Þjóðmál - 01.06.2011, Side 26

Þjóðmál - 01.06.2011, Side 26
24 Þjóðmál SUmAR 2011 fáheyrða dýrtíð yfir neytendur,“ sagði Össur og bætti við, „það skoðun okkar í Sam­ fylkingunni að Samkeppnisstofnun eigi að fá í hendur þau tæki sem hún þarf til þess að skipa fyrir um breytingar, þar á meðal að skipta upp slíkum einokunarrisum ef hún telur þess þörf til þess að vernda hagsmuni neytenda .“ Í fyrsta svari sínu til Össurar fór Davíð Odds son forsætisráðherra almennum orð­ um um efnahagsástandið og taldi það horfa til betri vegar þrátt fyrir verðbólguskot . Össur fór öðru sinni í ræðustól og brýndi forsætis ráðherra . Davíð svaraði með þeim orðum að „[a]uðvitað á að fylgja því eftir að stórir aðilar séu ekki að misnota aðstöðu sína . Auðvitað er 60% eignaraðild í mat væla­ fyrirtækjum, verslunarfyrirtækjum í mat ­ vælaiðnaði, allt of há hlutdeild . Auðvitað er það ugg vænlegt og sérstaklega þegar menn hafa á tilfinningunni að menn beiti ekki því mikla valdi sem þeir hafa þar af skynsemi . Auðvitað hlýtur að koma til greina af hálfu ríkisins og Alþingis að skipta upp slíkum eign um ef þær eru misnotaðar .“ Upphaf bandalags Baugs og Samfylk­ing ar innar má rekja til utandag skrár­ um ræð unnar á alþingi 22 . janúar 2002 . Þrír af fjórum aðalleikendum Baugsmála voru komnir í hlutverk sín . Einn átti eftir að svíkjast um og annar var ekki mættur á sviðið . Forsætisráðherra talaði fyrir al­ manna hagsmunum, Baugur var í hlut verki græðgis vædda risans og Össur Sam fylk ing­ ar formaður fann sig í rullunni sem svika ­ mörð ur inn er hleypir af stað atburðarás undir heiðarlegum formerkjum en söðlar um þegar hann fær tilboð um völd og fé . Sá fjórði, vinstrimaðurinn og fyrrverandi for ­ maður Alþýðubandalagsins, forseti lýð veld ­ is ins, Ólafur Ragnar Grímsson, var ekki mættur á sviðið . Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, tók gagnrýninni illa og gremja hans beind­ ist að forsætisráðherra en ekki máls hefjanda . Baugur var orðinn stórveldi á mat vöru mark­ aðnum, með yfir helming af veltunni, og í óða önn að koma ár sinni fyrir borð á öðrum sviðum, fjölmiðlum þar á meðal . Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, var send­ ur á fund Davíðs . Hreinn var aðstoðar mað ur Davíðs áður en hann hóf störf hjá Baugi . Þeir hittust í London og áttu þar tveggja manna tal sem nokkru síðar varð tilefni sprengju­ forsíðu Fréttablaðsins . Sumarið 2002 gerði Jón Ásgeir Jó hannes­ son, aðaleigandi Baugs, tvo menn út af örk ­ inni, Gunnar Smára Egilsson og Ragnar Tómas son lögfræðing, til að stofa útgáfu­ félagið Frétt ehf . Nýstofnað útgáfu félagið keypti Fréttablaðið sem hefði orðið gjald­ þrota hjá fyrri eigendum . Gunnar Smári var gerður að ritstjóra . Hvergi kom fram að Jón Ásgeir ætti hlut í út gáfu félaginu . Jón Ásgeir var forstjóri og síðar stjórn arformaður Baugs sem var almenn ings hlutafélag á þessum tíma, m .a . í eigu líf eyrissjóða . Eftir að Frétt ehf . tók við útgáfu Frétta­ blaðs ins beindi Jón Ásgeir auglýsingum Bónus, Hagkaupa og annarra verslana í eigu Baugs til blaðsins . Almenningshluta­ félagið Baugur var látið borga einkafjár­ festingu Jóns Ásgeirs . Haustið 2003 keypti útgáfu félag Fréttablaðsins bú DV sem hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta . Í nóvember sama ár gekk Jón Ásgeir frá samningum við Jón Ólafsson, kenndan við Skífuna, um að kaupa eignir hans á Íslandi, þar með talið ráðandi hlut í Norðurljósum sem rak m .a . Stöð 2 og Bylgjuna . Þegar kom að kosningum vorið 2003 fór Samfylkingin ekki í framboð til að fá umboð frá kjósendum til að fara með landsstjórnina heldur fór hún í framboð gegn Davíð Odds syni . Borgarnesræða Ingibjargar Sól rúnar Gísladóttur 9 . febrúar skilgreindi kosn ingabaráttuna . Ingibjörg Sólrún var for ­

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.