Þjóðmál - 01.06.2011, Side 37

Þjóðmál - 01.06.2011, Side 37
 Þjóðmál SUmAR 2011 35 tilefni, hversu ítarlega greiningu átti að gera o .s .frv . Ákærandinn lítur fram hjá þeirri staðreynd að réttar ákvarðanir voru teknar þegar stjórnvöldum varð ljós staða bankakerfisins . Undir gífurlegri pressu voru teknar skynsamlegar og yfirvegaðar ákvarðanir . Um það eru allir sammála í dag . Tjónið var lágmarkað, ólíkt því sem varð í Bandaríkjunum, Bretlandi og Írlandi . Samt sem áður er Geir sá eini sem er ákærður af forystumönnum þjóðríkja . Þessi hluti ákærunnar er fráleitur, skoðaður í ljósi þess sem gerst hefur í heiminum og fyrir liggur um starfsemi bankanna fyrir hrun . Geir er gefið að sök að hafa vanrækt að hafa frumkvæði að virkum aðgerðum af hálfu ríkisvaldsins til að draga úr stærð íslenska bankakerfisins . Þessi ákæruliður er athygliverður, einkum fyrir þá sök að ekki verður séð að forsætisráðherra hafi haft neinar þær valdheimildir sem gátu gefið honum færi á að hafa virk afskipti af bankastarfseminni með þessum hætti . Þvert á móti gaf regluverk hins Evrópska efnahagssvæðis bönkunum lagalegan rétt til þess að vaxa og stækka . Stjórnmálamenn í öllum flokkum fögnuðu stækkun bankanna og fóru fögrum orðum um framsækni þeirra . Háskólamenn kepptust við að fá styrki frá þeim og fjölmiðlamenn fluttu hverja sigursöguna á fætur annarri . Engu að síður virðist ákærandinn ekki gera sér grein fyrir því að bankakerfið minnkaði á árinu 2008 ef eignir þess eru skoðaðar í evrum . Ákærandinn gleymir því einnig að í ársbyrjun 2008 var fallið frá kaupum Kaupþings á hollenska bankanum NIBC . Þau kaup ein og sér hefðu stækkað bankakerfið um hátt í þriðjung . Geir Haarde er einnig ákærður fyrir atriði sem heyra ekki undir forsætisráðuneytið . Þetta á við um flutning Icesave­reikninga . Vandséð er hvað forsætisráðherra gat gert í þeim efnum eða hvaða valdboðum eða tækjum hann gat beitt . Svo virðist sem ákærendur telji að færsla innlánsreikninga hafi verið einföld framkvæmd og alfarið á valdsviði íslenskra stjórnvalda . Svo er auðvitað ekki . Bresk stjórnvöld höfðu allar valdheimildir í hendi sér varðandi flutning reikninganna . Unnið var að því að færa reikninga Landsbankans yfir í dótturfélag á árinu 2008, en aðgerðin var viðkvæm og varð að framkvæma án þess að áhlaup myndaðist á reikningana og skilmálar í lána samningum Landsbankans myndu rakna upp . Til þess þurfti samvinnu við bresk stjórnvöld en samkomulag náðist ekki í tæka tíð . Í öðrum tölulið ákærunnar er vikið að forms atriði um fundarhöld ráðherra sem ekki verð ur séð að hafi skipt máli í aðdrag­ anda banka hrunsins . Saksóknari Alþingis er föst í sjónarmiðum 19 . aldar skýringa á 17 . gr . stjórn arskrárinnar og vandséð með hvaða hætti hún rökfærir sakaratriði á grund velli þessa stjórnarskrárákvæðis og hvaða áhrif fram kvæmd formlegra ráðherra­ funda hefði haft varðandi bankahrunið . Færa má rök að því að það hefði heyrt undir aðra ráðherra frekar en forsætisráð­ herra að fara fram á fundi á grundvelli þessa ákvæð is stjórnarskrárinnar sumarið 2008 . Saksóknari freistar þess að ná fram sak fell­ ingu á grundvelli formsatriðis sem hafði enga þýðingu varðandi bankahrunið en það sýnir hversu langt er seilst til að reyna að ná fram sakfellingu . Staðreyndum má ekki gleyma Hefði Geir Haarde gripið til þeirra aðgerða sem honum er gefið að sök í ákæru að hafa ekki framkvæmt, þá hefði það leitt til þess að íslenska bankakerfið hefði hrunið fyrr . Ríkissjóður stæði þá frammi fyrir háum skaðabótakröfum . Aðgerðir, sem gripið var til haustið 2008

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.