Þjóðmál - 01.06.2011, Qupperneq 43
Þjóðmál SUmAR 2011 41
Sjálfstæðisflokkurinn getur endurheimt stöðu sína sem kjölfesta og leiðandi afl
í íslenskum stjórnmálum með því að end
ur nýja traust og trúnað við launþega og at
vinnurekendur . Sú endurnýjun verður hins
vegar ekki nema forystumenn flokksins við
ur kenni af einlægni að þeir sofnuðu á verð
inum og undir forystu flokksins náði ríkið
að þenjast út . Sjálfstæðisflokkurinn þarf
ein nig að horfast í augu við þá staðreynd
að sem stjórn málaflokkur gleymdi hann
úr hvaða jarð vegi stefna hans og hugsjónir
eru sprottnar . Ekki vegna þess að almennir
flokks menn hafi rifið upp ræturnar, held
ur gleymdi flokkurinn, sem stofnun, fortíð
sinni og sögu . Engu skiptir hvort um ein
stakl ing, stjórnmálahreyfingu eða þjóð er að
ræða; ef fortíðin, sagan, og menn ingin eru
grafin í kistu gleymskunnar, tekur rotnunin
við . Hægt í fyrstu, en síðan stöð ugt og hratt,
uns ekkert er eftir annað en moldin .
Sjálfstæðisflokkurinn verður því að leita
aftur til fortíðar um leið og hann mótar nýja
sýn til framtíðar . Fara aftur til þess tíma þegar
flokkurinn var málsvari launamanna, varð
maður millistéttarinnar og sérstakur baráttu
maður litlu og meðalstóru fyrir tækjanna, sem
skapa nýjungar og atvinnu . Sjálfstæðis flokk
urinn verður að tryggja að enn á ný verði
hann brjóstvörn allra borgaralegra afla lands
ins — regnhlíf allra þeirra sem vilja takmarka
völd ríkisins, tryggja frelsi borgaranna en um
leið standa vörð um velferðarríkið, án þess
að ríkisvæða náungakærleikann . Sjálf stæðis
fl okkurinn á að lýsa því yfir að hann muni,
í gegnum þykkt og þunnt, vera gæslu maður
menningar og sögu landsins .
Ég get sagt þetta með öðrum og kannski
skýr ari hætti .
Sjálfstæðisflokkurinn á að lýsa því yfir að
hann sé flokkur atvinnurekenda, flokkur
launa manna, flokkur bænda, flokkur þeirra
sem þurfa á samhjálp að halda, flokkur unga
fólks ins og þeirra sem eldri eru . En fyrst og
fremst á Sjálfstæðisflokkurinn að lýsa því yfir
að hann sé flokkur millistéttarinnar — hins
venju lega Íslendings .
En það er ekki nægjanlegt að gefa út yfir
lýsingar . Sjálfstæðisflokkurinn þarf að hefja
skipulega og harða hugmyndabaráttu . Í þeirri
baráttu má flokkurinn ekki gefa eftir . Flokks
menn en þó fyrst og fremst kjörnir fulltrúar
flokksins, jafnt á Alþingi og í sveitarstjórnum,
þurfa að öðlast aftur sjálfstraust sem byggist
á einlægri sannfæringu hjartans . Um leið og
forystumenn Sjálfstæðisflokksins byrja að tala
frá hjartanu og hætta að skammast sín fyrir
fortíðina en horfast í augu við hana, mun
þjóðin aftur öðlast trú á því að flokkurinn,
sem er sprottinn upp úr íslenskum jarðvegi
með frelsi einstaklingsins að leiðarljósi, sé
sá flokkur sem best sé treystandi fyrir því að
ryðja brautina til bættra lífskjara .
Sjálfstæðisflokkurinn á ekki að láta ýta sér
Óli Björn Kárason
Manifesto hægri manns