Þjóðmál - 01.06.2011, Qupperneq 54
52 Þjóðmál SUmAR 2011
sóknarnefndar Alþingis er ein af orsökum
hrunsins sú að sumir auðkýfingar gengu
ber serks gang í banka og lánamálum, svo
og sjálftöku launa .
Með auðmönnum á ég við menn sem
eiga eða skulda eða fara með eignir mjög
langt umfram meðaleign venjulegs kjósanda
þannig að þeir geta tekið geysilega áhættu
fjárhags lega án þess að setja eigin velmegun
í hættu, en setja oft velmegun annarra í
stórhættu .
Tekjur, eignir og skuldir auðjöfra, sem
eru langt umfram almennar eignir, eru ekki
aðeins tekjur og eignir í venjulegum skilningi
heldur einnig völd . Slík völd, eins og önnur
völd í landinu, eiga að vera sýnileg almenningi
og undir eftirliti hans . Þessar umframeignir
eiga að þjóna almanna hags munum, þ .e . til
uppbyggingar og framfara . Þessi völd má
síst af öllu nota til að rústa efnahagskerfið,
eins og gerðist í hruninu . Traust eftirlit til að
hindra slíkt á fullan rétt á sér .
Allar þessar eignir eiga að vera háðar há marks
upplýsingaskyldu eins og um opinber ar eign ir sé
að ræða til að leiðrétta þann lýð ræð is halla sem
svo miklum eignum fylgir .
Seðlabankanum og Þjóðhagsstofnun yrði
skylt að fylgjast vel með efnahagslífinu og gæta
þess að gengi gjaldmiðilsins sé stöðugt . Nauð
synlegt er að tryggja gengi gjaldmiðilsins vegna
þess að peningar eru geymsla verðmæta, spari
fjár . Haga verður efnahagsstjórninni þannig að
gengi gjaldmiðilsins raski ekki þessu verð mæti
að neinu ráði .
UMSJÓNARRÁÐ — til að tryggja
aðhald og betri rekstur
I . NoteNdur þjóNustuNNar eigNist
hluta bréf og veiti aðhald
Hrunið hefur ekki aðeins leikið einkafyrirtæki grátt, heldur einnig sveitar
félög, sparisjóði og fyrirtæki í opinberri
eigu . Eitt hrapallegasta dæmið er Orkuveita
Reykjavíkur .
Fyrirtækið er hörmulega útleikið og
tækni lega gjaldþrota . Skuldir þess eru gríð
ar legar, langt yfir 200 milljarða króna, og
eigið fé aðeins 18%, sem hugsanlega er þó
of metið því miklar eignir liggja í leiðslum
í út hverfum og orkuverum, sem hvorugt
verð ur fullbyggt fyrr en eftir mörg ár . Hagn
aður af reglulegri starfsemi dugar rétt fyrir
vöxtum .
Auðvitað verður fyrirtækið ekki látið fara
í gjaldþrot, því neytendur þjónustunnar,
sem jafnframt eru eigendur fyrirtækisins „á
pappírnum“, eru í gíslingu einokunar .
Neytendur eru tilbúnir að greiða ansi
mikið fremur en að krókna úr kulda og sitja
í myrkri á heimilum sínum .
Orkuveitan var ein af gullgæsum Ís lend
inga, rétt eins og kvótakerfið er núna . Það
er ógæfa Íslendinga að vera gullgæsarbanar .
Þeir hafa ekki eirð í sínum beinum fyrr
en þeir hafa slátrað gullgæs og hirða öll
gulleggin í einu, strax, fái þeir færi á því .
Orkuveita Reykjavíkur er í raun í eigu
lán ar drottna sinna . Ef Reykvíkingar vilja
eign ast hana aftur verða þeir að kaupa
fyrirtæk ið af lánardrottnunum handa
sveitar félag inu Reykjavíkurborg . En nú er
nóg kom ið .
Þegar neytendur og eigendur kaupa
Orku veituna aftur af lánardrottnunum eiga
þeir að eignast verulegan hluta á móti sveit
ar félaginu . Hvernig má það verða? kann
ein hver að spyrja .
Fyrir hluta af viðbótargreiðslum sínum til
Orkuveitunnar, 50 milljarða króna á næstu
5 árum, eiga þeir að fá vaxtaberandi skulda
bréf, sem ígildi hlutabréfs, sem veitir rétt til
að kjósa í „umsjónarráð“ . Þessi bréf verði
framsalshæf en enginn má eiga meira en
lítinn hluta í fyrirtækinu, sem verður með
mikilli eignardreifingu .
Í nýlegum sunnudagspistli Styrmis