Þjóðmál - 01.06.2011, Qupperneq 46
44 Þjóðmál SUmAR 2011
stjórn málamönnum aðhald og krefjast þess
að þeir standi við það sem sagt eða lofað
hefur verið . Það er bara tæknilegt að Vinstri
græn skuli styðja aðildarumsókn að Evrópu
sambandinu, þvert á loforð . Það er talið til
marks um víðsýni og frjálslyndi að styðja
aðild . Þeir sem berjast gegn því að Ísland gangi
í Evrópusambandið eru sagðir þröngsýnir og
öfgafullir . Fjölmiðlungar og hinir „rétttrúuðu“
gera allt til að grafa undan þeim sem byggðu
andstöðu sína á einlægri sannfæringu um að
fullveldi Íslands megi aldrei fórna .
Eitthver stærsta ögrun Sjálfstæðisflokksins á
komandi mánuðum og árum er að segja teknó
kratismanum stríð á hendur . Segja hingað og
ekki lengra . Baráttan við teknókratana er hluti
þess að flokkurinn hverfi aftur til for tíðar —
byrji að nýju að huga að rótunum .
Gjör rétt, þol ei órétt
Þegar við sjálfstæðismenn segjum: Gjör rétt, þol ei órétt, eru það ekki innantóm
orð heldur sögð beint frá hjartanu . Í þeim
felst djúpstæð sannfæring fyrir því hvers konar
þjóðfélagi við berjumst fyrir . Við berjumst
fyrir sjálfstæðu íslensku samfélagi sem byggir
á krafti okkar allra og sanngirni í garð hvers
annars og að við komum þeim til hjálpar sem
hjálpar er þurfi . Gjör rétt, þol ei órétt, vísar
til þess að við vildum að sanngirni og virðing
sé í öllum samskiptum — við tökum stöðu
með kaupmanninum á horninu sem berst
ójafnri baráttu gegn öflugu viðskiptaveldi,
sem allt ætlar að gleypa, við berjumst fyrir
dugnaðarforkinum sem lagði allt sitt undir við
rekstur hjólbarðaverkstæðis og berst nú fyrir
lífi sínu gegn ofvöxnum risa . Gjör rétt, þol
ei órétt, vísar til þess að við sjálfstæðismenn
viljum byggja upp frjálst viðskiptalíf þar sem
heiðar leg og sanngjörn samkeppni fær að njóta
sín . Gjör rétt, þol ei órétt, leggur þær skyldur á
herðar okkar að brjóta upp viðskiptasam steyp
ur sem hafa orðið til á undanförnum árum í
skjóli óeðlilegra viðskiptahátta og ósann gjarns
forgangs að fjármagni .
Við verðum að koma þannig fram í ræðu og
riti og með athöfnum okkar að allur al menn
ingur skilji og skynji að loforð okkar um að
þola ekki órétt er rist djúpt í hjarta okkar og
að stefna okkar og allt okkar starf markist af
þessari djúpu sannfæringu .
Gjör rétt, þol ei órétt, vísar ekki aðeins til
þess loforðs okkar sjálfstæðismanna að tryggja
hér heilbrigt og kraftmikið atvinnulíf . Þetta
er loforð um að tryggja samfélag samhjálpar
og náungakærleika . Samfélag þar sem þeir
sem minnst mega sín eiga öfluga talsmenn —
harða baráttumenn fyrir velferðarþjóðfélagi
sem Sjálfstæðisflokkurinn átti öðrum fremur
þátt í að byggja upp . En um leið viljum við
koma böndum á ríkið og hið opinbera . Við
sjálfstæðismenn eigum aldrei að sætta okkur
við þann órétt að hið opinbera seilist æ dýpra í
vasa skattborgaranna . Og engir gera sér betur
grein fyrir þeirri einföldu staðreynd að ekkert
þjóðfélag fær þrifist án öflugrar millistéttar .
Dagskrárgerðarvaldið
Sjálfstæðismenn verða að öðlast aft ur pólitískt sjálfstraust . Til þess þarf að ræða
þjóð málin á forsendum sjálfstæðis stefnunnar .
Kjörn ir fulltrúar flokksins eiga ekki — hvorki í
ræðu né riti — að kljást við pólitíska and stæð
inga á öðrum forsendum en út frá hugsjón um
og hugmyndum Sjálfstæðisflokksins . Þeir eiga
að gagnrýna og benda á það sem miður fer, en
þeir eiga alltaf að færa umræðuna yfir á heima
völl sjálfstæðisstefnunnar — láta umræðuna
snúast um störf og stefnu Sjálfstæðisflokksins .
Pólitík er samkeppni hugmynda og sú sam
keppni verður ekki unnin með því að benda
á hvað stefna andstæðingsins sé slæm, heldur
með því að sannfæra kjósendur um að sjálf
stæðisstefnan sé besta trygging fyrir sókn til
betri lífskjara og heilbrigðra þjóðfélags .
Það er hægt að orða þetta með öðrum hætti: