Þjóðmál - 01.06.2011, Side 44
42 Þjóðmál SUmAR 2011
út í horn íslenskra stjórnmála . Hann á að
mæta pólitískum andstæðingum hvenær og
hvar sem er . Flokksmenn eiga að halda til
haga þeim gríðarlega árangri sem náðist undir
forystu Sjálfstæðisflokksins, ekki síst á sjöunda
og tíunda áratug síðustu aldar sem og á fyrstu
árum nýrrar aldar . Þá nutu Íslendingar mestu
framfara á sviði atvinnumála og grunnurinn
að öflugu velferðarkerfi var lagður . Sótt var
fram á sviði lista, menningar og mennta .
Menn eiga því að líta til sögunnar með stolti
en um leið að gangast við því að ýmislegt fór
úrskeiðis . Þar skiptir tvennt mestu . Ríkis
stjórn ir Sjálfstæðisflokksins misstu stjórn á
vexti ríkisvaldsins og flókið reglugerðaveldi
náði að festa rætur . Þá fengu öflugar við
skipta blokkir að blómstra og leggja undir sig
stóran hluta viðskiptalífsins — ekki í krafti
þess að eigendur og stjórnendur væru snjallari
en keppinautarnir eða byðu betri og ódýrari
þjón ustu — heldur í skjóli óeðlilegs aðgangs að
láns fé . Sjálfstæðisflokknum mistókst að koma
böndum á þessar stóru viðskiptasamsteypur
og tryggja eðlilega og heilbrigða samkeppni .
Sinnuleysi og leti
Við, sem höfum skipað okkur undir gunnfána Sjálfstæðisflokksins, geng um
ekki til liðs við flokkinn vegna nafnsins eða
vegna þess að einhvern tíma í sögu hans hafi
þar verið magnaðir foringjar við völd . Nei .
Við erum frjáls hyggjumenn, hægri menn, efa
semda menn um mátt ríkisvaldsins, trú menn
þess að hver sé sinnar gæfu smiður, um leið og
trú okkar krefst þess að hjálpa samborgurum
okkar . Við erum fólk sem talar um borgara í
stað þess að ræða um þegna . Við erum sann
færð um að leiðin til hamingjunnar liggi hvorki
í gegnum ríkið eða auðæfi . Við erum fólk
sem telur að mælikvarði á náungakærleika og
hjálp semi verði aldrei fundinn í því hvað við
greiðum í skatta, heldur hvernig og hvort við
komum nágranna okkar til hjálpar, án þess að
um það sé sérstaklega getið í fjölmiðlum . Sjálf
stæðis menn eru því bara venjulegir Ís lending
ar og þegar Sjálfstæðisflokkurinn byrj ar að tala
og framkvæma eins og venjulegir Íslending ar,
mun flokkurinn — en fyrst og fremst þjóð in
— njóta góðs af .
Sjálfstæðisstefnan er sprottin úr íslenskum
jarðvegi, mótuð af harðbýlu en gjöfulu landi .
Þar liggja rætur okkar . Í alsnægtum síðustu
ára höfum við sjálfstæðismenn því miður
gleymt því hvar ræturnar liggja — við höfum
ekki ræktað okkar sögulega hlutverk af þeirri
trúmennsku sem ætlast er til .
Í stjórnmálum eru margar þversagnir en
líklega þurfum við hægri menn að glíma við
fleiri þversagnir en þeir sem eru til vinstri . Þrátt
fyrir þessar þversagnir hefur íslenskum hægri
mönnum tekist betur en sósíalistum að halda
hópinn . Frjálshyggju menn eru í bandalagi
við íhaldsmenn, launa menn eru samherjar
at vinnu rekenda, fisk vinnslukonan á samleið
með út gerðar manninum, menntamaðurinn
er jafn ingi þess óskólagengna, sem átti ekki
mögu leika á að afla sér menntunar .
Það er margt sem okkur sjálfstæðismenn
grein ir á um og sem betur fer . Í gegnum ára
t ugina hefur það verið styrkur flokksins að við
skulum hafa tekist á og það stundum harka
lega . Enginn íslenskur stjórn málaflokkur hefur
staðist hörð málefnaleg átök með sama hætti
og Sjálf stæðisflokkurinn . Og hvernig má annað
vera? Samkeppni hugmynda er rist djúpt í sál
okkar . Við höfum unun af kappræðum, deilum
og sam keppni . Að kljást við ólíkar og oft ögr
andi skoð anir er hluti af því sem við erum .
Hvort sem okkur hægri mönnum líkar betur
eða verr, þá urðu hugsjónir okkar fyrir verulegu
áfalli þegar alþjóðlega fjármálakreppan reið
yfir . Fyrir hægri menn á Íslandi var áfallið
enn meira þegar fjármálakerfið hrundi með
skelfilegum afleiðingum .
En það eru gríðarleg tækifæri fólgin í þess
um vandræðagangi okkar . Við urðum sinnu
laus — hættum að tefla fram hugmyndum,