5 . júlí, hafi hann farið með „mömmu og J(óni) Sigurðss(yni) og konu hans, jómfrú Lever og Ágúst og Boga Thor(arensen) að sjá Rosenborg“ .7 Þessa umbrotasömu vetrardaga árið 1848, er Gísli ritaði dagbók sína, voru mót mæli gegn ríkjandi valdhöfum víða í Evrópu . Þá lést Kristján VIII, eftir skammæ veikindi, 20 . janúar . Tæplega mánuði síðar var útförin gerð . Gísli segir frá því í dagbók sinni 25 . febrúar: „Sótti mömmu til að sjá líkfylgdina úr húsum Repps á Austurgötu, við urðum Jóni Sigurðssyni og konu hans samferða . Kl . 9 ½ komu fyrstu vagnarnir, og var öll fylgdarrunan mjög falleg .“8 Líf konungsfjölskyldunnar var forvitni­ 6 Jón Sigurðsson, Blaðagreinar I–II, Sverrir Kristjánsson sá um útgáfuna (Reykjavík 1961–1962), hér II . b ., bls . 220 –222 . 7 Gísli Brynjúlfsson, Dagbók í Höfn (Reykjavík 1952), bls . 180 og 236 . 8 Sama heimild, bls . 117 . legt . Þegar stórviðburðir eins og konungs­ skipti urðu í danska ríkinu fylgdust Ingibjörg og Jón greinilega með af áhuga líkt og aðrir borgarbúar . Hvort sem fram fór konungleg útför eða konunglegt brúðkaup var áhugi Ingibjargar í það minnsta mikill . Þannig var hún mjög eftirvæntingarfull þremur áratugum síðar, í desember 1878, þegar konunglegt brúðkaup var í vændum . Hún skrifaði í sendibréfi nokkrum dögum fyrir brúðkaup Thyru prinsessu, yngstu dóttur Kristjáns IX, að þá verði mikið til stand í Höfn og bætir við: „gaman hefði verið að sjá í kirkjunni en kannski að maður sjái eitthvað af „fýrverkeríinu“ útum glugg ann“ .9 Ásumrin fóru Ingibjörg og Jón, eins og aðrir borgarbúar, gjarnan út fyrir borgina þegar vel viðraði . Flestir fóru t .d . árlega í skógarferð og til hlökkunin og eftir­ væntingin fyrir þær var mikil . Fólk átti kost á að fara á nokkra staði í sumarferðir, t .d . út á Frederiksberg, í Zoologisk Have og Charlottenlund, sem var utan borgarmark­ anna, svo dæmi séu nefnd . Í Frederiksberg Have voru stígar sem mátti þræða og lítil vötn til yndis . Á leiðinni þangað var gjarnan áð á veitingastaðnum Alleen berg .10 Þessar ferðir borgarbúa voru yfir leitt dagsferðir . Ingibjörg Jensdóttir, frænka Jóns og Ingi­ bjargar, fór með þeim í eina slíka að vorlagi 1878: „Um vorið, nokkru áður en ég fór, bauð „bróðir“ okkur systkinunum með sér í skógartúr . Við leigðum fríðan hestvagn og fórum í honum víða . Það var í mínum augum dýrlegur dagur . – Við komum í mörg veitingahús, og alls staðar „trakteraði“ hann okkur .“11 Lýsing Ingibjargar sýnir svo ekki verður um villst að markmiðið var að 9 Lbs . 2192 4to . Ingibjörg Einarsdóttir til Sigríðar Einars­ dóttur, Kaupmannahöfn 18 . desember 1878 . 10 Sigvard Skov, „Have og park“, Dagligliv i Danmark i det nittende og tyvende århundrede, I . bindi, ritstjóri Axel Steensberg (Kaupmannahöfn 1964), bls . 565 . 11 Valtýr Stefánsson, „Gamlar myndir og minningar . Frú Ingibjörg Jensdóttir segir frá“, bls . 146 .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.