Þjóðmál - 01.06.2011, Page 32
30 Þjóðmál SUmAR 2011
aldar minningu heimastjórnar veturinn
2004 . Forseti taldi freklega fram hjá sér
gengið og rök eru fyrir þeirri afstöðu .
Ekki skal vanmeta persónulegan metnað
sem aflvaka embættisverka stjórnmála
manna . Aðrar og pólitískari ástæður koma
engu að síður til álita í skýringu á synjun
for setans á fjölmiðlalögum .
Ólafur Ragnar Grímsson er aðal höf und
ur að síðustu markverðu tilraun Al þýðu
banda lagsins til að ná frumkvæði í íslensk
um stjórnmálum . Veturinn 1993 til 1994
setti Ólafur Ragnar saman pólitískan texta
sem í fyrstu útgáfu var 120 blaðsíður í A4
broti . Afurðin hét löngu nafni: „Út flutn
ings leiðin, ný leið Íslendinga . Grund völlur
fram fara og hagsældar, tími breytinga og
bjart sýni . Atvinna, jöfnuður, siðbót .“
Útflutningsleið Ólafs Ragnars er undan
fari útrásarinnar og skýrir hvers vegna
hann féll kylliflatur fyrir auðmönnunum
þegar þeir komu fram á sjónarsviðið . Þegar
Ólafur Ragnar fór úr Alþýðubandalaginu
til að verða forseti lýðveldisins sumarið
1996 tók hann með sér hugmyndir sem
réttlættu útrásina og brýndu menn til
frekari dáða við fjárhagslegt strandhögg á
Norðurlöndum og Bretlandseyjum . Ólafur
Ragnar sá ekki öfgar útrásarinnar og hélt að
þar færu „bestu viðskiptasynir Íslands“ eins
og Baugsskáldið Hallgrímur Helgason orti
um Jón Ásgeir og félaga .
Þegar Ólafi Ragnari bauðst tækifæri til
að gera tvennt í senn, að veita útrásarauð
mönnum stuðning í pólitískri deilu við ríkis
valdið og bregða fæti fyrir Davíð Odds son
stóðst hann ekki mátið og fórnaði til þess
hefð um og virðingu forsetaembættisins .
Eitt stærsta viðskiptaveldi landsins, Baug
ur, hafði í náinni samvinnu við Samfylk
ingu, Vinstri hreyfinguna – grænt framboð
og for seta lýð veldisins lagt ríkisvaldið að
velli . Í einni máls grein er það niðurstaða
fjölmiðla máls ins veturinn 2003 til 2004 .
Kosningarnar 2003 veiktu Davíð Oddsson, formann Sjálfstæðis flokks
ins . Stefnu skráin, sem flokkurinn bauð
fram, var orðfá og bað kjósendur um að
styðja flokkinn áfram í ljósi fenginnar
reynslu . Ástæðan fyrir fátæktinni var að
hug myndafræðin, sem Davíð og Sjálf stæð
isflokk urinn báru fram til sigurs síðasta ára
tug 20stu aldar innar, ól af sér auðmenn sem
engu eirðu í óseðj andi græðgi . Óhugsandi
var að klappa áfram stein markaðsvæðingar
þegar skýr merki voru um að hún leiddi
þjóðina í ógöngur . Frjálshyggjan, sem
pólitísk stefna, varð að verkfæri auðmanna
til að réttlæta forræði þeirra í stjórnmálum .
Formaður Sjálf stæðisflokksins gerðist frá
hverf ur auð ræð inu og sýndi það með
tákn rænum að gerðum . Haustið 2003 tók
Davíð inni stæður sínar út úr Kaupþingi
þegar honum ofbauð sjálftekt for stjóra og
stjórnarformanns .
Forysta Sjálfstæðisflokksins átti engan
val kost við hugmyndafræði frjálshyggj unn
ar þótt öfgarnar yrðu æ augljósari . Auð
menn fundu að forysta Sjálfstæðisflokks ins
var orðin hálfvolg og fundu sér aðra banda
menn á vettvangi stjórnmálanna .
Bandalagið við Baug tryggði Sam fylk ing
unni stöðu í stjórnmálum í líku hlutfalli og
staða Sjálfstæðisflokksins veiktist . Á kjör tíma
bilinu 2003 til 2007 hvarf Davíð Odds son af
vettvangi stjórnmálanna . Hall dór Ásgríms
son, formaður Framsóknar flokks ins, varð
for sætisráðherra og Geir H . Haarde formað
ur Sjálfstæðisflokksins . Í Sam fylkingunni tók
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir við formennsku
af Össuri Skarphéð inssyni árið 2005 .
Ingibjörg Sólrún hafði unnið sér traust
og tiltrú auðmannanna með Borgarnesræð
unni . Hún hafði þann metnað helstan í
stjórnmálum að gera Samfylkinguna stærri
en Sjálfstæðisflokkinn . Það féll ágætlega
sam an við ríkjandi hagsmuni auðmanna
að Sam fylkingin var ekki með nein prinsip