Þjóðmál - 01.06.2011, Blaðsíða 34
32 Þjóðmál SUmAR 2011
Fjármálakerfi Vesturlanda riðaði til falls haustið 2008 . Hlutabréf hrundu
í verði og bankar fóru á hausinn eða voru
komnir að fótum fram . Þegar stórbankinn
Lehman Brothers fór í þrot um miðjan
september 2008 varð efnahagslegt fár
viðri . Lánalínur lokuðust og allt traust til
fjármálastarfseminnar hvarf . Öllum var
ljóst að þetta mundi ríða mikið skuld settum
fjármálafyrirtækjum að fullu fengju þau
ekki fyrirgreiðslu . Bandaríkjamenn dældu
billjónum af peningum skattgreiðenda í
bankana til að forða þeim frá gjaldþroti .
Sama gerði enska ríkisstjórnin og sú írska .
Framsæknir bankar, eins og þeir voru
kallaðir á árunum fyrir bankahrunið,
urðu verst úti . Þeir höfðu verið reknir sem
vogunarsjóðir . Alls staðar hafði aðhald,
aðgát og agi vikið fyrir sóun, fífldirfsku og
agaleysi . Skelfingu lostnir stjórnmála menn
um víða veröld áræddu ekki að láta þá sem
ábyrgð báru á banka og fjármála hruninu
bera þá ábyrgð sem stjórnend ur fyrir
tækja eiga að bera í markaðsþjóðfélög um .
Þeir hlupu til og notuðu fjármuni skatt
borgara .
Ísland og bankakreppan 2008
Margir hafa haldið því fram að Ísland hafi orðið harðast úti í efnahags og
bankakreppunni haustið 2008 . Það er rangt .
Sumir halda því fram að algjört kerfishrun
hafi orðið . Það er líka rangt . Það tókst að
bjarga efnahagslífinu, framleiðslunni og
þjóð félagsstarfseminni . Það tókst einnig að
bjarga innlendri bankastarfsemi .
Margir íslenskir hagfræðingar héldu því
fram, þegar vandi bankakerfisins var að
koma í ljós, að ríkisvaldið ætti að hlaupa
undir bagga og leggja fram peninga . Þessir
sömu spekingar gagnrýndu síðar viðbrögð
stjórnvalda í aðdraganda bankahrunsins á
þeirri forsendu að peningar skattborgara
hefðu ekki verið notaðir til að bjarga
ofvöxnu bankakerfi . Þessir ráðagóðu menn
stjórna nú haftakerfinu íslenska og telja
sig vita betur en aðrir hvernig á að breyta
stjórnarskránni .
Íslenskum fræðimönnum, sem töluðu um
virka ríkisaðstoð til bankanna, verður ekki
legið á hálsi fyrir að hafa haldið fram þessum
röngu sjónarmiðum . Þeir vissu ekki betur .
Með sama hætti og þeir sem héldu um stjórn
þjóðfélagsins vissu ekki betur en eigin fjár
staða bankanna væri í lagi haustið 2008 .
Stjórnvöld, eftirlitsaðilar og fræðimenn
unnu út frá því að hægt væri að treysta
upplýsingum um banka sem staðfestar voru
af löggiltum endurskoðendum . Hálfs árs
uppgjör bankanna árið 2008 sýndi veru
legan hagnað af starfsemi bankanna og góða
eiginfjárstöðu . Þegar óveðrið skall á haustið
2008 kom annað á daginn .
Jón Magnússon
Pólitísk aðför