Þjóðmál - 01.06.2011, Qupperneq 42
40 Þjóðmál SUmAR 2011
dvöl þar í landi varð til þess að höfundur
sann færðist um að svo væri ekki . Í Sviss
situr í Bern ágætt þjóðþing í tveim þing
deildum . Þá eru að aldagamalli hefð alls
kyns ákvarðanir bæjar og sveitarfélaga
lagðar fyrir borgara, oft að frumkvæði
ein staklinga . Í atkvæðagreiðslum um
ýmis meiriháttar þjóðmál ræður úrslit um
tvöfaldur meirihluti, þ .e . meirihluti at
kvæða á landsvísu og jafnframt meirihluti
hinna misstóru 26 fylkja eða kantóna; sú
minnsta þeirra telur aðeins 15 .000 íbúa
og sú stærsta 1,2 milljónir . Afturhaldssemi
fárra lítilla kantóna réði því t .d . að í Sviss
fengu konur ekki kosningarétt fyrr en 1971
og landið varð ekki aðili að Sameinuðu
þjóðunum fyrr en 2002 . Þingmeirihluti
hafði þá vafalaust legið fyrir löngu áður .
Kalifornía greip til þess óráðs að taka Sviss
sér til fyrirmyndar um þetta frumkvæði
einstaklinga, sem þar hefur verið notað
úr öllu hófi í ákvörðunum um skatta
og fjármál . Þegar fáránleg tillaga um að
söluskattur skuli vera 1% líst kjósendum
mæta vel á, en gæta þess ekki að sveitarfélög
missa ómissandi tekjustofn . Kalifornía
rambar á barmi gjaldþrots og hefur fengið
verra lánshæfismat en Grikkland .
Næsta raunalegt er að höfundar íslensku stjórnarskrárinnar þyrftu að
skilja svo við það verk að það skyldi fljót
lega end ur skoðað . Stjórnmálaástandið árið
1944 stuðlaði ekki að þeim vinnubrögðum
sem viðhafa þarf við jafn þýðingarmikið
verk og gerð stjórnarskrár . Hatrammar
deilur og ósætti var milli stjórnmála flokk
anna enda sat utanþingsstjórn við stofnun
lýð veldisins, sam þykkt stjórnarskrárinnar
og kjör forseta 17 . júní 1944 á Þingvöllum .
Óvissa fengin í arfleið um synjunar vald
forsetans og stöðu Alþingis leiðir með
öðru varla til annars en pólitísks upp
lausnar ástands . Á þessu þarf því að taka .
Að öðru leyti telur sá sem þetta skrifar, að
við eigum góða stjórnarskrá, að stofni til
hina sömu og þá dönsku frá 19 . öld . Mér
hefur sýnst hún segja það sem segja þarf
en annað mál er, að gömul og óviðeigandi
framsetning fengin frá konungsdæminu er
ekki til annars fallin en að rugla fólk . Hvað
sem öðru líður þarf ný stjórnarskrá að segja
það skýrum orðum, að það er ráðherra sem
ákveður en ekki að hann feli forsetanum
fram kvæmdina .
Enn ríkir órói í stjórnmálum á Íslandi . Skyldi sú stund koma að Ísland
öðlist stjórnarskrá, sem landsmenn verði
jafn stoltir af og Bandaríkjamenn eru af
sinni frá 18 . öld eða sátt ríkir um eins
og þá norsku samda á Eiðsvelli 1814?
Þjóðhátíðardagur Norð manna 17 . maí
er stjórnarskrárdagurinn — Grunnlovs
dagen . Þessar stjórnarskrár eru til komnar
vegna nýfengins frelsis . Einnig getur
verið um að ræða meiriháttar pólitísk
umskipti eins og var tilefni stjórnarskrár
5 . lýðveldisins svokallaða í Frakklandi
1958 . Mikið forsetaveldi með sjö ára kjör
tímabili var þar sniðið fyrir de Gaulle .
Ísland stendur á tímamótum endurreisn ar
eftir efnahagslegt hrun en það ógnar ekki
stjórn skipun okkar . Trygging þingbund
ins lýðræðis er einfaldlega höfuðmarkmið
nýrrar stjórnarskrár, hver svo sem tíma
þörfin er á því að ganga vel frá verki . Ný
skipuðu stjórnlagaráði undir forystu Salv ar
ar Nordal er óskað velfarnaðar við að semja
tillögur en myndarleg heimasíða birtir hið
mikla umfang verkefnisins og gerir öllum
aðgengilegt að fylgjast með framvind unni .
Tillögur stjórnlagaráðs koma síðan lögum
samkvæmt fyrir Alþingi sem átti á árum
áður að ráða bót á stjórnarskrármálinu .
Þegar upp er staðið skal ríkja sam staða á
þingi og með þjóðinni um sameign sem
varðar heill og heiður Íslendinga .