Þjóðmál - 01.06.2011, Síða 51
Þjóðmál SUmAR 2011 49
Þor steinn Pálsson, átti frumkvæði að 1996 .
Raun ar var þetta ekki prívathugmynd eða
einka framtak Þorsteins, slík lög hafa verið
sett í mörgum Evrópulöndum undanfarin
ár og hvarvetna vakið andstöðu og reiði .
Fjöl miðlal ögin nýju eru rökrétt framhald
þessarar lagasetningar, en með þeim á að
kæfa allar efasemdarraddir í fæðingu .
Sums staðar mætti ætla að George Orwell, höfundur skáldsögunnar 1984,
hafi sjálfur verið að verki þegar þessi lög
voru samin . Þetta á m .a . við þegar talað er
um „ritstjórnarlegt sjálfstæði“, en þetta er
feluorð þeirra um yfirráð stjórnvalda yfir
fjölmiðlum . Þar segir m .a .:
Fjölmiðlaveita skal setja sér reglur um rit
stjórnarlegt sjálfstæði þeirra starfsmanna
sem sinna fréttum og fréttatengdu efni .
Slíkar reglur skulu mótaðar í samráði við
viðkomandi starfsmenn og fagfélög þeirra
eða samtök . . . Reglur um ritstjórnarlegt
sjálfstæði skulu sendar fjölmiðlanefnd til
staðfestingar .
Reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði
skulu endurskoðaðar árlega . Tilkynna skal
fjölmiðlanefnd þegar endurskoðun hefur
farið fram og senda henni nýja útgáfu af
reglunum til staðfestingar hafi breytingar
verið gerðar .
Þetta þýðir að sjálfsögðu í raun að stjórnvöld
hafa síðasta orðið um „ritstjórnarlegt
sjálfstæði“ fjölmiðilsins .
Enn segir um auglýsingar m .a .:
Viðskiptaboð og fjarkaup skulu ekki
fela í sér nokkra mismunun á grundvelli
kynferðis, kynþáttar eða þjóðernis, ríkis
fangs, trúar bragða eða trúarskoðana, fötl
unar, aldurs, kynhneigðar eða vegna ann
arrar stöðu .
Þau skulu ekki hvetja til hegðunar
sem er hættuleg heilbrigði eða öryggi,
eða hvetja til hegðunar sem er í áberandi
andstöðu við umhverfisvernd .
Og til að hnykkja betur á, hver hefur raun
verulega völdin yfir fjölmiðlum er eftir
farandi:
Ákvarðanir fjölmiðlanefndar samkvæmt
lögum þessum eru fullnaðarúr lausn
ir innan stjórnsýslunnar og sæta ekki
stjórn sýslukæru . Ákvarðanir fjöl miðla
nefndar um stjórnvalds og dagsektir eru
aðfararhæfar . . . Stjórnvaldssektum verður
beitt óháð því hvort brot eru framin af
ásetningi eða gáleysi .
Og áfram:
Ábyrgðarmaður, starfsmenn fjölmiðla
veitu eða stjórnarmenn sem framkvæma
eða láta framkvæma brot gegn ákvæðum
laga þessara skulu sæta sektum eða fangelsi
allt að sex mánuðum ef sakir eru miklar .
Um eitt heitasta deilumálið fyrir nokkrum árum, þ .e . eignarhald á fjöl
miðlum, er ekkert talað nema í viðauka,
þar sem segir að skipa skuli nefnd sem
eigi að gera tillögur fyrir fyrsta júní 2011 .
Eins og menn muna var það einkum
ætlunin með lögunum 2004, sem forseti
synjaði, að hindra yfirráð stóreignamanna
yfir fjölmiðlun . Vegna afskipta forsetans
hafa Jón Ásgeir og kó getað haft afgerandi
áhrif á umræðu og skoðanamyndun í
landinu undanfarin ár og ekki verður séð að
frumvarpshöfundar sjái neitt athugavert við
það . Baugsmenn gátu þó ekki sektað eða
fangelsað þá, sem þeim voru ekki að skapi .
Það getur ríkið hins vegar og nú á að taka
völdin og það með stæl .